Morgunblaðið - 23.02.2021, Síða 10

Morgunblaðið - 23.02.2021, Síða 10
Síðasti hlutinn á reitnum Norðurhluti gömlu höfuðstöðvanna hjá WOW bíður niðurrifs. Bleika skrifstofuhúsið í Bríetartúni í Reykjavík var um hríð táknmynd ferðaútrásarinnar. Þar var flugfélagið WOW air með höfuðstöðvar og gekk reksturinn svo vel að stjórnendur félagsins hugðust reisa nýjar höfuð- stöðvar í Kársnesi í Kópavogi og hótel þar við hlið. Eftir mótbyr og niðurskurð fór svo að WOW air hætti starfsemi 28. mars 2019. Við tók hægur bati í ferðaþjón- ustunni og svo hrun út af kórónuveirufaraldrinum. Í stað gamla kennileitisins á Höfðatorgi rís íbúðaturn með um hundrað íbúðum. Eykt mun byggja turninn en félagið hefur selt 91 af 94 íbúðum í Bríetartúni 9-11 en það eru brúnlituðu húsin á myndunum. baldura@mbl.is Morgunblaðið/Baldur Höfðatorg Vesturhluti gamla Fossbergshússins enn uppistandandi. Sjá má safnaðarhús Fíladelfíu til austurs. Sagan hverfur Höfuðstöðvar WOW prýddu þau orð Paulos Coelhos að ekkert væri ómögulegt. WOW-húsið jafnað við jörðu Gamalt og nýtt Á lóðinni rísa nýbyggingar sem eru lokahluti Höfðatorgs. Lóðamörk Hér má sjá hversu djúpt niður í jörðina bílakjallarinn nær. 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 2021 Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Vefverslunin alltaf opinwww.listverslun.is Verkfæralagerinn án.-m. kl. 9-18, fs. kl. 9-180, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-1 Kolibri trnur í miklu úrvali, gæða- vara á góðu verði Kolibri penslar Handgerðir þýskir penslar í hæsta gæðaokki á afar hagstæðu verði Ennþá meira úrval af listavrum WorkPlus Strigar frá kr. 195 Norsk stjórnvöld hafa heimilað veið- ar á 1.278 hrefnum í ár og er það sami kvóti og síðustu ár. Í fyrra stunduðu 13 norsk skip hrefnuveiðar og komu að landi með 503 dýr, sem var aukning frá árinu áður. Síðustu þrjú ár hefur kvótinn verið sá sami, 1.278 hrefnur, en aflinn öll árin verið vel innan við helmingur hans. Fram kemur í frétt á heimasíðu Norges sildesalgslag að í norskri lögsögu séu um 100 þúsund hrefnur. Kvótinn sé ákveðinn með hliðsjón af reiknilíkani vísindanefndar Alþjóða- hvalveiðiráðsins. Haft er eftir Odd Emil Ingebrigt- sen, sjávarútvegsráðherra í Noregi, að hvalveiðar Norðmanna snúist um réttinn til að nýta náttúruauðlindir og veiðunum sé stjórnað á grund- velli vísindalegrar þekkingar og sjálfbærni. Að auki sé hvalkjöt holl- ur og góður matur og Norðmenn vilji hafa hrefnukjöt í kvöldmat. Segist Ingebrigtsen vonast til að aukin neysla á hvalkjöti haldi áfram á þessu ári. Hrefnuveiðar hafa ekki verið stundaðar hér við land tvö síðustu ár. aij@mbl.is Leyfa veiðar á 1.278 hrefnum við Noreg  Sjálfbærar veiðar  Hollur matur Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Hrefna á Faxaflóa Veiðar hafa ekki verið stundaðar hér við land í tvö ár.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.