Morgunblaðið - 23.02.2021, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.02.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 2021 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Karítas Ríkharðsdóttir karitas@mbl.is „Við erum bara að vonast til að geta haldið Þjóðhátíð í ágúst,“ svarar Hörður Orri Grettisson, fram- kvæmdastjóri ÍBV, spurður út í hver staðan sé á skipulagi Þjóð- hátíðar í Eyjum fyrir sumarið 2021. Hann segir skipulag Þjóðhátíðar 2021 fara fram með ákveðnum fyrirvörum. „Við vorum búin að teikna upp margar mismunandi sviðsmyndir í fyrra og búum að því […] en að skipuleggja eitthvað sem þú veist ekkert um – það getur ver- ið erfitt,“ segir Hörður. Hann segir skipulag hafið en það sé svipað á milli ára. „Skipulagið er til, það er búið að halda Þjóðhátíð í svo mörg skipti og við erum því ekki að finna upp hjólið á hverju ári.“ Höfundur þjóðhátíðar- lags fundinn Hörður Orri segir að þegar hafi verið samið við höfund um að semja þjóðhátíðarlag. Þjóðhátíð í Eyjum var ekki haldin í fyrra sökum sam- komutakmarkana. Þó var búið að teikna upp áætlun þar sem stuðst var við sóttvarnahólf. Aðspurður hvort raunhæft sé að halda Þjóð- hátíð með slíku fyrirkomulagi segir Hörður erfitt að meta það en ÍBV hafi löngum verið þekkt fyrir að halda uppi öflugri og sýnilegri öryggisgæslu á Þjóðhátíð. Hörður segist bjartsýnn á að samkomu- takmarkanir verði með þeim hætti í sumar að hægt verði að halda upp á Þjóðhátíð, miðað við hvernig sótt- varnalæknir talaði á síðasta upplýs- ingafundi almannavarna. Fiskidagurinn annaðhvort af eða á Stjórn Fiskidagsins mikla mun funda í næstu viku og ræða stöð- una. Fiskideginum var aflýst með nokkrum fyrirvara í fyrra. „Við munum ekki stökkva af stað ef það er einhver áhætta í gangi. Við bara bíðum,“ segir Júlíus Júl- íusson, framkvæmdastjóri hátíð- arinnar. Hann segir að skipulag Fiskidagsins væri í venjulegu ár- ferði komið töluvert af stað á þess- um tíma árs og endanleg ákvörðum þarf að liggja fyrir með nokkrum fyrirvara. Hann segist ekki sjá fyrir sér neina smækkaða útfærslu: „Þetta er bara af eða á.“ Reiknað með Bíladögum Bílaklúbbur Akureyrar stendur fyrir Bíladögum á Akureyri ár hvert í kringum 17. júní. Þeim var þó sleppt alfarið í fyrra. Í samtali við Morgunblaðið segir Einar Gunnlaugsson, formaður klúbbsins, að vel mætti halda helstu dagskrár- liði Bíladaga undir um þúsund manna samkomutakmörkunum. Hátíðir skipulagðar af bjartsýni með fyrirvörum  Flestar sumarhátíðir sem aflýst var í fyrra á dagskrá Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Mannfjöldi Þjóðhátíð var síðast haldin í Vestmannaeyjum sumarið 2019. Friðrik Jónsson, skrifstofustjóri í utanríkisráðuneytinu og formaður Félags háskólamenntaðra starfs- manna stjórnarráðsins (FHSS), býður sig fram til formennsku í Bandalagi háskólamanna (BHM). Nýr formaður bandalagsins verður kjörinn á aðalfundi BHM sem hald- inn verður 27. maí, en Þórunn Sveinbjarnardóttir formaður leitar ekki endurkjörs og hyggst bjóða sig fram til þings á ný. Áður en ljóst varð að Þórunn færi ekki fram hafði Maríanna H. Helgadóttir, formaður Félags ís- lenskra náttúrufræðinga (FÍN), boðað mótframboð líkt og 2019, en þá laut hún í lægra haldi. Friðrik er forstöðumaður GRÓ, þekkingarmiðstöðvar þróunar- samvinnu, og situr í embættis- mannanefnd norðurskauts- ráðsins. Hann hefur mikla reynslu af al- þjóðavettvangi, m.a. hjá Atlants- hafsbandalaginu, Alþjóðabank- anum, Alþjóða- liðinu í Afganist- an (ISAF), Sameinuðu þjóðunum og sendiráðum Íslands ytra. Friðrik er með MA-gráðu í alþjóðasamskiptum og herkænsku- fræðum og BA-gráðu í alþjóða- og ríkjasamskiptum, auk MBA í al- þjóðaviðskiptum. Friðrik er kvæntur Elínborgu Þóru Þorbergsdóttur og eiga þau fjögur börn. Friðrik Jónsson í formannsframboð BHM Friðrik Jónsson Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Loðna hefur veiðst víða fyrir sunn- an land og austan á vertíðinni og er unnið á sólarhringsvöktum þar sem mest umsvif eru. Fyrir helgi frétt- ist af loðnu við Grímsey og um helgina voru fregnir af loðnu í grennd við Flatey á Skjálfanda. Rannsóknaskipið Bjarni Sæmunds- son var í gær á leið á þessar slóðir til að kanna hversu mikið af loðnu er þarna á ferðinni. Birkir Bárðarson, fiskifræðingur á Hafrannsóknastofnun, segir allt- af erfitt að meta hvort marktækt magn sé á ferðinni samkvæmt fréttum sem berist frá veiðiskip- um. Fréttirnar frá Grímsey og úr Skjálfanda hafi hins vegar verið þess eðlis að ákveðið hafi verið að kanna það nánar. Því hafi verið ákveðið að gera hlé á leiðangri Bjarna Sæmundssonar, sem var við umhverfismælingar, og halda norður fyrir land. Það ætti því að skýrast á næstu dögum hversu mikið af loðnu er þarna á ferðinni. Loðnan snemma á ferðinni Eins og áður sagði hefur loðna veiðst víða undanfarið, norsk skip hafa verið fyrir austan land og aðr- ir hafa veitt með ágætum árangri í Skeiðarárdýpi, austan og vestan við Vestmannaeyjar og í Grinda- víkurdýpi út af Reykjanesi. Birkir segir það ekki koma alveg á óvart miðað við mælingar vetrarins að loðnu sé víða að finna. Hann segir það hins vegar sérstakt núna hvað loðnan er snemma á ferðinni. Eftir ágætan gang við veiðar síð- ustu daga eru menn farnir að huga að hrognavinnslu, sem gæti byrjað um eða eftir helgi. Áhersla er lögð á að hámarka verðmæti takmark- aðrar vertíðar, en kvóti íslenskra skipa er samtals tæplega 70 þús- und tonn og heildarkvótinn 127.300 tonn. Einhverjar útgerðir hafa hægt á veiðum meðan beðið er eft- ir hrognavinnslu, en það er mis- jafnt eftir kvótastöðu og vinnslu- möguleikum. Kemur til frádráttar Á vef Norges sildesalgslag kem- ur fram að Landhelgisgæslan hafi tilkynnt tafarlausa stöðvun loðnu- veiða norskra skipa klukkan 19.38 síðasta föstudagskvöld. Þar kemur fram að þá hafi skipin verið búin að veiða 42.373 tonn eða 565 tonn um- fram heimildir upp á 41.808 tonn. Samkvæmt upplýsingum Land- helgisgæslunnar hafði eitt norskt skip verið að veiðum þegar stöðv- unin var tilkynnt. Tilkynntur afli úr sjó hafi þá verið alls 42.038 tonn og það sem sé umfram veiðiheim- ildir dragist af heildarkvóta næsta árs. Kanna fréttir um meiri loðnu  Vart við loðnu við Grímsey og Flatey á Skjálfanda  Rannsóknaskip kannar hversu mikið magn er á ferðinni  Norðmenn luku veiðum á föstudagskvöld Morgunblaðið/Börkur Kjartansson Vertíð Nótin dregin um borð í Víking AK rétt utan við Landeyjahöfn í síðustu viku, Vestmannaeyjar í baksýn. „Við teljum okk- ur vera með sönnunargögn í málinu þótt þau séu missterk,“ sagði Margeir Sveinsson, að- stoðaryfirlög- regluþjónn hjá lögreglunni á höf- uðborgarsvæð- inu, í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann sagði húsleitum lokið að sinni og að lög- regla teldi sig vera með alla þá sem komu að Rauðagerðismálinu í haldi ef miðað væri við þau sönnunargögn sem lögregla hefur undir höndum. Í því máli var Albani skotinn til bana á heimili sínu fyrr í mánuðinum. Næstu dagar munu að mestu fara í yfirheyrslur og úrvinnslu gagna. Margeir sagði að lögregla fengi betri mynd á málið með hverjum deg- inum. Ekki síst sé það með skoðun símagagna. Sú vinna krefst nokk- urrar vinnu af starfsfólki embættis- ins og er tímafrek. Spurður hvers vegna svo margir væru í haldi sagði Margeir að verið væri að setja saman hver hlutur hvers og eins er í málinu. „Við erum enn að kanna hvort þetta séu ein- staklingar, fámennur hópur eða skipulagðir hópar sem hafa átt í ein- hverjum deilum,“ sagði Margeir. vidar@mbl.is Missterk sönnunar- gögn  Allir grunaðir þegar í haldi Margeir Sveinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.