Skessuhorn - 28.04.2021, Side 23
MiðVikUDAGUR 28. ApRÍL 2021 23
Það var við hæfi að fara á tón-
leika undir nafninu „Sjáðu sólina“
á Sumardaginn fyrsta, en kirkju-
kór Ólafsvíkur stóð fyrir tónleik-
unum. Þema tónleikanna eins og
nafnið gefur til kynna var sólin og
gleðin yfir vori og sumarkomu.
Lögin á efnisskránni voru fjöl-
breytt; allt frá sálmum til Bítlanna.
Undirleikarar á þessum tónleik-
um voru fjórir, þau Valentina kay,
Nanna Aðalheiður Þórðardóttir,
Þorsteinn Jakobsson og Sigurð-
ur Höskuldsson en kórinn söng
einnig eitt af lögum Sigurðar,
Sjáðu sólina. Veronica Osterham-
mer kórstjóri og Jón Bjarki Jónat-
ansson tenór sungu fallegan dú-
ett sem hreif tónleikagesti sem og
öll efnisskráin. Voru tónleikagestir
sammála um að tónleikarnir hefðu
verið einstakir á margan hátt enda
ekki verið mikið um menningar-
viðburði á svæðinu undanfarið ár.
Mátti í raun vart á milli sjá hverjir
nutu tónleikanna betur; tónleika-
gestir eða flytjendurnir.
þa
Tónleikar með yfir-
skriftinni Sjáðu sólina
markaðsstjóra
Dagur í lífi...
Nafn: Líf Lárusdóttir
Fjölskylduhagir/búseta: Gift
Ragnari Gunnarssyni og við
eigum saman eina 4 ára dóttur
– Móeyju Ragnarsdóttur. Erum
búsett á Akranesi.
Starfsheiti/fyrirtæki: Mark-
aðsstjóri Terra.
Áhugamál: Ferðalög, veislu-
höld, golf, bakstur, flokkun og
skipulag að ógleymdum sam-
verustundum með fjölskyldu
og vinum.
Dagurinn: 20. apríl
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú
gerðir? Vaknaði klukkan 7 og
skellti mér í sturtu og síðan tók
við undirbúningur fyrir dag-
inn sem felur meðal annars í
sér samningaviðræður við eina
fjögurra ára um föt sem skuli
klæðast og hvað skal setja í hár-
ið. Ekki að ég hafi mikið um
það að segja lengur...
Hvað borðaðirðu í morgun-
mat? Það var sloddi í morgun-
mat! Þegar við Eyja Þóra vin-
kona mín áttum heima sam-
an í Barcelona þá gerðum við
ósjaldan hafragraut í morguns-
árið en orðið „sloddi“ var not-
að yfir grautinn í hennar fjöl-
skyldu og ég hef haldið í þetta
góða orð allar götur síðan.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Það var heimaskrif-
stofan þennan daginn svo það
var ekki langt að fara svo ferða-
lagið fór fram á tveimur jafn-
fljótum. Umhverfisvænt og
þægilegt!
Fyrstu verk í vinnunni: Fyrsta
verkefni dagsins var að fara
yfir tölur vikunnar á undan í
ákveðinni markaðsherferð sem
við erum með í gangi og deila
gleðinni með samstarfsfélög-
unum.
Hvað varstu að gera klukk-
an 10? klukkan 10 skellti ég
í einn ískaffibolla að hætti
Díönu Bergs. kosturinn við
heimaskrifstofuna er klárlega
kaffivélin en þegar ég bý til ís-
kaffið þá kaldflóa ég mjólk og
bæti við klökum og einu skoti
af expresso. Bætir og kætir!
Hvað gerðirðu í hádeginu?
Við mamma áttum stefnumót
á Café kaju en þangað förum
við ósjaldan í hádegismat þegar
ég er að vinna á Akranesi. Avo-
cado brauðið og rauðrófusafinn
eru í miklu uppáhaldi og gefur
manni góða og holla orku.
Hvað varstu að gera klukkan
14: klukkan 14 var ég að klára
rafræna kynningu fyrir fyrir-
tæki í Reykjavík um flokkun á
úrgangi. Það er klárlega eitt af
því sem að Covid bylgjan eða
bylgjurnar hafa kennt okkur
að nýta tæknina með slíkum
hætti. Þá er ég eins og í þessu
tilviki stödd á heimaskrifstof-
unni og held námskeið á net-
inu fyrir starfsfólk fyrirtækis og
þau eru jafnvel stödd heima hjá
sér líka. Ekki svo að skilja að
það er klárlega skemmtilegra
að mæta á svæðið en það er að-
allega vegna þess að þá verður
meira úr heimsókninni, ég fæ
að kynnast betur fyrirtækinu og
spjalla betur við fólkið sem þar
vinnur.
Hvenær hætt og það síðasta
sem þú gerðir í vinnunni?
Hætti klukkan 16 og síðasti
klukkutíminn fór í tölvupósta,
gamlar og nýjar syndir.
Hvað gerðirðu eftir vinnu?
Það er gaman að segja frá því
að eftir vinnu tók við skemmti-
legt og nokkuð óhefðbund-
ið verkefni, að setja saman
eitt stykki jarðgerðartunnu og
finna henni stað í garðinum.
Manninum mínum til mikill-
ar ánægju þá stefnum við nú að
því að jarðgera allan lífrænan
úrgang sem fellur til á heim-
ilinu og minnka þannig enn
frekar það magn sem fer frá
okkur í blandaðan úrgang. Ef
vel tekst til þá tekur það um ár
fyrir fjölskyldu á stærð við okk-
ar að fylla eina svona tunnu og
þá ættum við að vera komin
með prýðis góða moltu í garð-
inn næsta sumar.
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði? Í kvöldmatinn var
heimagerð grænmetissúpa sem
maðurinn minn eldaði venju
samkvæmt en hann er mjög
liðtækur í eldhúsinu. Nýbak-
að ólífubrauð og ostasalat úr
kallabakarí með. Dóttir okk-
ar fær svo góða grænmetissúpu
á leikskólanum og var búin
að biðja okkur í margar vik-
ur að gera eins súpu. Skemmst
frá því að segja að þá þurfum
við sennilega að fá uppskrift-
ina frá leikskólanum – því eft-
ir 2 klst undirbúning og elda-
mennsku, svo ekki sé minnst á
tímann sem tók að mauka nið-
ur allt grænmetið í súpunni, þá
stóð hún ekki undir væntingum
dótturinnar. En aðrir meðlimir
á heimilinu voru ánægðir með
framtakið engu að síður.
Hvernig var kvöldið? kvöld-
ið fór í stúss í kringum Jóa
tunnu (það er sem sagt nafn-
ið á jarðgerðartunnunni okk-
ar) og að setja inn myndir frá
ferlinu á instagram. Ég nefni-
lega gerði smá könnun þar um
hvort fólk vildi fylgjast með
ferlinu og áhuginn lét ekki á
sér standa. Svo ég þurfti að
standa við mína plikt sem var
svo sem ekki mikið vandamál
þegar ég var byrjuð að setja inn
myndir og smá fróðleik með,
það var frekar að það væri erf-
itt að stoppa. Enduðum síðan
á einum Billions sem er þátta-
sería sem við Raggi erum með
í gangi núna, popp og suðu-
súkkulaði í skál og allir glaðir.
Hvenær fórstu að sofa? Ætli
klukkan hafi ekki verið að nálg-
ast ellefu þegar ég fór að sofa.
Það er markmið þessa dag-
ana að vera komin upp í rúm í
kringum tíu en þið vitið, lífið
og allt það.
Hvað var það síðasta sem
þú gerðir áður en þú fórst
að hátta? Eins og ég vildi
óska að ég gæti sagt hér frá
því hvernig ég lauk við aðra
af tveimur bókunum sem
bíða orðið örvæntingarfullar
á náttborðinu að þá var það
ekki alveg svo gott heldur
var síðasta verkið innihalds-
laust „vafr á instagram“
Hvað stendur uppúr eft-
ir daginn? klárlega ævintýr-
ið með Jóa tunnu og svipur-
inn á manninum mínum sem
fékk það heiðurshlutverk að
hella fyrsta skammtinum af
lífrænum úrgangi úr eldhús-
inu sem við höfum safnað
saman síðustu daga í tunn-
una. Í blíðu og stríðu minnti
ég hann á.
Eitthvað að lokum? Áfram
ÍA og gleðilegt sumar, von-
andi fáum við að njóta þess
að vera með fólkinu okkar í
sumar og ferðast, já og halda
eins og eina eða tvær veislur!
vaks
Líf Lárusdóttir markaðsstjóri Terra.
Hugað að Jóa tunnu, nýju jarðgerðartunnunni á heimilinu.