Skessuhorn - 16.06.2021, Page 18
MiðVikudaGuR 16. júNÍ 202118
Bæjar- og héraðshátíðir verða
haldnar nokkuð víða á Vestur-
landi í sumar. Þó er það þann-
ig að jafnvel þótt komnar séu
dagsetningar á þær sumar þá er
dagsskráin víðast hvar ekki til-
búin. Greinilegt er að faraldur-
inn veldur því að aðstandend-
ur bæjarhátíða stíga varlega til
jarðar því víða er að finna fyrir-
vara um að dagskrá taki mið af
sóttvarnaráðstöfunum. Skessu-
horn tók saman yfirlit yfir þær
hátíðir sem útlit er fyrir að verði
haldnar í sumar.
Hvalfjarðardagar –
18. til 20. júní.
Hvalfjarðardagar hafa fyrir löngu
fest sig í sessi, en þeir verða um
næstu helgi. Í ár verður dagskráin
fjölbreytt og skemmtileg og eitt-
hvað í boði fyrir alla aldurshópa.
dagskráin fer fram víða um sveit-
arfélagið og má nefna Flughátíð
á Leirá og dagskrá í Melahverfi á
laugardeginum. Er áhugasömum
bent á kynna sér dagskránna á Fa-
cebook síðu hátíðarinnar og í aug-
lýsingu í Skessuhorni.
Danskir dagar –
25. til 27. júní
danskir dagar hafa verið haldn-
ir í Stykkishólmi frá árinu 1994 og
er hátíðin ein af elstu bæjarhátíð-
um landsins. Fólk flykkist í Hólm-
inn til að hitta ættingja, vini, kunn-
ingja, nú eða kynnast nýju fólki og
njóta lífs og tilveru. dagskráin býð-
ur upp á fjölbreytta skemmtun fyr-
ir alla aldurshópa. Meðal annars
verður jónsmessuhátíð á dönsk-
um dögum. danskir dagar verða
helgina 25. til 27. júní. að sögn að-
standenda hátíðarinnar er dagskrá-
in að verða fullmótuð.
Írskir dagar –
1. til 4. júlí.
Í byrjun júlí ár hvert halda akur-
nesingar bæjarhátíð til að minnast
arfleifðar sinnar og gera sér glaðan
dag. Þetta er fjölskylduhátíð með
fjölbreyttri skemmtun; íþróttum,
markaði, götugrilli, dorgveiði,
sandkastalakeppni og keppni um
rauðhærðasta Íslendinginn. Írskir
dagar verða haldnir í ár. að sögn
aðstandenda er hátíðin að taka á
sig mynd en dagskráin ekki enn
komin á hreint.
Ólafsvíkurvaka -
2. til 4. júlí
Bæjarhátíðin Ólafsvíkurvaka er
haldin í byrjun júlí í ár. Mikið er
lagt upp úr fjölbreyttri og vand-
aðri dagskrá fyrir alla fjölskylduna.
Stefnt er að því að halda Ólafsvík-
urvöku í „smækkaðri mynd.“ að-
standendur benda verslunum og
félagasamtökum í Snæfellsbæ á að
hafa samband ef áhugi er fyrir því
að taka þátt í hátíðinni.
Hinsegin Vesturland –
9. til 11. júlí.
Hinseginhátíð Vesturlands verður
haldin í fyrsta skipti helgina 9.-11.
júlí, og mun hápunktur helgarinn-
ar vera Gleðiganga sem að þessu
sinni fer fram í Borgarnesi. að-
standendur langar að hafa við-
burðinn glæsilegan og skemmti-
legan og skreyta allt Vesturland
í regnbogalitunum og bjóða að-
standendur fólki tækifæri til að
eignast regnbogafána og styrkja
gott málefni í leiðinni. Regnbogaf-
áni í stærð 90x150 kostar 7.000 kr.
(hægt að setja á fánastöng). Meira
úrval af varningi og fánum er svo
væntanlegur.
Fólki er bent á að vilji það vera
með vagn eða hóp í göngunni,
að hafa samband við aðstandend-
ur sem allra fyrst á hinseginvest@
gmail.com til að geta undirbúið
vagninn með tilheyrandi skrauti
og skemmtun. Svo er auðvitað öll-
um velkomið að ganga með.
Reykholtshátíð –
23. til 25. júlí
Reykholtshátíð er ein elsta og virt-
asta tónlistarhátíð landsins og er
haldin síðustu helgina í júlí, ár
hvert í Reykholti í Borgarfirði.
Reykholtshátíð var stofnuð árið
1997 og telst því til elstu tónlist-
arhátíða landsins. Hátíðin hef-
ur ávallt verið haldin í kringum
vígsluafmæli Reykholtskirkju sem
ber upp á síðasta sunnudag júlí-
mánaðar.
Yfirskrift hátíðarinnar, sígild
tónlist í sögulegu umhverfi, lýsir
vel inntaki hennar og áherslum.
Sveitasælan í Reykholti og fagur
hljómburður Reykholtskirkju veit-
ir bæði áheyrendum og tónlistar-
mönnum tækifæri til að upplifa
hágæða tónlistarflutning á einum
sögufrægasta stað Íslands. Mikil
áhersla er lögð á fagmennsku og
gæði, bæði í dagskrárgerð og tón-
listarflutningi.
Grundarfjarðardagar –
23. til 25. júlí.
Hátíðin er vinaleg fjölskylduhá-
tíð sem hugsuð er fyrir Grund-
firðinga, innfædda, aðflutta og
brottflutta, vini þeirra og vanda-
menn, og aðra gesti sem eiga leið
í bæjarfélagið. að sögn aðstand-
enda verður einhver „míní hátíð“,
stærðin fer svolítið eftir samkomu-
takmörkunum. Hún verður haldin
23. til 25. júlí en allt skýrist betur á
næstu vikum.
Brákarhátíð –
allt sumarið
Brákarhátíð er fjölskylduhátíð í
Borgarnesi til heiðurs Brák, kven-
hetjunni miklu frá víkingatímum.
Brákarhátíð er sumarhátíð Borg-
arness og er venjulega haldin síð-
asta laugardag í júní. Í ár verð-
ur Viðburðadagatal Brákarhátíðar
2021 haldið yfir sumarið með hin-
um ýmsu viðburðum.
Samkvæmt heimildum Skessu-
horns falla einhverjar hátíðir nið-
ur. Hvanneyrardagar hafa í ljósi
aðstæðna verið slegnir af en að-
standendur vonast til að geta hald-
ið hana að ári. Ekki fengust upp-
lýsingar um Reykhóladaga.
frg/ Ljósm. úr safni.
Bæjar- og héraðshátíðir á Vesturlandi í sumar
Frá Hvalfjarðardögum.
Frá Ólafsvíkurvöku 2017.
Fjör á Írskum dögum á Akranesi.
Frá Dönskum dögum í Stykkishólmi.