Skessuhorn - 28.04.2021, Síða 2
MiðVikUDAGUR 28. ApRÍL 20212
Á laugardaginn er 1. maí sem er
baráttudagur verkalýðsins. Vegna
heimsfaraldurs verða engar kröfu-
göngur í ár. Þá stendur árgangur
1971 á Akranesi fyrir áheitasöfnun
þennan dag á Akraneshöfn þar sem
fólk er hvatt til að hoppa í sjóinn og
safna áheitum. Safnað verður fyrir
sérsmíðuðu reiðhjóli fyrir Sveinbjörn
Reyr sem slasaðist alvarlega á síð-
asta ári. Sjá nánar um það í Skessu-
horni í dag.
Á morgun verður hæg vestlæg eða
breytileg átt. Víða bjart norðantil á
landinu en sumsstaðar dálítil væta
fyrir sunnan. Hiti 4-9 stig að degin-
um. Á föstudag gengur í norðaustan
8-15 m/s og él norðan- og austan-
lands, rigning eða slydda um landið
sunnantil, en þurrt fyrir vestan. Hiti
frá frostmarki fyrir norðan upp í 8
stig fyrir sunnan. Á laugardag er út-
lit fyrir norðaustan 8-13 m/s og él á
Norður- og Austurlandi, en þurrt um
landið suðvestantil og kólnar heldur.
Á sunnudag er spáð norðaustlægri
og austlægri átt 5-13 m/s og lítils-
háttar snjókomu austast á landinu
og hiti um frostmark. Bjart um land-
ið vestanvert og hiti að 7 stigum yfir
daginn. Á mánudag á að vera norð-
austanátt og lítilsháttar él á Norður-
og Austurlandi, en léttskýjað í öðrum
landshlutum og hiti breytist lítið.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessu-
horns hvaða sóttvarnarráðstafanir
fólk hlakki mest til að losna við. Flest-
ir, eða 63%, eru spenntastir fyrir að
losna við grímuskylduna, 22% hök-
uðu við fjöldatakmarkanir, 6% sögðu
takmarkanir á íþrótta- og tóm-
stundastarfi, 4% hlakkar mest til að
losna við nálægðarregluna, og svar-
möguleikarnir „sóttkví“ og „annað“
fengu 3% hvor.
Í næstu viku er spurt:
Hvernig viltu hafa kaffið þitt?
Þeir Vestlendingar sem fóru út að
plokka rusl í tilefni Stóra plokkdags-
ins eru Vestlendingar vikunnar að
þessu sinni.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Veðurhorfur
Stærsta bólu-
setningarvikan
LANDIÐ: Í þessari viku
munu um 23.000 einstak-
lingar fá fyrri bólusetningu
við Covid-19 með bóluefni
pfizer, AstraZeneca og Jans-
sen. Í heildina verða gefnir
um 25.000 skammtar. Þetta
verður því stærsta vikan í
bólusetningum hér á landi
vegna veirunnar frá upphafi.
Í vikulokin höfðu 80.721 ein-
staklingar fengið að minnsta
kosti einn skammt bóluefnis
eða um 29% af heildarfjölda
þeirra sem verða bólusett-
ir. Um mánaðarmótin næstu
hafa því um 104.000 ein-
staklingar fengið að minnsta
kosti einn skammt bóluefnis.
-mm
Fjörleg fast-
eignaviðskipti
VESTURLAND: Þjóðskrá
hefur tekið saman upplýsing-
ar um veltu á fasteignamark-
aði eftir landshlutum í mars
2021 samkvæmt þinglýst-
um gögnum. Fjöldi fasteigna
sem gekk kaupum og sölum á
landinu öllu var 1.648 og var
upphæð viðskiptanna um 85
milljarðar króna. Þegar mars
2021 er borinn saman við
mánuðinn á undan fjölgar
kaupsamningum um 25,2%
og velta eykst um 29,1%. Á
höfuðborgarsvæðinu fjölg-
aði samningum um 21,4%
á milli mánaða og velta jókst
um 28%. Hér á Vesturlandi
voru alls 82 kaupsamning-
ar um húsnæði í marsmán-
uði. Þeir skiptast þannig að
35 íbúðir í fjölbýli skiptu um
eigendur, 25 eignir í sérbýli,
fimm atvinnuhúsnæði voru
seld, 15 sumarhús og annars-
konar eignir voru tvær. Með-
alverð seldra eigna í þessum
viðskiptum var 44,8 millj-
ónir fyrir sérbýli, 36,8 millj-
ónir í fjölbýli og meðalverð
sumarhúsa var 28,9 milljónir
króna. -mm
Tíu milljarðar í
tekjufallsstyrki
LANDIÐ: Ríkissjóður hafði
undir lok síðustu viku greitt
út hátt í tíu milljarða króna
í tekjufallsstyrki sem ætlað
er að aðstoða rekstraraðila,
þ.m.t. einyrkja, sem orð-
ið hafa fyrir tekjufalli vegna
heimsfaraldurs kórónuveiru.
Um 2,3 milljarðar til viðbót-
ar hafa verið greiddir í við-
spyrnustyrki. Skattinum,
sem fer með framkvæmd úr-
ræðanna, höfðu þá borist um
4.700 umsóknir og var búið
að afgreiða um 85% um-
sóknanna. -mm
Jörvagleði var haldin í Dölum á
laugardaginn og var hátíðin rafræn
í ár. Ákveðið var að tilnefna Dala-
mann ársins á hátíðinni og gátu
íbúar sent inn tilnefningar. Þor-
grímur Einar Guðbjartsson for-
maður menningarmálanefndar
Dalabyggðar kynnti niðurstöður og
sagði hann fjölda manns hafa tek-
ið þátt í að tilnefna samferðamenn
sína. Einnig var fjöldi Dalamanna
sem hlutu tilnefningar en Bragi
Þór Gíslason hlaut yfirburða fjölda
tilnefninga og var það einróma álit
menningarmálanefndar að útnefna
hann sem Dalamann ársins 2021.
Með tilnefningunum voru færð
rök fyrir valinu og var Bragi Þór
sagður vera bjartsýnn, dugleg-
ur, hugmyndaríkur og góð fyrir-
mynd fyrir unga fólkið auk þess
sem hann er sagður leggja sig fram
við að þjónusta fólk með gleði og
létta lund. „Hann hefur á stuttum
tíma komið sér fyrir hér í Búðar-
dal, keypt sér hús og byggt upp fyr-
irtæki,“ sagði Þorgrímur í ávarpi
sínu. Þá þykir það aðdáunarvert
hversu góður Bragi Þór er að finna
lausnir til að láta fyrirtækið sitt
ganga þó lítið sé um ferðamenn
og treysta þurfi á viðskipti heima-
manna. Bragi Þór rekur sem kunn-
ugt er veitingastaðinn Veiðistaðinn
og ísbúð í sama húsnæði í Búðar-
dal.
arg
Eitt af því sem einkennt hef-
ur Snæfellsnes síðustu ár er mik-
il og góð samvinna þvert á sveit-
arfélög. Má segja að samstarf og
samvinna í hinum ýmsu birtingar-
myndum sé orðin ein af sérstöðum
Snæfellsness. Samstarf á sér langa
sögu en sífellt er verið að auka þar
í. Svæðisgarðurinn Snæfellsnes var
til að mynda stofnaður árið 2014
af sveitarfélögunum fimm sem og
félögum úr atvinnulífi og stéttar-
félagi. Svæðisgarðurinn er sá eini
sinnar tegundar á landinu enn sem
komið er og því má segja að Snæ-
fellingar séu frumkvöðlar í sam-
starfi sveitarfélaga. Það er á veg-
um Svæðisgarðsins sem tengiliðir
allra sveitarfélaganna, þjóðgarðs-
ins Snæfellsjökuls, byggðasafns-
ins og Umhverfisvottunarverkefn-
is Snæfellsness hittast alla mánu-
dagsmorgna á snörpum fjarfundi
og segja góðar fréttir af Snæfells-
nesi. Þannig skapast einstakt rými
fyrir samvinnu og samtal sem og
að tryggja upplýsingaflæði milli
sveitarfélaga og stofnana.
Aðspurð segir Ragnhildur Sig-
urðardóttir, framkvæmdastjóri
Svæðisgarðsins, að svona sam-
tal skili miklu. „Oft sér fólk ekki
fréttapunktinn í því sem er að ger-
ast fyrir framan nefið á því sjálfu
en í samtalinu koma oftast fram
fréttir sem við viljum segja og svo
hjálpumst við að við að finna þeim
rétta farveginn. Þó að dagskráin
sé stutt er farinn fréttahringur hjá
þátttakendum. Ef eitthvað sérstakt
samvinnuverkefni er á döfinni
er kafað nánar ofan í það og svo
er örlítill gluggi fyrir önnur mál.
Rauði þráðurinn er að þessi fund-
ur er fyrir tilbúin verkefni sem við
viljum segja frá, um góðar fréttir af
Snæfellsnesi,“ segir Ragnhildur.
hs
Síminn hefur með bréfi til not-
enda talsímaþjónustu í dreifbýli til-
kynnt um fyrirhugaða lokun á tal-
símasambandi yfir koparlínur. Í
bréfi til ábúenda á jörð á Mýrum,
sem Skessuhorn hefur undir hönd-
um, kemur fram að eftir um mán-
uð muni Síminn loka gamla heima-
símakerfinu sem styðst við kopar-
línur og hefur þjónað landsmönn-
um í yfir 35 ár. Í einhverjum til-
fellum mun þessi breyting ekki
koma að sök, þar sem víða er búið
að leggja ljósleiðara, en það á þó
alls ekki við á öllum stöðum t.d. í
Borgarbyggð þar sem ekki er búið
að leggja ljósleiðara í allar sveitir
dreifbýlisins. Þar sem þannig háttar
til er sumsstaðar hægt að treysta á
4G samband en því fer fjarri að það
eigi við á öllum stöðum.
Óskar Þór Óskarsson á Tröðum
á Mýrum er einn þeirra sem feng-
ið hafa fyrrnefnt bréf frá Símanum.
Hann segir í samtali við Skessu-
horn að þessi niðurlagning á þjón-
ustu Símans sé engan veginn tíma-
bær. „Þetta er afar bagalegt þar sem
fastlínusambandið hér í sveit um
jarðsíma er eina sambandið sem
raunverulega virkar. Hér er far-
símasambandið mjög lélegt og ekki
verið lagður ljósleiðari,“ segir Ósk-
ar. Svipaða sögu er að segja víðar á
svæðinu, til að mynda í Hítardal þar
sem símafyrirtækjunum hafa verið
afar mislagðar hendur að koma á
fjarskiptasambandi; ekkert farsíma-
samband og stopult netsamband.
„Það er ekki verið að mylja undir
okkur sveitavarginn,“ sagði Ósk-
ar sem kveðst ósáttur. Hann segist
ætla að setja sig í samband við for-
svarsmenn Símans og leita nánari
skýringa á þessari ótímabæru nið-
urlagningu lífsnauðsynlegrar þjón-
ustu.
mm
Loka gömlu símalínunum þrátt fyrir
stopult fjarskiptasamband
Óskar Þór á Tröðum segist núna
taka hvert langlínusamtalið á
fætur öðru og muni halda því
áfram næstu fimm vikurnar áður
en lokað verður á hann. Hann
bókstaflega hangi í símanum!
Bragi Þór Gíslason er Dalamaður ársins
Bragi Þór Gíslason, Dalamaður ársins 2021, og Þorgrímur Einar Guðbjartsson,
formaður menningarmálanefndar Dalabyggðar. Ljósm. Jóhanna María
Sigmundsdóttir
Skjáskot af streymisfundi sem fram fór 19. apríl síðastliðinn.
Góðar fréttir af Snæfellsnesi