Skessuhorn - 28.04.2021, Síða 14
MiðVikUDAGUR 28. ApRÍL 202114
Aflabrögð hafa verið mjög góð í
Snæfellsbæ eftir að hrygningar-
stoppinu lauk 21. apríl síðastliðinn.
Að sögn kristjáns Sæbjörnssonar,
hafnarvarðar í Rifi, hafa aflabrögð
verið mjög góð og nefndi hann að
dragnótarbáturinn Esjar SH hafi
landað tvisvar á dag nokkra daga og
á sunnudag var hafi aflinn yfir dag-
inn verið 32 tonn í tveimur löndun-
um. Netabáturinn Bárður SH kom
með 25 til 40 tonn eftir daginn.
Einnig hafa handfærabátar verið
að fá mjög góðan afla eða 3,5 tonn.
Afli línubátanna hefur verið rokk-
andi og hafa a.m.k. þrír þeirra farið
suður til veiða eða allt frá Akranesi
og til Grindavíkur, segir kristján,
og bætir við að almennt séu sjó-
menn bjartsýnir á komandi sumar.
Sigurður Sveinn Guðmunds-
son hafnarvörður í Ólafsvík tók í
sama streng og kristján og sagði
að aflinn hafi verið mjög góður og
nefndi í því sambandi að línubátur-
inn Hafdís Sk hafi landað 17 tonn-
um eftir einn róður á sunnudag og
handfærabátarnir fengið góðan afla
svo það er yfir engu að kvarta hér,
sagði Sigurður.
Guðmundur Ívarsson hafnar-
vörður á Arnarstapa sagði að á
sunnudag hafi verið fjórir hand-
færabátar á sjó og allir með yfir
tonnið. „Það eru komnir 12 hand-
færabátar nú þegar hingað á Arnar-
stapa og þegar strandveiðibátarnir
fara að koma má búast við að fjöldi
báta sem landa hér í sumar verði á
bilinu 40 til 50 og þá færist heldur
betur líf í tuskurnar,“ sagði Guð-
mundur. af
Nú styttist í að strandveiðitimabilið
hefjist en bátar mega halda á mið-
in mánudaginn 3. maí. Trillukarlar
eru því í óða önn að gera báta sína
klára fyrir sumarið og hafa nokkr-
ir sett á flot. Á meðfylgjandi mynd
eru bræðurnir Hjörleifur og Al-
bert Guðmundssynir að setja einn
öflugasta strandveiðibátinn í Snæ-
fellsbæ á flot; Geisla SH sem er í
eigu Hjörleifs en Albert stendur á
stefni bátsins. af
Bjargmundur Grímsson fór sinn
fyrsta róður á báti sínum Hafrún
SH á sunnudaginn. Almennt tala
menn um það í Ólafsvík að vorið
sé komið þegar Beggi hefur sjósett
bát sinn. „Þetta gekk fínt í dag,“
sagði Beggi eftir sinn fyrsta túr.
„Ég fór út um hádegið og var kom-
inn í land rétt fyrir kvöldmat. Já,
já, ég var sáttur með daginn, þetta
vigtaði 700 kíló og ég er bara sátt-
ur við það,“ sagði Beggi brosandi.
„Það var stutt á miðin. Ég er með
smá kvóta á bátnum og það dugar
mér allavega í sumar. Ég er á litlum
hæggengum báti svo ég get nú ekki
farið langt til að sækja aflann,“ bæt-
ir hann við. af
Sjávarútvegsráðherra hefur undir-
ritað reglugerð þess efnis að afla-
mark í ýsu verði aukið um 8.000
tonn á yfirstandandi vertíð. Það
fer því úr 44.419 tonnum í 52.419
tonn. Sú hækkun verður dregin frá
því aflamarki sem annars yrði út-
hlutað á fiskveiðiárinu 2021/2022.
Tilefni þessarar ákvörðunar eru
erfiðleikar sem rekja má til mikillar
ýsugengdar á veiðisvæðum við Ís-
land en þann 21. apríl var búið að
veiða rúmlega 90% aflaheimilda í
ýsu fyrir yfirstandandi fiskveiðiár.
Hafrannsóknarstofnun og Fiski-
stofa taka undir að nauðsynlegt sé
að bregðast við vandanum. Í áliti
Hafrannsóknarstofnunar segir:
„Eins og fram hefur komið telur
ráðuneytið ekki aðrar færar leiðir
til að taka á vandanum, að óbreytt-
um lögum, en þá að auka aflamark.
Hafrannsóknastofnun leggst ekki
gegn því að aflamark verði auk-
ið á yfirstandandi fiskveiðiári enda
verða heimildirnar dregnar frá því
aflamarki sem annars yrði úthlutað
á fiskveiðiárinu 2021/2022, sam-
kvæmt samþykktri aflareglu.
„Stofnunin bendir á að aukningin
nú gæti valdið því að svipaður vandi
komi upp á næsta fiskveiðiári og því
mikilvægt að öllum verði ljóst að
aukningin nú verði til frádráttar á
komandi fiskveiðiári. Slík skilaboð
samhliða úthlutun gætu stuðlað að
því að ekki verði farið í aukna beina
sókn í ýsustofninn sem aukið getur
á mögulegan vanda á komandi fisk-
veiðiári.“ mm
klukkan 10 árdegis á miðvikudag-
inn í liðinni viku áttu allir þorskar
í sjónum að vera búnir að hrygna,
að mati sérfræðinga Hafrannsókna-
stofnunar. Þá máttu bátar róa að
nýju. Allmargir héldu því til veiða
þá um morguninn en sumir tóku þó
forskot á sæluna og fóru út um mið-
nætti áður til að tryggja sér stæði
þótt ekki mætti setja veiðarfæri í
sjó fyrr en nákvæmlega klukkan tíu.
Áhöfnin á dragnótarbátnum Ólafi
Bjarnasyni SH 137 frá Ólafsvík, var
ekkert að stressa sig og hélt á miðin
klukkan 8.30 um morguninn.
af
Strandveiðibátarnir sjósettir
hver af öðrum
Þorskurinn lauk hrygningu klukkan tíu
Löndun úr handfærabátnum Naustvík ST í Ólafsvík síðastliðinn sunnudag.
Góð aflabrögð frá höfnum Snæfells-
bæjar eftir hrygningarstoppið
Beggi á miðunum síðastliðinn sunnudag. Ljósm. af
Vorið komið þegar Bjarg-
mundur hefur sjósett
Ýsukvótinn aukinn
um átta þúsund tonn