Morgunblaðið - 26.01.2021, Page 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 2021
✝ SigurðurÁrnason fædd-
ist 18. október
1945 í Litla-
Hvammi í Mýrdal.
Hann lést 11. jan-
úar 2021 á Skóg-
arbæ í Reykjavík.
Foreldrar Sigurðar
voru Árni Jónasson
og Helga Sigurð-
ardóttir. Móðurfor-
eldrar hans voru
Sigurður Gunnarsson og Ást-
ríður Stefánsdóttir, ólst hann
upp hjá þeim í Litla-Hvammi.
Sigurður gekk í barnaskól-
ann í Litla-Hvammi en þaðan
fór hann í Skógaskóla og lauk
gagnfræðaprófi, eftir það lá
leið hans í Menntaskólann á
Akureyri þar sem hann lauk
stúdentsprófi. Eftir stúdents-
próf fór hann í Háskóla Íslands
og lauk námi sem viðskipta-
fræðingur.
og fimm langafabörn, þau
Sönnu Ingrid, Anton Elvis,
Orra Nader, Erni Nabíl og
Hrafn Amír.
Sigurður var með gott tón-
eyra og var söngvari og
trommuleikari í hljómsveitinni
Tónabræðrum úr Mýrdal sem
var starfandi samfleytt frá
1962-1970 og hefur hún komið
reglulega saman eftir það.
Að viðskiptanámi loknu
starfaði Sigurður um skeið við
Seðlabanka Íslands. Þar á eftir
á skólaskrifstofu Reykjavíkur í
36 ár. Sigurður starfaði einnig
lengi hjá strætisvögnum
Reykjavíkur (SVR) sem vagn-
stjóri, vaktstjóri og síðustu ár-
in sem aðalbókari strætó. Eftir
að Sigurður hætti störfum
greindist hann með
Lewi-body-sjúkdóminn. Var
hann búinn að vera hálft ann-
að ár á Skógarbæ þegar hann
lést.
Útför hans fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, 26. jan-
úar 2021 kl. 13. Steymt verður
frá jarðarförinni á:
https://tinyurl.com/y6nox7v9
Virkan hlekk á slóð má
finna á https://www.mbl.is/andlat
Með fyrri konu
sinni Unu Bryn-
geirsdóttur eign-
aðist Sigurður tvo
drengi, Gunnar, f.
1973, og Bryngeir,
f. 1976. Gunnar er
kvæntur Rósu
Hrönn Árnadóttur.
Bryngeir er kvænt-
ur Jóhönnu Arn-
þórsdóttur og eiga
þau tvær dætur,
Lovísu Unu og Arneyju Stellu.
Seinni kona Sigurðar var Guð-
laug Ragnarsdóttir. Börn henn-
ar eru Ragnar Steinar Bents-
son, kvæntur Fjólu Jenssen,
Anný Elín Bentsdóttir, gift Jó-
hannesi Kr. Haukssyni, og Ró-
bert Michael O’Neill. Þegar
Sigurður og Guðlaug fóru að
búa saman eignaðist hann fimm
afabörn, þau Andra Hrafn,
Ragnar Andra, Daníel Hans,
Árnýju Guðlaugu og Töru Lind,
Elsku afi, hjörtu okkar eru í
molum og erfitt að trúa að þú
sért farinn frá okkur. Allar
minningarnar eru okkur afar
dýrmætar. Við munum aldrei
gleyma þolinmæðinni og vænt-
umþykjunni sem þú sýndir okk-
ur. Þú varst alltaf tilbúinn til
að hjálpa okkur og ekki sakaði
hversu klár þú varst sem kom
sér oft vel í gegnum skólagöng-
una okkar. Þín er sárt saknað
og mun minning þín lifa í hjört-
um okkar.
Bros þitt
hlýjar,
þinn hlátur
kítlar.
Hvert andartak
með þér
sem gullið ljós
geymt
í hjartastað.
Þín gullnu spor
yfir ævina alla
hafa markað
langa leið.
Skilið eftir
ótal brosin,
bjartar minningar
sem lýsa munu
um ókomna tíð.
Þín barnabörn
Árný Guðlaug, Ragnar
Andri og Tara Lind.
Engan hef ég þekkt ljúfari
mann en Sigurð Árnason,
frænda minn. Mér fannst alla
tíð eins og ég gengi inn í hlýju-
hjúp þegar ég hitti Sigga. En
hann var ekki bara hlýr. Siggi
var talnaglöggur með afbrigð-
um, minnugur og músíkalskur.
Öllum þessum hæfileikum fann
hann farveg á lífsleiðinni.
Smám saman var þó flest af
þessu frá honum tekið af sjúk-
dómi sem skerti bæði líkamlegt
atgervi hans og og andlegt.
Siggi ólst upp í Litla-
Hvammi í Mýrdal. Fyrstu ævi-
ár mín vorum við nágrannar í
tvíbýli Litla-Hvamms, hann í
austurbænum hjá móðurfor-
eldrum sínum, Ástríði og Sig-
urði, en ég hjá mínum, Stein-
unni Helgu og Stefáni í
vesturbænum. Ég var of ung til
að eiga skýrar minningar af
þessum tíma okkar saman en
ég man hvað hann var mér æv-
inlega góður og hvað hann var
baldinn sem lítill drengur.
Þetta kemur vafalaust þeim
sem aðeins þekktu hann sem
uppkominn mann á óvart. Enda
fór það svo að strax sem ungur
maður var Siggi orðinn ímynd
rólyndis og stóískur í allri
framgöngu.
Siggi var menntaður við-
skiptafræðingur og nýtti þá
menntun á margvíslegan hátt
svo sem við störf í Seðlabank-
anum og á Skólaskrifstofu
Reykjavíkur, nú Skóla- og frí-
stundasviði. Áratugum saman
gerði hann einnig skattskýrslur
fyrir fjöldann allan af fólki. En
hann var líka bílaáhugamaður
og vann árum saman sem bíl-
stjóri hjá Strætisvögnum
Reykjavíkur. Í samtölum okkar
Sigga síðustu árin skemmtum
við okkur við að rifja upp minn-
ingar úr Mýrdal. Ef bílar komu
við sögðu urðu þeir að sérstöku
umfjöllunarefni. Löngu eftir að
minninu fór að hraka verulega
mundi Siggi bílnúmer flestra
sveitunga okkar í Mýrdal, ég
mundi þrjú Z- númer en hann
öll hin. Sem ungur maður lék
Siggi í Tónabræðrum, vinsælli
danshljómsveit í sinni sveit, var
söngvari og trommuleikari.
Heilsu Sigga hrakaði hratt
síðustu árin. Hann var mjög
meðvitaður um hvert stefndi en
gerði sér far um að vera já-
kvæður. Fyrir þrem árum
ræddum við heilsufar hans og
horfur og þá sagði hann alveg
ljóst að heilsunni hrakaði en
bætti við „maður verður að
vera bjartsýnn og vona að allt
fari á besta veg“. Þótt sú yrði
ekki raunin var alltaf grunnt á
húmornum hjá Sigga. Hann
hafði gaman af að segja sögur
og lengi vel gat hann kallað
fram skemmtilegar minningar
af mönnum og málefnum. Þá
brosti hann svo augun geisluðu
og þá fór ekki framhjá neinum
hversu fallegur maður hann
Siggi var.
Og þótt málið væri á end-
anum frá honum tekið var samt
ævinlega jafn gott að hitta
Sigga, sitja hjá honum, finna
gamalkunna hlýjuna og haldast
í hendur eins og við gerðum
sem börn. Ég sendi fjölskyldu
Sigga mínar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Steinunn Helga.
Vænn og góður frændi Sig-
urður Árnason er látinn. Siggi
frændi ólst upp í Litla-Hvammi
í Mýrdal hjá móðurforeldrum
sínum Ástríði Stefánsdóttur og
Sigurði Bjarna Gunnarssyni. Í
Litla-Hvammi ólst ég líka upp.
Við Siggi og Steini frændi, sem
líka átti heima í Litla-Hvammi
vorum á svipuðum aldri og lék-
um okkur mikið saman. Steini
flutti seinna að Vatnsskarðshól-
um með foreldrum sínum og
systkinum. Flutningur Steina
fékk mikið á okkur frændsystk-
inin öll, en gott var að stutt var
á milli bæjanna og auðvelt að
hittast. Siggi hafði mikinn
áhuga á bílum og bílaleik. Hann
átti alltaf stóra og sterklega
bíla sem afi hans, stóri Siggi
smíðaði handa honum. Ég man
eftir bílvegum með bröttum
brekkum og skörpum beygjum
sem Siggi bjó til í moldar-
flaginu fyrir ofan bæinn heima
og það hvein og söng í bílnum
hans þegar hann spólaði í
brekkunni. Siggi eignaðist svo
alvöru ferðabíl eða húsbíl
seinna á ævinni og það kom
ekki á óvart að hann lét hann
heita Litli-Hvammur. En stóri
Siggi smíðaði ekki bara bíla
handa afastráknum sínum,
hann smíðaði bæði sleða og
skíði og við krakkarnir nutum
góðs af. Oft snjóaði allt í kaf í
Litla-Hvammi og þá var farið
með sleðann upp á Klif og
Haus og saman brunað niður á
ógnarhraða og endað úti í móa.
Þessar vísur samdi Stefán afi
okkar um okkur þrjú:
Ekki þýðir um að rabba
unglinganna spor,
Siggi, Jóna og Steini stökkva
stundum út í for.
Samt þó farið sé að rökkva
sem ei gerir til,
Siggi, Jóna og Steini stökkva
stundum út í byl.
Bráðum það á búkinn reynir
beislin verða laus.
Þessir krakkar álpast einir
upp á Klif og Haus.
(Stefán Hannesson)
Það kom fyrir að okkur
krakkana langaði mjög mikið
að eignast ýmislegt. Eitt sinn
datt okkur Sigga snjallræði í
hug. Það var að biðja Guð um
að gefa okkur þetta. Við skrif-
uðum langan lista yfir það sem
okkur langaði mest í og þar
sem kirkjan var ekki langt und-
an töldum við að best væri að
fara þangað og leggjast á bæn
við altarið. Við vissum auðvitað
að við máttum alls ekki fara í
kirkjuna, en löngunin í dótið yf-
irskyggði boð og bönn og við
læddumst þangað án þess að
nokkur yrði þess var. Síðan
báðum við Guð heitt og innilega
að gefa okkur dúkkur, bíla,
stígvél og margt fleira sem var
á óskalistanum. Við komumst
heim án þess að upp um okkur
kæmist en innst inni skömm-
uðumst við okkar svolítið. Við
þorðum varla að tala um þetta
okkar í milli og engum sögðum
við frá þessu. Ekki komu bílar
og dúkkur samstundis til okk-
ar, en með árunum eignuðumst
við eitt og annað af því sem við
báðum Guð um að gefa okkur
þarna í kirkjunni heima í Litla-
Hvammi.
Það var gott að eiga frænda
að. Hann var einstaklega bón-
góður og átti alltaf tíma aflögu
þrátt fyrir að vera störfum
hlaðinn. Hann hjálpaði strákun-
um mínum við sín fyrstu bíla-
kaup og svo var það skatt-
skýrslan sem hann sá um fyrir
mig og okkur í mörg ár. Fyrir
það og alla hans góðvild og
hlýju erum við fjölskyldan hon-
um mjög þakklát.
Ég sendi innilegar samúðar-
kveðjur til allra ástvina Sigga
frænda, Guð blessi minningu
hans.
Jóna Sigríður Jónsdóttir.
Sigurður
Árnason
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og við-
eigandi liður, „Senda inn minning-
argrein,“ valinn úr
felliglugganum. Einnig er hægt
að slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar en
á hádegi tveimur virkum dögum
fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síð-
una.
Myndir | Hafi mynd birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið
sé um annað. Ef nota á nýja mynd
skal senda hana með æviágripi í
innsendikerfinu. Hafi æviágrip
þegar verið sent er ráðlegt að
senda myndina á netfangið minn-
ing@mbl.is og láta umsjón-
armenn minningargreina vita.
Minningargreinar
Okkar ástkæra
HELGA SVALA SIGURÐARDÓTTIR,
Kirkjubraut 6, Seltjarnarnesi,
andaðist miðvikudaginn 13. janúar á
hjúkrunarheimilinu Grund. Útförin fer fram
frá Seltjarnarneskirkju miðvikudaginn
27. janúar klukkan 13 að viðstöddum fjölskyldu og nánustu
vinum. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Alzheimersamtökin.
Þuríður Þorbjarnardóttir Hálfdan Ómar Hálfdanarson
Bergþóra S. Þorbjarnardóttir Sigurður J. Grétarsson
Helga Þorbjarnardóttir James E. Skjelbreia
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi
og langalangafi,
HELGI JÓHANNESSON
skólabílstjóri,
Víghólastíg 10, Kópavogi,
lést á Landspítalanum 16. janúar.
Útförin fer fram frá Digraneskirkju fimmtudaginn 28. janúar
klukkan 13. Hlekk á streymi frá útförinni verður hægt að nálgast
á vef Digraneskirkju, digraneskirkja.is.
Edda Rósa Helgadóttir
Heiðveig Helgadóttir Tómas Ragnarsson
Helgi Viðar Helgason Marion Walser
Sigurður Helgason Heidi Greenfield
Smári Helgason
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
ÁGÚSTA ANNA VALDIMARSDÓTTIR,
lést á Seljahlíð 8. janúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug til okkar allra.
Sérstakar þakkir viljum við senda starfsfólki Seljahlíðar fyrir
einstaklega hlýja og góða umönnun.
Þórður Grétar Árnason Vigdís Hjartardóttir
Hinrik Ingi Árnason Oddný Steingrímsdóttir
Sigurður Þórarinn Árnason Hafdís Jónsdóttir
Þórir Steindórsson Anneli Hemmingsson
Anna Brynhildur Steindórsd. Guðmundur Geir Sigurðsson
Steingerður Steindórsdóttir Vífill Sigurjónsson
og fjölskyldur
Við þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug í okkar garð vegna fráfalls
KRISTINS ÓLAFS KRISTINSSONAR
líffræðings,
Fellabrekku 19,
Grundarfirði.
Sérstakar þakkir viljum við færa áhöfn og útgerð Runólfs SH
135 og þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar.
Skúli Jón
Árdís Sveinsdóttir Kjartan Gunnarsson
Sigrún Kristinsdóttir Bjarki Sveinbjörnsson
Valdís Kjartansdóttir Bragi Karlsson
Gunnhildur Kjartansdóttir Ólafur Erlendsson
Okkar ástkæri eiginmaður, sonur, faðir,
tengdafaðir, afi og bróðir,
HAUKUR GUÐMANN GUNNARSSON
endurskoðandi,
sem lést á Landspítala þriðjudaginn
19. janúar, verður jarðsunginn frá Neskirkju
föstudaginn 29. janúar klukkan 13. Aðeins nánustu
aðstandendur og vinir verða viðstaddir, en athöfninni
verður streymt. Hlekk á streymi má finna á vefslóðinni
www.mbl.is/andlat. Þeim sem vilja minnast hans er vinsamlega
bent á Framtíðarsjóð KR.
Elín J. G. Hafsteinsdóttir
Anna S. Guðmundsdóttir
Ingunn Hafdís Hauksdóttir Þórlindur Kjartansson
Hafsteinn Gunnar Hauksson Daði Már Sigurðsson
Anton Haukur Þórlindsson Elín Katrín Þórlindsdóttir
og systkini hins látna