Skessuhorn - 28.04.2021, Blaðsíða 4
MiðVikUDAGUR 28. ApRÍL 20214
Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 3.877 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 3.348. Rafræn áskrift kostar 3.040 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.800 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Gunnhildur Lind Hansdóttir glh@skessuhorn.is
Finnbogi Rafn Guðmundsson frg@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Þvagleki fyllti mælinn
Nýverið færði ég mikilvægi húmors í tal á þessum vettvangi og spaugi-
legan misskilning. Trú mín er að líklega gæti verið til bóta að vera á létt-
ari nótunum eitthvað lengur, allavega fram á vorið þegar búið verður að
sprauta þorra fólks. Nóg er af þungum fréttum þessa dagana og engu við
þær að bæta. Á öldum samfélagsmiðla sá ég bráðgóða færslu fyrir skömmu.
Um var að ræða samantekt á fleygum setningum sem brugðið hefur fyrir í
sjúkraskrám íslenskra lækna. Í lok langra vakta á heilbrigðisstofnunum geta
ambögur vissulega ratað í skrárnar, einkum ef skrifað er niður í flýti. Eru
læknaritararnir ekki öfundsverðir. Misheyra jafnvel það sem talað er óskýrt
inn á bandið. Hér eru nokkur sýnishorn:
Fékk aðsvif, man ekkert þar til hann vaknar í rúminu með tvær hjúkkur.
Fær stundum blæðingar úr vinstra nefi.
Hægðirnar hafa sama lit og hurðin á deild 9.
Stundum líður sjúklingi betur, stundum verr, stundum ekki neitt.
Uppköstin hurfu síðdegis, sömuleiðis makinn.
Sjúklingi er aftur orðið illt í verknum.
Eitillinn sendur sama dag og sjúklingurinn í leigubíl til Reykjavíkur.
Sjúkl. er ekki alltaf ill, bara oftast nær.
Mat fær hann frá syni sínum sem er í frystinum.
Fékk hjólastól og ekur héðan til Hafnarfjarðar.
Sjúkl. er upplýstur um niðurstöðu krufningar.
Sjúklingur vegur 78 kg heima áður en hann kemur hingað án klæða.
Ekkja, býr með frískum eiginmanni.
Dó af kransæðastíflu, síðan lungnabjúg.
Andnauð á Spáni, gengur yfir.
Nýkominn til landsins frá Egilsstöðum.
Grunur vaknaði um vöðvabólgu í Borgarnesi.
Ástæða komu: Öndun.
Það vottast hér með að XXXX er handarbrotin og getur ekki sinnt sínum
eiginmanni eins og áður.
Þungun í legi, óvíst hvað veldur.
Það eru engir útlimir á fótum.
Það vottar fyrir gyllinæð hægra megin á kálfa.
Við skoðun á sjúklingi kemur fram áberandi kyndeyfð.
Það sem fyllti mælinn var þvagleki.
Þessi maður veit ekkert um skyldleika í ætt.
Sjúklingur er fertug, að öðru leyti ekkert athugavert.
Sjúklingur er tilfinningalaus frá tá og niður úr.
Sjúklingur fékk vöfflur í morgunmat og kominn með lystarstol í hádeg-
inu.
Sjúklingur fær verki í bringuna ef hún liggur á vinstri hlið lengur en eitt
ár.
Sjúklingur hefur aldrei fundið fyrir þessum verkjum nema þegar hann
vaknar upp í sumarbústað.
Sjúklingur hefur við gott heilsufar að stríða.
Á öðrum degi var hnéð betra en á þriðja degi var það alveg horfið.
Hún rann til á svelli og virðist sem lappirnar á henni hafi farið í sitthvora
áttina í byrjun desember.
Skoðun við komu leiðir í ljós unglingspilt.
Magnús Magnússon
Ríkissjóður hefur selt Dalabyggð
neðri hæð hússins við Miðbraut
11 í Búðardal en þar hafði sýslu-
mannsembættið aðstöðu áður en
það var lagt niður. Sveitarstjórn
staðfesti kaup á húsnæðinu á fundi
sínum 15. apríl síðastliðinn og er
kaupverðið 3,5 milljónir króna.
Áður hafði sveitarstjórn falast eft-
ir því við Fasteignir ríkisins að fá
að nota húsnæðið endurgjaldslaust
og koma þar upp nýsköpunarsetri.
Þeirri beiðni var hafnað en hús-
næðið boðið til kaups gegn vægu
verði. Heildar eignarhluti sem um
ræðir er 238,4 fermetrar samkvæmt
eignaskiptayfirlýsingu. Fermetra-
verðið er því tæpar 14.700 krónur.
mm
Skessuhorni berast reglulega
ábendingar um bíla sem verða fyr-
ir tjóni af völdum hrossa við rætur
Akrafjalls. Þegar ekið er að Akra-
fjalli er farið í gegnum land sem er
í einkaeigu þar sem oft eru hross á
beit. Hrossin eiga þar heima, eru
fremur mannelsk, taka bílum gjarn-
an fagnandi og hafa sóst í að naga
á þeim lakkið. Því er mikilvægt að
minna göngugarpa á þessu svæði á
að leggja bílunum alltaf innan af-
girts bílastæðis við rætur fjallsins og
sömuleiðis að leggja ekki það ná-
lægt girðingunni að hestarnir geti
náð til bílanna.
arg/ Ljósm úr safni
Stykkishólmsbær greinir frá því á
vef sínum að tímabundið skýli fyr-
ir sjósundskappa, til að hafa fata-
skipti í, hafi verið reist við Móvík
og jafnframt að stigi með hand-
riði hafi verið lagður niður í fjör-
una. Jafnframt segir að bænum hafi
borist ábending frá íbúa þar sem at-
hygli hafi verið vakin á því að hópur
fólks í bæjarfélaginu stundi sjósund
af miklu kappi. Hópurinn hafi fyrst
komið saman í ágúst 2019 og kall-
að sig Sjósundsfélag Stykkishólms.
Hópurinn hafi alla jafnan haldið til
sjós úr Móvík en einnig úr Nesvog-
inum, en að samkvæmt skýrslu um
hreinleika sjávar umhverfis Stykk-
ishólm sé ljóst að Móvíkin henti
einkar vel til sjósunds.
Þá segir að Móvíkin sé skjólsæl
en eftir þungan vetur hafi víkin
fyllst af þangi og grjóti sem hafi
gert sjósundsfélögum erfitt fyrir.
„Í maí 2020 var óskað eftir því að
Stykkishólmsbær kæmi til aðstoðar
við hreinsun fjörunnar af þangi og
grjóti og sú beiðni lögð fyrir bæ-
jarráð, sem svo óskaði eftir fundi
með Sjósundsfélagi Stykkishólms.
Í ágúst 2020 mættu fulltrúar sjó-
sundsfélagsins á 617. fund bæjar-
ráðs Stykkishólmsbæjar þar sem
þær gerðu grein fyrir starfsemi fé-
lagsins og óskum sínum um lag-
færingar á aðstöðu í Móvík. En
hópurinn gekk strax um með stóra
drauma hvað varðar aðstöðu, lítið
hús við Móvík svo hægt væri að
klæða sig í skjóli og sauna til að ylja
sér eftir sundsprettinn.
Í fréttinni á vef Stykkishólmsbæ-
jar er vakin athygli á að um sé að
ræða tímabundna ráðstöfun sem
verði endurskoðuð þegar opnað
verður á úthlutun lóða í Víkurh-
verfinu, en ekki er útilokað að slík
aðstaða og íbúabyggð geti farið vel
saman sem myndi leiða af sér skip-
ulagsbreytingar á svæðinu. frg
Dalabyggð kaupir húsnæði
sýslumannsskrifstofunnar
Hestar gætu nagað
bíla fjallgöngufólks
Nýja sjósundsskýlið er komið í notkun. Ljósm. sá.
Sjósundsskýli reist
í Stykkishólmi
Bætt aðstaða til sjósunds í Móvík