Skessuhorn - 28.04.2021, Síða 12
MiðVikUDAGUR 28. ApRÍL 202112
Síðdegis á sunnudaginn lá fyrir nið-
urstaða í forvali hjá Vinstri hreyfing-
unni grænu framboði í Norðvestur-
kjördæmi. Valið var í fimm efstu sætin
á framboðslista hreyfingarinnar fyrir
kosningarnar í haust og var kosningin
rafræn. Á kjörskrá voru 1.454 og nýttu
72% kosningarétt sinn.
Í fyrsta sæti varð Bjarni Jónsson
varaþingmaður og fiskifræðingur á
Sauðárkóki. Felldi hann því Lilju Raf-
neyju Magnúsdóttur sem verið hefur
þingmaður kjördæmisins síðustu tvö
kjörtímabil en Lilja gaf kost á sér til
forystu áfram. Hún hafnaði hins veg-
ar í öðru sæti. Þetta er í annað skipti á
fimm árum sem Bjarni og Lilja takast
á í forvali. Árið 2016 bar Lilja Rafney
sigur úr býtum með litlum mun, en
fyrir fjórum árum var stillt upp á lista.
Niðurstaðan úr forvalinu varð
þessi:
1. sæti Bjarni Jónsson með 543 at-
kvæði í 1. sæti
2. sæti Lilja Rafney Magnúsdóttir
með 565 atkvæði í 1.-2. sætið
3. sæti Sigríður Gísladóttir með
444 atkvæði í 1.-3. sæti
4. sæti Þóra Margrét Lúthersdóttir
með 622 atkvæði í 1.-4. sæti
5. sæti Lárus Ástmar Hannesson
með 679 atkvæði í 1.-5. sæti.
mm
Engin kröfuganga verður farin á
Vesturlandi þann 1. maí í ár vegna
samkomutakmarkana, annað árið
í röð. Þetta staðfestu Vilhjálm-
ur Birgisson, formaður Verkalýðs-
félags Akraness, og Signý Jóhann-
esdóttir, formaður Stéttarfélags
Vesturlands, í samtali við Skessu-
horn.
Miðstjórn ASÍ samþykkti á fundi
sínum 17. mars að slagorðið fyrir
1. maí 2021 yrði „Það er nóg til.“
Í samþykktinni segir m.a.: „Það er
nóg til“ er orðatiltæki sem allir Ís-
lendingar þekkja og nota gjarnan
þegar gest ber að garði. Fólki er
boðið að njóta veitinga með við-
kvæðinu „fáðu þér, það er nóg til“.
„En undirliggjandi meining er
ekki síður „ekki vera feimin við að
fá ykkur, við viljum deila með ykk-
ur.“ Afkoma samfélagsins á Íslandi
á fyrri hluta 21. aldarinnar er þrátt
fyrir allt með því allra besta sem
þekkt er í sögunni. Við búum í landi
sem er ríkt af auðlindum – bæði af
hendi náttúrunnar og mannauði.
Með góðum vilja og réttum ákvörð-
unum getum við öll notið mann-
sæmandi lífskjara á Íslandi. Hægur
er vandinn, það er nóg til.“
Formennirnir minna á útsend-
ingu RÚV frá sérstakri skemmti-
og hvatningardagskrá, Byggjum
réttlátt þjóðfélag, sem flutt er í
Hörpu í tilefni baráttudags verka-
lýðsins. Landsþekktir tónlistar-
menn, skemmtiatriði og hvatning-
arorð frá forystu verkalýðshreyf-
ingarinnar einkenna þennan sögu-
lega viðburð. Að dagskránni standa
eftirfarandi heildarsamtök launa-
fólks: ASÍ, BHM, BSRB og kÍ. Út-
sendingin hefst kl. 17:10. frg
Framboðslisti Framsóknarflokksins í Norðvesturkjör-
dæmi fyrir alþingiskosningarnar 25. september var sam-
þykktur með öllum greiddum atkvæðum á fjölmennu,
en rafrænu, aukakjördæmisþingi 20. apríl síðastliðinn.
póstkosning um fimm efstu sæti listans fór fram síðla
vetrar þar sem röðun í efstu fimm sætin var ákveðin.
Listinn í heild er þannig:
1. Stefán Vagn Stefánsson, Sauðárkróki - Yfirlögreglu-
þjónn og forseti sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skaga-
fjarðar
2. Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Borgarbyggð - Há-
skólanemi og formaður Sambands ungra Framsóknar-
manna
3. Halla Signý kristjánsdóttir, Önundarfirði - Alþingis-
maður
4. Friðrik Már Sigurðsson, Húnaþingi vestra - Bóndi og
formaður byggðarráðs Húnaþings vestra
5. iða Marsibil Jónsdóttir, Vesturbyggð - Skrifstofu- og
mannauðsstjóri og forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar
6. Elsa Lára Arnardóttir, Akranesi - Aðstoðarskólastjóri,
formaður bæjarráðs Akraneskaupstaðar og fv. alþingis-
maður
7. Þorgils Magnússon, Blönduósi - Skipulags- og bygg-
ingarfulltrúi
8. Gunnar Ásgrímsson, Sauðárkróki - Háskólanemi
9. kolbrún Ösp Guðrúnardóttir, Stykkishólmi - Nemi
10. Jóhanna María Sigmundsdóttir, Búðardal - Verk-
efnastjóri og fv. alþingismaður
11. Ragnheiður ingimundardóttir, Strandabyggð -
Verslunarstjóri
12. Gauti Geirsson, Ísafirði - Nemi
13. Sæþór Már Hinriksson, Sauðárkróki - Tónlistar-
maður
14. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, Borgarbyggð - Lög-
reglumaður
15. Sigurdís katla Jónsdóttir, Dalabyggð -Nemi
16. Sveinn Bernódusson, Bolungarvík – Járnsmíðameist-
ari. mm
Sveitarsjóður Dalabyggðar var
gerður upp með 42,9 milljóna
króna hagnaði á árinu 2020 en árs-
reikningurinn var lagður fram til
fyrri umræðu 15. apríl síðastliðinn.
Rekstrartekjur A og B hluta sveitar-
sjóðs námu 993 milljónum króna. Á
síðasta ári greiddu íbúar 14,52% út-
svar, eða lögbundið hámark. Álagn-
ingahlutfall fasteignaskatts var
0,50% í A-flokki sem er lögbund-
ið hámark, í B-flokki nam álagn-
ingarhlutfallið 1,32% sem einnig
er lögbundið hlutfall og í C-flokki
nam álagningarhlutfallið 1,50% en
lögbundið hámark þess er 1,32%.
Sveitarstjórnir hafa heimild til að
hækka álagningarhlutfall í A og
C-flokki um allt að 25% umfram
framangreind hámörk.
Eigið fé sveitarfélagsins í árslok
2020 nam 855,6 milljónum króna
samkvæmt efnahagsreikningi en
eigið fé A hluta nam 766,5 millj. kr.
Á fundi sveitarstjórnar var reikn-
ingurinn staðfestur og samþykkt að
vísa honum til síðari umræðu og af-
greiðslu í sveitarstjórn. mm
Þrjú efstu sætin skipa þau Bjarni, Lilja Rafney og Sigríður.
Bjarni Jónsson er sigurvegari
í forvali VG
Framboðslisti Framsóknar
samþykktur
Framsóknarflokkurinn á nú tvo þingmenn í kjördæminu. Þau leiða framboðslistann að þessu sinni; Stefán Vagn Stefánsson
og Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir.
Frá Búðardal. Ljósm. sm.
Rekstur Dalabyggðar
jákvæður um 43
milljónir króna
Engin kröfuganga
farin 1. maí