Morgunblaðið - 23.02.2021, Síða 11

Morgunblaðið - 23.02.2021, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 2021 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur (HER) telur talsverðar líkur á því að fyrirhuguð stækkun og landfylling í Sundahöfn valdi neikvæðum áhrif- um á samfélagið, bæði hvað varðar sjónræna þætti og vegna hávaða- mengunar. Þetta kemur fram í umsögn heil- brigðiseftirlitsins til Skipulagsstofn- unar vegna matsáætlunar fyrir þró- un Sundahafnar. Jafnframt bendir eftirlitið á að skoða þurfi ítarlega möguleg áhrif á lífríkið. Eins bendir HER á þann valkost að kanna aðra staðsetningu fyrir vöruhöfn í nágrenni borgarinnar, þar sem minni líkur eru á ónæði. Þessu hafna fulltrúar meirihluta- flokkanna í umhverfis- og heilbrigð- isráði Reykjavíkur. HER bendir á í umsögn sinni að við tilfærslu hafnarbakka breytist sú skermun sem núverandi aðstæður veiti nærliggjandi íbúðabyggð. Þeg- ar fyllt verði upp í núverandi hafn- arstæði færist meginstarfsemin ut- ar, sem opni fyrir að hljóð berist frekar í nærliggjandi hverfi. Á sama tíma séu skipin sem hing- að sigla að stækka, fleiri gámahæðir séu á þeim og þar með myndist vinnuhljóð í meiri hæð en áður. Einnig berist hávaði frá vélum, ljósavélum, frystigámum og frá vinnu við lestun og losun. „HER hafa á síðustu árum borist kvartanir um ónæði og hávaða sem veldur næturtruflunum í Voga- hverfi, Heimum, Laugarneshverfi, Teigum og jafnvel Grafarvogi. Í lok síðasta árs og í byrjun þessa fjölgaði kvörtunum mjög mikið og hafa aldr- ei verið fleiri. Uppruni ónæðis er sagður vera frá vinnu á hafnarsvæði og frá ljósavélum skipa og hafa íbúar tekið upp myndbönd og birt á hverfissíðum og sent HER,“ segir í umsögninni. Stofnunin hefur byrjað hljóðmælingar til að kanna hvort ákvæði hávaðareglugerðar séu brot- in og staðfesta uppruna hávaðans. Telur hún að meta þurfi áhrif hávaða sem berst frá breyttu hafnarsvæði til íbúðabyggðar og gera grein fyrir mótvægisaðgerðum. Getur komið til árekstra HER bendir á að íbúðasvæðum í nágrenni Sundahafnar sé að fjölga því uppbygging sé í gangi í Voga- hverfi, Ártúnshöfða, Bryggjuhverfi og Gufunesi. Fyrirséð sé að árekstr- ar geti orðið vegna mengunar sem berst frá hafnsækinni starfsemi. „Hvað varðar aðra valkosti telur HER að kanna ætti aðra staðsetn- ingu í nágrenni borgarinnar, þar sem minni líkur eru á ónæði frá hafnarstarfsemi í íbúðabyggð,“ seg- ir í umsögn heilbrigðiseftirlitsins. Fulltrúar meirihlutaflokkanna, Samfylkingar, Pírata og Vinstri grænna, í umhverfis- og heilbrigð- isráði benda á í bókun að Sunda- höfnin sé meginflutningsgátt til og frá landinu og nauðsynlegt sé að þeir innviðir sem þar hafa byggst upp nýtist til framtíðar. Það væri hvorttveggja óumhverfisvænt og samfélagslega óhagkvæmt að leggja niður núverandi starfsemi og myndu ótímabærar afskriftir fjár- festinga og aukinn akstur fara út í verðlag. Á sama tíma þurfi að lágmarka ónæði í nærliggjandi byggðum og tryggja að starfsemin skerði ekki lífsgæði íbúa. Í því skyni þurfi að efla hljóðvarnir, bæta ásýnd og tryggja að starfsleyfum sé fylgt. Fyrirhuguð hafnargerð í Sunda- höfn á vegum Faxaflóahafna felur m.a. í sér lengingu Skarfabakka til suðurs að Kleppsbakka, uppfyllingu og landgerð og aflagningu eldri bakka í Vatnagörðum. Viðamesta verkið verður landfyll- ing fyrir framan vöruhótel Eim- skips. Áætlað er að í fyllinguna fari 1.125.000 rúmmetrar efnis. Við þessa framkvæmd verður til 300 metra langur nýr hafnarbakki en eldri bakkar, alls um 770 metrar, leggjast af. Með landgerðinni verður til 75 þúsund fermetra svæði fyrir gáma og aðra hafnarstarfsemi. Efni í landgerðina mun að mestu fást með dælingu af hafsbotni en einnig mun hluti þess koma frá námum á landi. Áætlað er að hefja framkvæmdir haustið 2022. Fyrir liggur samþykkt aðalskipulag. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Nýi Dettifoss Skipin í kaupskipaflotanum hafa farið stækkandi undanfarið. Morgunblaðið/Eggert Sundahöfn Það verður mikið verkefni að fylla höfnina fyrir framan vöruhótel Eimskips við Vatnagarðabakka. Óttast aukinn hávaða frá Sundahöfn  Önnur staðsetning vöruhafnar verði könnuð  Fulltrúar meirihluta segja flutning óhagkvæman

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.