Skessuhorn


Skessuhorn - 05.05.2021, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 05.05.2021, Blaðsíða 11
miðvikudagur 5. maí 2021 11 • Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com Vinnum fyrir öll tryggingafélög Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is Baðinnréttingar Fríform ehf. Askalind 3, 2�1 Kópavogur. 562–15�� Friform.is. 2 � � � — 2 � 2 � Tímabundin opnunartími vegna Covid–�� Mán. – Föst. 1�–1� Laugardaga 11�15 Sérfræðingar í uppsetningu og viðhaldi loftræstikerfa! Eigum allar helstu pokasíur á lager• Veitum ráðgjöf og gerum tilboð• www.blikkgh.is blikkgh@blikkgh.is Akursbraut 11b • 431-2288 Nú þegar strandveiðitímabilið er komið af stað þarf að gæta að ströngum reglum sé fylgt og þurfa strandveiðisjómenn að huga að ýmsu. Blaðamaður Skessuhorns spjallaði við þá ríkharð ríkharðs- son og Jón Beck sem starfa hjá Fiskistofu við eftirlit og ráðgjöf. Þeir voru í hefðbundinni eftirlits- ferð við Ólafsvíkurhöfn á mánu- daginn og fylgdust með bátum koma inn til hafnar með afla eft- ir fyrsta strandveiðidaginn. „Nei, nei. við erum aðallega hér til að leiðbeina,“ svarar Jón kíminn þeg- ar blaðamaður spyr hvort þeir séu þarna staddir í hlutverki „vondu“ karlanna. „Strandveiðibátar eru ekki með kvóta og þess vegna eru mjög strangar reglur sem strand- veiðisjómenn þurfa að fylgja. Þeir fá bara að veiða ákveðið magn á dag í ákveðið marga daga á mán- uði yfir sumartímann og mega ekki vera lengur en 14 tíma á sjó hverju sinni. við erum aðallega hér til að aðstoða sjómenn og fræða,“ bætir Jón við. Sjómönnum skylt að nota app Nú er komið sérstakt app í síma sem sjómönnum er skylt að nota til að skrá helstu upplýsingar þegar þeir fara á sjó. Þá skrá sjó- menn sig í gegnum appið í síman- um hvenær þeir fara út. Því næst skrá þeir hvar þeir renna fyrir fisk. Þetta gerist allt saman í símanum og skráist samkvæmt gPS stað- setningu sem tengist svo Hafró. Þannig sér Hafró hvað menn eru að veiða fiskinn og auðveldara verður að halda utan um magn, veiðisvæði og fleira í þeim dúr. „appið var notað eitthvað í fyrra, en ekki skylda að nota það. Þá voru menn að skrifa þetta í bæk- urnar og sendu afrit af skráning- unni til Fiskistofu eða Hafró og það svo merkt inn handvirkt. Þú getur rétt ímyndað þér vinnuna sem var á bak við það. Nú er þetta bara komið inn,“ segir Jón ánægð- ur með nýju tæknina. Gæðaeftirlit Starfið er fjölbreytt hjá þeim rík- harði og Jóni. Ásamt því að að- stoða sjómenn og passa að þeir séu upplýstir um nýjustu reglugerðir þá hafa þeir auga með vinnslunni líka. Á sumrin þegar fer að hlýna þá fylgjast þeir með hitastig- inu á fiskinum þegar hann kem- ur í land. „Pössum að það sé nóg- ur ís og fiskurinn vel kældur. Sjó- menn fá smá pillu frá okkur ef það er ekki passað upp á þetta,“ segir ríkharð. „Þetta er mikið gæðaeft- irlit. Svo förum við mikið út á sjó líka, í togarana. við tryggjum að allt sé gott og samkvæmt reglum. Þetta er mjög skemmtilegt og fjöl- breytt starf,“ bætir Jón við að end- ingu. glh Ríkharð og Jón fylgjast með löndun úr Geisla SH. „Skemmtilegt og fjölbreytt starf“ Spjallað við starfsmenn Fiskistofu við Ólafsvíkurhöfn Ríkharð Ríkharðsson og Jón Beck, starfsmenn Fiskistofu, við Ólafsvíkurhöfn.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.