Mosfellingur - 14.01.2021, Blaðsíða 24
- Aðsendar greinar24
Takk fyrir
sTuðninginn
30 X 50 CM
Félagar í Björgunarsveit-
inni Kyndli þakka bæjar-
búum fyrir stuðninginn
á árinu sem var að líða
og óska þeim velfarnaðar
á nýju ári.
-Kveðja
félagaríKyndli
Kæru Mosfellingar, gleðilegt ár og
takk fyrir það gamla.
Þetta eru skrítnir tíma svo ekki
sé annað sagt, til dæmis ekkert
þorrablót fram undan! Þorrablót
Aftureldingar hefur skapað sér
fastan sess sem einn af aðalvið-
burðum bæjarins ár hvert, ef ekki
aðalviðburðurinn.
En út af dottlu verðum við að fá okkur
þorramatinn heima og rifja upp góðar
minningar, sem auðvitað eru margar.
Vonandi getum við haldið skemmtilegan
viðburð á vormánuðum þó að ekkert komi
í staðin fyrir blótið sjálft, en nauðsynlegt að
vita að fram undan eru bjartari tímar.
Það eru góðar fréttir sem við heyrum
þessa dagana að bóluefni sé farið að berast
okkur og innan tíðar getum við farið að lifa
hömlulausara lífi. Það er mikið fagnaðar-
efni að unga fólkið okkar megi loksins fara
að æfa sínar greinar óheft og keppni er að
fara í gang. Ég vona bara svo innilega að
allir fari varlega og eftir þeim reglum sem
gilda hverju sinni og þá á þetta allt eftir að
ganga vel hjá okkur.
Á gamlársdag verðlaunuðum við það
íþróttafólk hjá okkur sem þótti hafa skarað
fram úr á árinu. Sesselja Líf Valgeirsdóttir
knattspyrnukona var íþróttakona Aftur-
eldingar og Guðmundur Árni Ólafsson
handboltamaður var íþróttamaður Aftur-
eldingar, einnig var valinn þjálfari ársins og
kom hann úr fimleikadeildinni, Alexander
Sigurðsson.
Öll eru þau frábærar fyrirmyndir fyrir
annað íþróttafólk í félaginu. Það er sann-
arlega tilefni til bjartsýni hjá okkur, í öllum
greinum eru iðkendur og þjálfarar sem
blómstra og í raun ótrúlegt hvað flestir hafa
verið duglegir að halda sér við efnið í þess-
um löngu pásum sem hafa komið, ég tek
virkilega ofan fyrir ykkur. Þetta er
eitt af því skemmtilegasta sem við
gerum á ári hverju, að verðlauna
fyrir uppskeruna, og óska ég ykkur
öllum innilega til hamingju.
Við erum svo heppin í Aftureld-
ingu að eiga marga góða styrktar-
aðila og velunnara. Að þessu sinni
veittum við einu fyrirtæki þakkir
fyrir að standa fast við bakið á okkur á
þessu erfiða ári og var það Barion. Barion
hefur verið óþreytandi við að aðstoða okkur
og hugsa með okkur í lausnum þegar kem-
ur að ýmsum fjáröflunum.
Takk fyrir okkur Barion og þið öll sem
standið með okkur, þið eruð öll starfinu
okkar ómetanleg. Ekki síst Mosfellingur
sem alltaf er mættur og tilbúinn að aðstoða
okkur.
Eitt af því sem veldur mér áhyggjum
núna þegar við erum farin að sjá fyrir horn
með COVID-19 er brottfall iðkenda, ég
vona svo innilega að við náum að halda
öllum okkar iðkendum og gott betur.
Milli jóla og nýárs fengum við í íþrótta-
hreyfingunni kynningu frá félagsmálaráð-
herra og ÍSÍ á úrræðum ríkisstjórnarinnar
fyrir íþróttahreyfinguna og hljóma þau
mjög vel fyrir okkur og ættu að hjálpa til í
þeirri vinnu að byggja á því sem við höfum
fyrir, útfærslur eiga að vera tilbúnar í kring-
um miðjan janúar.
Vonandi verður almenn vitundarvakning
hjá allri þjóðinni um frekari hreyfingu og
íþróttastarf. Við í Aftureldingu höfum lengi
verið stolt af forvarnargildi okkar starfs og
höfum metnað til að bæta það enn frekar.
Áfram Afturelding!
BirnaKristínJónsdóttir,
formaðurAftureldingar.
Bjartsýn á nýju ári
TAKK FYRIR ÁRIÐ
Tökum nýju ári fagnandi!
Þakkir til þeirra sem koma að blaðinu. Á myndunum má sjá nokkra Mosfellinga
sem leggja sitt af mörkum: Inga Vals, Raggi Óla og Anna Ólöf, Ruth Örnólfs,
Helga Dögg, Birgir Sveins, Hilmar Gunnars og Oddný Þóra.
mosfellingur@mosfellingur.is