Skessuhorn


Skessuhorn - 16.06.2021, Side 1

Skessuhorn - 16.06.2021, Side 1
Ert Þú í áskrift? Sími 433 5500 www.skessuhorn.is FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 24. tbl. 24. árg. 16. júní 2021 - kr. 950 í lausasölu Hafrannsóknastofnun hefur kynnt úttekt sína á ástandi nytjastofna og ráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár. Stofnunin ráðleggur 13% lækkun aflamarks í þorski næsta fiskveiði- ár. Byggir sú ráðgjöf á aflareglu stjórnvalda. Því er lagt til að ráð- lagður heildarafli lækki úr 256.593 tonnum á yfirstandandi fiskveiðiári í 222.737 tonn. Einkum eru tvær meginástæður sagðar fyrir lækkun- inni. Í fyrsta lagi að árgangar átta ára og fimm ára þorsks eru litlir og hafa þeir umtalsverð áhrif til lækk- unar á stærð viðmiðunarstofnsins. Megin uppistaða í þyngd stofnsins er 4-9 ára þorskur og nú eru tveir af þeim sex árgöngum sagðir slak- ir. Hins vegar segja sérfræðing- ar Hafró að stofnmatið í ár sýni að stofnstærðin hefur verið ofmetin á undanförnum árum. Viðmiðunar- stofn árið 2020 var þannig ofmetinn um 19% miðað við núverandi mat. Mæligildi eldri fisks, bæði í aldurs- greindum afla og í stofnmælingum, hafa síðustu ár verið hærri en áður hafa sést. Vægi yngri fisks, sem er enn ekki kominn að fullu í veið- ina, var einnig minnkað miðað við það sem áður var. Þessar breytingar leiða til þess að stofnmatið fylgir nú betur breytingum í stofnmælingum en áður var. Þá segir í ráðgjöf Hafró að þorsk- stofninn sé enn mjög sterkur, þrátt fyrir slaka í tveimur árgöngum hans. Ef frá eru talin undanfarin fimm ár eða svo hefur stofninn ekki verið stærri í 40 ár. Sókn er auk þess enn nærri sögulegu lágmarki. Gert er ráð fyrir að viðmiðunarstofn þorsks verði svipaður að stærð þangað til árgangarnir frá 2019 og 2020 koma inn í viðmiðunarstofninn eftir 2-3 ár, en horfur eru á að þeir séu um og yfir meðallagi. Samkvæmt aflareglu verður afla- mark ýsu 50.429 tonn sem er 11% hækkun frá yfirstandandi fiskveiði- ári. Áætlað er að viðmiðunarstofn- inn muni halda áfram að vaxa næstu tvö árin. Árgangar frá 2015–2017 eru metnir nálægt meðaltali, ár- gangur 2018 lítill en niðurstöður stofnmælinga benda til að árgangar 2019 og 2020 verði yfir meðallagi. Litlar breytingar eru lagðar til varðandi ufsakvótann. Nýlið- un gullkarfa hefur verið mjög slök undanfarinn áratug og af þeim sök- um hefur hrygningarstofn minnkað á undanförnum árum og fyrirséð að sú þróun muni halda áfram á næstu árum og er því lagt til að minnka kvótann um 17% frá yfirstandandi fiskveiðiári. Ráðgjöf fyrir grálúðu hækkar um 13% frá fyrra ári. mm Aflaklóin Ásgeir Elíasson er hér á skaki á Reyni Axels SH á Breiðafirði. Líkt og í flestum hans róðrum var veiðin ágæt. Fyrst og fremst lýsir myndin þó kyrrðinni, frelsinu og náttúrunni þegar aðstæður eru hvað bestar til sjósóknar. Þrátt fyrir góðar aðstæður og mokveiði að undanförnu telur Hafró að minnka eigi þorskkvótann um 13% frá yfirstandandi fiskveiðiári. Ljósm. af. Leggja til að lækka veiðiráðgjöf í þorski um þrettán prósent Tilboð gildir út júní 2021 BBQ chicken quesadilla *Einnig fáanlegt án kjúklings *Also available without chicken 1.595 kr. Vilt þú vera með í dagskrá Írskra daga? Sendu upplýsingar á irskirdagar@akranes.is ÍR S K I R DAG A R 1. -4 . jú lí Akranesi Fjármála- og tryggingaráðgjöf á einum stað í útibúum Arion banka Þú getur hitt ráðgjafa frá Verði í útibúum Arion banka á Höfða, Smáratorgi, Selfossi og í Borgarnesi. Pantaðu fund í útibúi eða fjarfund á arionbanki.is. arionbanki.is

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.