Skessuhorn - 28.04.2021, Qupperneq 9
MiðVikUDAGUR 28. ApRÍL 2021 9
FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ
Frumherji hf. Þarabakki 3 109 Reykjavík www.frumherji.is
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
02
1
Óskast í 60–70% starf
Við leitum að starfskrafti sem hefur góða þjónustulund, er áreiðanlegur,
getur starfað sjálfstætt og hafið störf sem fyrst.
Starfið
Móttaka viðskiptavina•
Almenn afgreiðsla við skoðun og skráning bíla•
Skráningar í tölvu•
Símsvörun •
Almenn þrif í afgreiðslu•
Hæfniskröfur
Hæfni í mannlegum samskiptum•
Góð þjónustulund•
Almenn tölvukunnátta•
Góð íslenskukunnátta•
Umsóknir sendist á netfangið starf@frumherji.is
Öllum umsóknum verður svarað og þær meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður verkefnastjóri / starfsmannamál í s. 570 9144.
Frumherji hf. var stofnað árið 1997 og starfar fyrirtækið við ýmiskonar skoðanir og prófanir
ásamt annarri tengdri þjónustu. Frumherji starfar nú á átta mismunandi sviðum á um 30
stöðum á landinu og eru flest starfssvið fyrirtækisins rekin samkvæmt
viðurkenndum gæðastöðlum.
Starfskraft vantar í afgreiðslu í Borgarnesi
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Minnum á að Kjölur og fleiri
félög verða með dagskrá á RÚV
kl. 13. á baráttudeginum 1. maí
Bæjarstjórn Akraness samþykkti
árið 2019 að innleiða verkefnið
Heilsueflandi samfélag í samstarfi
við embætti Landlæknis og Íþrótta-
bandalag Akraness. Meginmark-
mið Heilsueflandi samfélags er að
styðja samfélagið á Akranesi við að
skapa umhverfi og aðstæður sem
stuðla að heilbrigðum lifnaðarhátt-
um, heilsu og vellíðan allra íbúa.
Markmið Heilsueflandi samfélags
á Akranesi eru einnig að sveitarfé-
lagið verði sjálfbærara, skilvirkara
og eftirsóknarverðara til búsetu,
t.d. með því að auka jöfnuð meðal
íbúa þess.
Heilsueflandi samfélag á Akra-
nesi stendur nú fyrir hreyfingar-
átaki Skagamanna sem kallast
„Skagamenn umhverfis jörðina.“
Brottför í ferðina umhverfis jörð-
ina verður 3. maí næstkomandi og
heimkoma væntanleg 30. maí.
Teknar hafa verið saman gagn-
legar upplýsingar fyrir þátttakend-
ur:
Hversu langt er ferðalagið?
Já það er ekki nema 40.075,017
km.
Hvernig ferðast ég?
Þú reimar á þig góðan skóbún-
að og klæðir þig eftir veðri og ferð
út að ganga, hlaupa eða hjóla. Öll
hreyfing utandyra telur!
Hvernig skrái ég hreyfinguna?
Þú skráir hreyfinguna inn á
Strava. Þar er hópur sem heitir
„Skagamenn umhverfis jörðina”.
Stillir forritið á „run” og leggur af
stað. Saman söfnum við kílómetr-
um!
Hvert er markmiðið?
Það er að ganga frá Akranesi og
umhverfis jörðina í því markmiðið
að efla lýðheilsu skagamanna.
Taktu þátt í skemmtilegu ferða-
lagi og förum SAMAN umhverfis
jörðina!
frg
Skagamenn ferðast
umhverfis jörðina