Skessuhorn


Skessuhorn - 16.06.2021, Page 12

Skessuhorn - 16.06.2021, Page 12
MiðVikudaGuR 16. júNÍ 202112 alþingi samþykkti á síðasta degi nýafstaðins þings stjórnarfrum- varp um breytingu á sveitarstjórn- arlögum og lögum um tekjustofna sveitarfélaga. Í frumvarpinu var meðal annars lagt til að lágmarks- íbúafjöldi sveitarfélags verði 1.000 íbúar og að ráðherra sveitarstjórn- armála hafi frumkvæði að samein- ingu sveitarfélaga. Miklar athuga- semdir voru gerðar við þær grein- ar frumvarpsins sem tóku á ofan- greindum atriðum og gerði meiri- hluti umhverfis- og samgöngu- nefndar á endanum tillögu í nefnd- aráliti um að falla frá efnisatriðum beggja greina frumvarpsins, það er um lágmarksíbúafjölda sveitarfé- lags og sameiningu sveitarfélaga að frumkvæði ráðherra. Í stað ákvæðis um lágmarksíbúafjölda var sett inn markmiðsákvæði þar sem stefnt er að því að lágmarksstærð sveitarfé- laga verði 1.000 íbúar. Meirihlutinn lagði sem fyrr segir til að í stað ákvæðis um 1.000 íbúa lágmarksfjölda verði kveðið á um að stefna skuli að þúsund íbúa lág- marksstærð sveitarfélaga. Sveitarfé- lögum sem ná ekki þeirri lágmarks- stærð ber innan árs að hefja annað hvort formlegar sameiningarvið- ræður við annað eða önnur sveit- arfélög eða að vinna álit um stöðu sveitarfélagsins og getu til þess að sinna lögbundnum verkefnum. Ákveði sveitarstjórn að hefja ekki sameiningarviðræður geta 10% íbúa farið fram á almenna og bind- andi atkvæðagreiðslu um ákvörð- unina. Frumvarpið var samþykkt með 44 atkvæðum. Þingmenn Mið- flokksins og Flokks fólksins sátu hjá við afgreiðslu málsins, en full- trúar Miðflokksins höfðu lagt fram minnihlutaálit í umhverfis- og sam- göngunefnd, þar sem meðal annars var lögð áhersla á að ekki væri for- svaranlegt að leggja meiri rekstar- legar kröfur á smærri sveitarfélög en þau stærri, eins og gert er í frum- varpinu eins og það var að endingu samþykkt. Meirihlutinn lagði jafnframt til þá breytingu að fallið verði frá því að ráðherra hafi frumkvæði að því að sameina sveitarfélag, sem ekki nær lágmarksstærð, öðru eða öðr- um nágrannasveitarfélögum. Í stað þess er lagt til að kveðið verði á um að sveitarstjórn sveitarfélags sem ekki nær lágmarksstærð beri að leit- ast við að ná markmiðum um aukna sjálfbærni sveitarfélaga og tryggja getu þeirra til að annast lögbundin verkefni. Til þess að ná þeim mark- miðum geti sveitarstjórn annað- hvort hafið formlegar sameiningar- viðræður á grundvelli 119. gr. sveit- arstjórnarlaga eða látið vinna álit um stöðu sveitarfélagsins og sam- einingarkosti þess. Mikil andstaða hafði verið á meðal smærri sveitar- félaga við þetta ákvæði. Sem fyrr segir lögðu fulltrú- ar Miðflokksins í nefndinni fram minnihlutaálit þar sem því var fagn- að að fallið hafi verið frá lögþving- aðri sameiningu sveitarfélaga, en lögðu jafnframt áherslu á að burð- ir sveitarfélaga til þjónustu við íbúa væru ekki bundnir við fjölda íbúa, enda sögðu þeir mörg dæmi þess að minni sveitarfélög sinni þjónustu betur en stærri sveitarfélög. Í sam- tali við Skessuhorn sagði Bergþór Ólason, formaður umhverfis- og samgöngunefndar og annar nefnd- armanna Miðflokksins í nefndinni, að sjálfbærni sveitarfélaga verði ekki talin bundin við stærð þeirra. „Nægir í því efni að bera saman fjárhagslega stöðu ýmissa sveitarfé- laga og Reykjavíkurborgar,“ sagði Bergþór. Hann sagði jafnframt að þrátt fyrir að hann væri fylgjandi sameiningu sveitarfélaga, þá fagn- aði hann því að alþingi hefði fallið frá því að lögþvinga sameininguna, eins og frumvarp samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra gerði ráð fyrir í upphafi. mm Í síðustu viku var undirrituð vilja- yfirlýsing um fyrsta áfanga í sam- starfi um föngun kolefnis og nýt- ingu glatvarma á Grundartanga. Í fréttatilkynningu frá Ólafi adolfs- syni, stjórnarformanni Þróunar- félags Grundartanga, kemur fram að lykilatriði samstarfsins séu að fanga kolefni úr útblæstri iðnfyr- irtækja á Grundartanga sem verð- ur dælt niður í borholur á svæðinu, ásamt nýtingu glatvarma frá þeirri starfsemi til hitaveitu. Þá er mark- mið að draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda, efla orku- skipti og nýsköpun auk þess að nýta glatvarma frá starfsemi iðnfyrir- tækja á Grundartanga til hitaveitu sem getur þjónað fyrirtækjum á iðnaðarsvæðinu og nálægum sveit- arfélögum. „Verkefnið sem unnið verður undir stjórn Þróunarfélags Grund- artanga, fellur vel að loftslagsmark- miðum Íslands en einnig að þró- un í orkumálum og atvinnusköp- un. Vonir standa til að verkefnið geti skapað umtalsverð verðmæti á komandi árum en það er hluti af uppbyggingu græns iðn- og auðlin- daklasa á Grundartanga og munu niðurstöður þess nýtast á fleiri iðn- aðarsvæðum á landinu,“ segir Ólaf- ur. Edda Sif Pind aradóttir hjá Car- bfix sagði við undirritun samnings- ins að fyrirtækið hefði mikinn byr í seglunum, sem væri afar ánægjulegt og nauðsynlegt þegar loftslagsváin gerir vart við sig með sífellt fjöl- breyttari hætti. „Við höfum vart undan að svara óskum um samstarf víðs vegar um heiminn en það er gott að ráðast fyrst í þetta verkefni hér heima fyrir,“ sagði Edda Sif. Staðsetning verkefnisins á Grundartanga kemur til þar sem á því svæði er aðgangur að þeim efn- isstraumum sem verkefnið þarfnast, þ.e. koldíoxíð og glatvarmi frá iðn- aðarstarfsemi á svæðinu, gott að- gengi að endurnýjanlegri umfram raforku og afar góð hafnaraðstaða. Vonir standa til þess að verkefnið styðji við áframhaldandi uppbygg- ingarskeið á Grundartanga sem grundvallað verði á nýsköpun, um- hverfisvænum lausnum, verðmæta- sköpun og klasasamstarfi öflugra fyrirtækja, stofnana og opinberra aðila,“ segir í fréttatilkynningunni. „Hér er stefnan tekin á tvö spenn- andi og góð verkefni sem samrým- ast fullkomlega nýrri Orkustefnu fyrir Ísland; fjölnýtingu dýrmætra orkustrauma á borð við glatvarma, og hins vegar kolefnisföngun ýmist til niðurdælingar eða framleiðslu á rafeldsneyti,“ sagði Ólafur adolfs- son. „Þessi nýsköpunarverkefni stuðla ekki bara að markmiðum okkar Íslendinga um bætta orku- nýtingu, orkuskipti og samdrátt í kolefnislosun heldur styrkja þau at- vinnusvæðið á Grundartanga og þá miklu verðmætasköpun sem þar fer fram,“ bætti hann við. mm Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull á 20 ára afmæli mánudaginn 28. júní næstkomandi. Í tilefni af því verður afmælisdagskrá á vegum þjóðgarðs- ins í heila viku eða frá 19. júní til 28. júní . Meðal viðburða má nefna göngur undir leiðsögn á valda toppa Þjóðgarðsins; Hreggnasa, Saxhól, Sjónarhól, Sauðhól, Rauðhól, Búr- fell og Bárðarkistu. Þá verða fróð- leiksgöngur með Snæfellingum sem eru rólegar göngur á undirlendi við allra hæfi og fróðleikur í fyrirrúmi. Þá fara fram Bárðarleikar á Malar- rifi fyrir alla aldurshópa og verða leikarnir undir stjórn landvarða. Þá verður efnt til ljósmynda- keppni og er þema keppninn- ar Vættir í Þjóðgarðinum. annað skemmtilegt sem má nefna í þess- ari glæsilegu og fjölbreyttu dagskrá er til dæmis fróðleiksganga um Þrælavík með Sæmundi frá Rifi, Hólahólajóga með Valda, sand- kastalagerð í Skarðsvík, söngur og sögur með kára Viðars í Skarðsvík og karlakórinn Heiðbjört. Nánari upplýsingar um dagskrána má finna á fésbókarsíðu Snæfellsbæjarbæjar og ættu flestir að finna sér eitthvað við hæfi. vaks Úr Þjóðgarðinum Snæfellsjökli. Ljósm. af fésbókarsíðu Snæfellsbæjar Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull 20 ára Fallið frá lögþvingaðri sameiningu sveitarfélaga Við undirritun samkomulagsins í síðustu viku. Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri í Hvalfjarðarsveit, Gestur Pálsson forstjóri Veitna, Álfheiður Ágústsdóttir forstjóri Elkem Ísland, Edda Sif Pind Aradóttir frá Carbfix, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir iðnaðarráðherra, Ólafur Adolfsson formaður stjórnar Þróunarfélags Grundartanga og Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri Akraness. Samstarf um föngun kolefnis og nýtingu glatvarma Ólafur Adolfsson segir verkefnið falla vel að loftslagsmarkmiðum Íslands en einnig að þróun í orkumálum og atvinnusköpun.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.