Skessuhorn - 05.05.2021, Blaðsíða 9
miðvikudagur 5. maí 2021 9
859.000 + vsk. 1.190.000 + vsk.
3.690.000 + vsk.
Einfaldur vökvastýrður dreifari með
upphækun og loki. Tekur 1.500 lítra og er
með stillanlega kastlengd frá 9-18 m.
Vökvastýrður dreifari með upphækkun,
loki og jaðarbúnaði. Tekur 1.500 lítra og
kastlengd frá 12-24 m.
Fullkominn GPS dreifari sem er búinn öllu því
helsta sem þarf til að ná sem bestum árangri við
áburðardreifingu. Hann tekur 3.000 lítra með
upphækkun og loki og kastlengd er 18-28 m.
Er með vigt og 3D jaðarbúnaði.
Hún Áslaug Þorsteinsdóttir starf-
ar í Fjöliðjunni á akranesi og sinn-
ir þar einkum móttöku og talningu
drykkjarvöruumbúða. Áslaug hefur
frá árinu 2004 búið í þjónustuíbúð
sem Öryrkjabandalagið á við Eyrar-
flöt á akranesi en hún er Borgfirð-
ingur að ætt og uppruna en flutt-
ist á akranes þegar hún hóf nám
í Fjölbrautaskóla vesturlands árið
1993. Áslaug hefur verið dugleg að
rækta líkama og sál samhliða því
að vinna í Fjöliðjunni. Hún tekur
virkan þátt í ýmsu félagsstarfi, æfir
sund og boccia, er í perlusaumi og
hestamennsku á sumrin. kærastinn
hennar og vinnufélagi heitir ró-
bert Örn kristjánsson. Hann býr
í Herdísarholti en heimsækir Ás-
laugu og oft elda þau saman góðan
mat um helgar eða panta sér pizzu.
En Áslaug er ekki ein á heimilinu.
Hún á tvo gára, páfagaukana Tinnu
og Pílu en sömuleiðis á hún dúkku-
dæturnar Ásdísi Birtu og daníelu.
„mér finnst mjög skemmtilegt
og gefandi að vera með dúkku-
börn. Fyrst fékk ég daníelu árið
2019 og Ásdís Birta bættist svo við
á þessu ári. Ég vildi hafa þær tvær
stelpurnar mínar. Þær eru allt-
af hjá mér og eru þá ýmist í stól-
unum sínum að horfa á sjónvarpið
eða úti í vagni og ég læt þær sofa
úti á svölum. Svo fer ég oft út að
hjóla með þær,“ segir Áslaug. Hún
segir að það sé ekkert vandamál að
fá föt á dúkkubörn, hún kaupi þau
ýmist í Lindex eða fer í Búkollu
þegar nytjamarkaðurinn þar er op-
inn. „við erum fjórar sem eigum
dúkkubörn hérna á akranesi. Ég
kynntist dúkkubörnum fyrst hjá
konu sem bjó á Selfossi en býr nú á
Eyrarbakka. En það er fullt af kon-
um á landinu sem eiga dúkkubörn.
daníela og Ásdís Birta veita mér
mikla ánægju og það er gaman að
geta hugsað um þær,“ segir Áslaug
Þorsteinsdóttir.
mm
Áslaug með Ásdísi Birtu til vinstri og Daníelu.
Nýtur þess að eiga dúkkubörn