Skessuhorn


Skessuhorn - 05.05.2021, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 05.05.2021, Blaðsíða 6
miðvikudagur 5. maí 20216 Breyttur opnunartími Guðlaugar AKRANES: um síðustu helgi tók við sumaropnunartími í guðlaugu við Langasand á akranesi. í sumar verður laug- in opin alla daga vikunnar: Á mánudögum, þriðjudögum, fimmtudögum og föstudögum frá kl. 12-20, á miðvikudögum og laugardögum frá kl. 10-18 og á sunnudögum frá kl. 10-20. miðað við gildandi sóttvarna- reglur geta nú 20 manns ver- ið ofan í lauginni í einu og eru gestir beðnir um að halda fjar- lægð eftir bestu getu. Þá eru sundlaugargestir beðnir um að koma inn í gæsluhús áður en farið er ofan í þar sem tekið er niður nafn og símanúmer við- komandi. -vaks Linda læknir hættir BORGARNES: Linda krist- jánsdóttir yfirlæknir á heilsu- gæslu HvE í Borgarnesi hef- ur tilkynnt að hún muni láta af störfum um miðjan júní. Linda kom til starfa í Borgarnes árið 2003 og á því að baki 18 ár í Borgarnesi. í tilkynningu sem Linda sendi frá sér þakkaði hún fyrir sig og sagðist vera reynsl- unni ríkari eftir þennan tíma. -arg Kynntu við- spyrnuúrræði LANDIÐ: ríkisstjórnin kynnti fyrir helgi á annan tug aðgerða vegna framlengingar eða inn- leiðingar á ýmsum reglum til að mæta afleiðingum Co- vid-19. Þeirra á meðal er sér- stakur 30 þúsund króna barna- bótaauki til þeirra sem fá tekju- tengdar barnabætur, ný ferða- gjöf, framlengd úttekt séreign- arsparnaðar, framlenging og útvíkkun viðspyrnustyrkja og lokunarstyrkja, hliðrun á end- urgreiðslutíma stuðningslána, eingreiðsla til langtímaatvinnu- lausra og aukin framlög til geð- heilbrigðismála barna og ung- menna. Þá verður líkt og síðast- liðið sumar boðið upp á sumar- lán fyrir námsmenn fyrir skóla- árið 2020 – 2021 vegna Co- vid-19 og námsmönnum gert mögulegt að fá viðbótarlán fyr- ir skólaárið 2021 – 2022 sem nemur 6% álagi á grunnfram- færslu framfærslulána. -mm Blekkingar í tölvupóstum VESTURLAND: mikið hef- ur borið á því að vestlending- um berist tölvupóstar með til- kynningum sem virðast vera frá Póstinum, dHL og fleirum. Þessir póstar innihalda skilaboð sem ætluð eru til þess að blekkja viðtakendur til þess að láta fé af hendi rakna til óprúttinna aðila. Þessir póstar eiga það sammerkt að vera afskaplega fagmannlega unnir. Lögreglan varar fólk við að leggja trúnað á slíka pósta, sérstaklega ef viðkomandi á alls ekki von á neinni sendingu. -frg Þriðjungur fyrstu kaupendur VESTURLAND: Þjóðskrá heldur utan um skráningu á fjölda þinglýstra fasteignasamn- inga á landinu. Á fyrsta árs- fjórðungi þessa árs voru 143 fasteignasölur á vesturlandi. af þessu viðskiptum voru 46, eða 32%, fólk sem var að kaupa sína fyrstu fasteign á lífsleiðinni. Þetta hlutfall er nokkuð mis- munandi eftir landshlutum, er lægst á Norðurlandi eystra 25% en hæst á Norðurlandi vestra þar sem það er 36%. Þjóðskrá fór að safna þessum upplýsing- um eftir að lög um heimild til lægri stimpilgjalda voru sam- þykkt 2008 vegna fyrstu kaupa á íbúðarhúsnæði. -mm Atvinnuleysi var 8,3% LANDIÐ: Samtals voru 17.000 einstaklingar atvinnulausir í mars 2021 samkvæmt árstíða- leiðréttum tölum úr vinnu- markaðsrannsókn Hagstofu ís- lands, sem jafngildir 8,3% at- vinnuleysi. Samanburður við febrúar 2021 sýnir að árstíða- leiðrétt atvinnuleysi jókst um 1,9 prósentustig. -mm Týndu veski skilað tómu AKRANES: Á miðvikudag í síðustu viku varð viðskipta- vinur Bónus fyrir því óláni að tapa veskinu sínu á bílapalan- inu við verslun á Bónus á akra- nesi. Þegar viðkomandi fór í verslunina skömmu síðar hafði veskinu verið skilað þangað. Úr veskinu höfðu hins vegar verið tekin greiðslu- og gjafakort og við athugun var búið að taka út fé af einu gjafakortinu. Lögregla rannsakar nú málið og skoðar í því skyni upptökur úr mynda- vélakerfi verslunarinnar. -frg Heilbrigðisráðherra hefur ákveð- ið að framlengja gildistíma reglu- gerða um takmarkanir á samkom- um og skólastarfi um eina viku, en að óbreyttu áttu þær að gilda til dagsins í dag, 5. maí. Þetta er í samræmi við tillögu sóttvarna- læknis þessa efnis. í minnisblaði til ráðherra segir hann allar líkur á því að forsendur verði fyrir því að ráðast í afléttingar á sóttvarnaráð- stöfunum á næstu vikum. Sóttvarnalæknir bendir á að á gildistíma reglugerðanna hafi komið upp nokkrar hópsýkingar á suðvesturhorni landsins sem rekja megi til ferðamanna á landamær- um sem ekki fóru að reglum um sóttkví og einangrun. í framhaldi af því hafi verið ráðist í ýmsar að- gerðir til að minnka enn frekar hættuna á því að smit berist inn í landið. Hann segir vel hafa geng- ið að ná utan um hópsýkingar síð- ustu vikna með öflugri smitrakn- ingu en telur ráðlegt að fara var- lega í afléttingar á takmörkunum innanlands svo ekki komi bakslag varðandi útbreiðslu sýkinga. Ástæða til bjartsýni Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis- ráðherra segir allt benda til þess að afléttingaráætlun stjórnvalda muni ganga eftir og að hægt verði að slaka verulega á samkomutak- mörkunum fyrir miðjan mán- uðinn. „Það er full ástæða til bjart- sýni. vel gengur að kveða nið- ur þær hópsýkingar sem upp hafa komið að undanförnu og síðast en ekki síst er rífandi gangur í bólu- setningum og bjart framundan í þeim efnum,“ segir ráðherra. Góður gangur í bólusetningum í lok síðustu viku voru um 110.200 einstaklingar búnir að fá a.m.k. einn bóluefnaskammt og tæplega 36.380 einstaklingar voru full- bólusettir. í þessari viku verða um 40.000 einstaklingar bólusettir og er það langstærsta bólusetningar- vikan til þessa. mm Á vef villikatta á vesturlandi er sagt frá því að nýverið fannst köttur á akranesi, sem upphaflega átti heimili sitt í reykjavík. kötturinn hafði þá verið í átta ár á flækingi á akranesi og ekki vitað til að hann hafi átt fast heimili allan þennan tíma. „Haft var samband við okkur vegna kattar sem hélt sig í garði hér á akranesi. Sjálfboðaliði fór á staðinn og skannaði örmerkið í kisu. í ljós kom að fressið ber nafnið Smigly og sömuleiðis kom í ljós að hans hafði verið saknað í átta ár af heimili sínu í reykja- vík.“ kötturinn er nú að verða 12 ára og hefur því verið týndur meirihluta ævi sinnar. „mjög líklegt er að Smigly hafi óvart fengið far með bíl á sínum tíma.“ Þá segir að þarna sjáist vel hversu mikilvægt er að örmerkja ketti, „en án örmerkis hefðum við ekki getað haft upp á eig- anda Smigly,“ segja kattavinir á vesturlandi. Eigandi Smigly trúði vart sínum eigin eyrum þegar hann fékk símtalið frá kattavinum. Farið var með kött- inn til hans og urðu miklir fagnaðarfundir með kettinum og eiganda hans sem væntanlega munu lifa hamingju- sömu lífi hér eftir. mm Framlengja sóttvarnareglur um viku Köttur fannst eftir átta ára útlegð

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.