Morgunblaðið - 26.01.2021, Page 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 2021
„AFSAKAÐU, HERRA MINN, EN
HEIMSÓKNARTÍMINN ER BÚINN.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... límið sem heldur öllu
saman þegar allt virðist
vera að molna.
TÍST! TÍST! TÍST! TÍST! TÍST! TÍST!
ENGAR ÁYGGJUR. ÞETTA ERU
BARA SKÓRNIR HANS JÓNS
ÞAÐ ER KOMINN TÍMI
TIL AÐ ÉG EIGNIST
NÝTT NÁTTBORÐ!
HVAÐ ER AÐ ÞVÍ
SEM ÞÚ ÁTT?
ÞAÐ ER TÓMT!
„ÞAÐ ER EKKI ÖRUGGT AÐ FYRRA
FRAMMISTÖÐUMAT SPÁI FYRIR UM
ÁRANGUR TIL FRAMTÍÐAR.”
legar minningar frá veiðiferðum
með föður mínum á Arnarvatns-
heiði og Auðkúluheiði. Við vorum
einnig að veiða í Vopnafirði, í Selá
og Hofsá, en þá voru ekki margir
að veiða þar.“
Jón hefur enn fremur stundað
smíðar og skógrækt í sumar-
bústaðnum á Svalbarðseyri, sem
hefur verið miðpunktur og sælu-
reitur fjölskyldunnar alla tíð.
Fjölskylda
Eiginkona Jóns er Sigrún
Helgadóttir, f. 8.3. 1936, húsmóðir
og vann skrifstofustörf. Þau gengu
í hjónaband 1957. Jón byggði hús í
Goðabyggð 16 árið 1959 og þau
bjuggu þar þangað til þau fluttu í
núverandi húsnæði á Holtateig 36.
Foreldrar Sigrúnar voru hjónin
Helgi Eiríksson, f. 12.7. 1884, 2.2.
1964, bóndi á Þórustöðum í Kaup-
angssveit, Eyjafirði, og Hólmfríður
Pálsdóttir, f. 18.4. 1889, d. 9.3.
1974, húsfreyja á Þórustöðum.
Börn Jóns og Sigrúnar: 1) Sif, f.
5.6. 1959, líffræðingur, búsett í
Reykjavík; 2) Ólöf, f. 7.5. 1962,
fiðlukennari, búsett í Milwaukee í
Bandaríkjunum. Maki: Þorsteinn
Skúlason húðsjúkdómalæknir.
Börn: Sæunn, f. 1984, og Skúli, f.
1991; 3) Bjarni, f. 31.5. 1965, úr-
smiður á Akureyri. Maki: Soffía
Einarsdóttir, f. 1972, sjúkraþjálf-
ari. Börn: Jón Oddur, f. 1991, Ein-
ar Breki, f. 1995; Brynja Marín, f.
2001, og Katla, f. 2007.
Systkini Jóns: Guðmundur
Bjarnason, f. 14.10. 1937, 25.10.
1946; Pétur Bjarnason, f. 4.1. 1939,
d. 21.4. 1976, verkfræðingur og
hafnarstjóri á Akureyri; Kristófer
Bjarnason, f. 11.6. 1942, d. 6.10.
1946; Stefán Bjarnason, 26.4. 1945,
úrsmiður í Kópavogi; Guðmundur
Bjarnason, f. 13.7. 1948, d. 7.5.
1959; Kristófer Bjarnason, f. 13.7.
1948, d. 5.5. 1959.
Foreldrar Jóns voru hjónin
Bjarni Jónsson, f. 30.8. 1900, d.
7.5. 1980, úrsmiður, og Ólöf Guð-
mundsdóttir, f. 17.10. 1912, 30.10.
1990, húsfreyja og verkakona á
Akureyri.
Jón Bjarnason
Petrína Pétursdóttir
húsfreyja á Hrauni
Björn Jónsson
bóndi á Hrauni í
Keldudal í Dýrafirði
Guðrún Björnsdóttir
ljósmóðir og húsfreyja á Þingeyri
Guðmundur Guðmundsson
stýrimaður og skipstjóri á Þingeyri
Ólöf Guðmundsdóttir
húsfreyja á Akureyri
Guðmunda Guðmundsdóttir
húsfreyja í Höfn
Guðmundur Gíslason
bóndi í Höfn í Dýrafirði
Elín Helgadóttir
húsfreyja í Tungu
Stefán Magnússon
bóndi í Tungu á Svalbarðsströnd
Rósa Stefánsdóttir
húsfreyja í Gröf
Jón Bjarnason
bóndi í Gröf í Víðidal, V-Hún.
Sigríður Vernharðsdóttir
húsfreyja í Gottorp
Bjarni Jónsson
bóndi og silfursmiður, síðast í Gottorp í Víðidal
Úr frændgarði Jóns Bjarnasonar
Bjarni Jónsson
úrsmiður á Akureyri
Sigtryggur Jónsson heilsarþorra:
Hrollkaldur heilsar Þorri,
en himinhvolf eru blá.
Enn er á ættjörð vorri
alls enga fönn að sjá.
Hallmundur Guðmundsson yrk-
ir og kallar „Gjörvileiki“:
Hér er sem við manninn mælt
að magnast ofanhríðin.
Þó er ekki vitund vælt;
- ef versnar ekki tíðin.
Jón Atli Játvarðarson skrifar:
„Séð frá Reykhólum er þetta
nokkurn veginn svona í NA-
rokinu á bóndadaginn 22.1. 2021.
– Velkominn Þorri!“
Þorra sig kynnir sem blikandi bólu
og blaktandi myndir á skjá.
Skýin þau eltast í suðri við sólu
og sveiflast þar til og frá.
Á föstudag skrifaði Sigurbjörn
Árni Arngrímsson: „Kolla í Haga-
nesi er gift Einari og vinnur hjá
Lyfju. Nú er skítaveður hjá okkur
og vesen á samgöngum og því
sendi Kolla út eftirfarandi til-
kynningu í morgun: „Frá Lyfju
Reykjahlíð. Sendingin frá Húsavík
er komin. Verð með opið til kl.
13.“
Þegar ég sá þetta laust niður í
huga minn þessari limru“:
Í lífi mér þykir það leitt
að löngum ég veit ekki neitt
en skil hvað hún meinar
svo skundaðu Einar
það er opið hjá Kollu til eitt
Sigurður G. Tómasson minnist
Sigurkarls Stefánssonar mennta-
skólakennara en hann var ágæt-
lega hagmæltur. Sér hafi verið
sagt að eftir hann væri hin fræga
stafsetningarvísa MR:
Yxu víur ef ég flygi
og öndin smygi í himin inn
yfir því að það var lygi
að Þráinn flygi á Skarphéðin!
Eyjólfur Jóhannesson í Hvammi
(1824-1911) orti:
Alltaf bætist slys við slys,
styrinn magnast svona,
enda hleðst nú dys við dys
dauðra æskuvona.
Ólína Andrésdóttir (1858-1935)
orti:
Oftast svellin örlaga
illum skellum valda
fyrir brellum freistinga
fæstir velli halda.
Gamall húsgangur:
Hvar þú finnur fátækan á förnum vegi
gerðu ’onum gott en græt hann eigi,
Guð mun launa á efsta degi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Að þreyja þorrann