Morgunblaðið - 23.02.2021, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 2021
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Víðtækt flugbann var í gær og fyrradag sett á Bo-
eing-777-flugvélar í framhaldi af því að annar
hreyfillinn á einni þotu United Airlines af þessari
gerð sprakk í tætlur skömmu eftir flugtak í Denver
í Colorado-ríki í Bandaríkjunum á laugardag. Nær
bannið til B-777 með Pratt & Whitney-hreyfla en
flugmönnum United-þotunnar tókst að snúa við og
lenda aftur heilu og höldnu í Denver án þess að
nokkurn sakaði um borð.
Mælti Boeing með banni við flugi 777-flugvéla
um heim allan með hina tilteknu hreyfla. Náði það
til samtals 128 flugvéla United í Bandaríkjunum,
ANA og JAL í Japan og Asiana Airlines í Suður-
Kóreu. Yfirvöld í viðkomandi löndum lögðu einnig
blátt bann við notkun flugvélanna þar til rannsókn
væri lokið á ástæðum þess að kviknaði í hreyflinum
og hann sprakk. Í myndbandi sem tekið var innan
úr þotunni mátti sjá loga í hægri hreyflinum sem
vaggaði á vængfestingunum. Um borð voru 231
farþegi og 10 manna áhöfn.
Vélarhlífin rifnaði af og féll til jarðar í borg-
arhlutanum Broomfield ásamt frekara braki úr
þotunni. Stærsta stykkið skall til jarðar aðeins
tveimur til þremur metrum frá útihurð íbúðarhúss.
Brak dreifðist einnig yfir íþróttavöll en enginn
varð fyrir hrapandi flugvélarhlutum, að sögn lög-
reglu.
Farþegar United-þotunnar, flugs United 328,
skýrðu frá „mikilli sprengingu“ skömmu eftir flug-
tak. „Þotan tók að hristast ofsalega og lækkaði
flugið hratt,“ sagði farþegi að nafni David Delucia.
Hann bætti við að þau hjónin hefðu stungið seðla-
veskjum sínum í vasann svo kennsl mætti bera á
þau færist flugvélin, sem var á leið frá Denver til
Honolulu á Havaí-eyjum.
Í framhaldi af óhappinu hefur bandaríska flug-
málastjórnin (FAA) fyrirskipað aukaskoðun á öll-
um Boeing 777-þotum með Pratt & Whitney 4000-
hreyflana áður en þær verða teknar í notkun aftur.
„Við skoðuðum öll fáanleg gögn úr flugvélinni í
framhaldi af atvikinu,“ sagði forstjóri FAA, Steve
Dickson. „Á grundvelli fyrstu upplýsinga höfum
við ákveðið að tíminn milli flughæfisskoðana á blás-
arablöðum þotuhreyflanna skuli styttur en hol
hreyfilblöðin er ekki að finna í neinum öðrum flug-
vélum sem Boeing smíðar.
Bann til bráðabirgða á þotuhreyflana
Áformaður var fundur FAA með vélarframleið-
andanum og Boeing í gær. Frumniðurstöður at-
hugunar samgönguöryggisstofnunar Bandaríkj-
anna (NTSB) á hreyflinum eftir lendingu voru að
mestar skemmdir hefðu orðið af völdum tveggja
hreyfilblaða sem brotnuðu af og stungust í skrokk
þotunnar. Hafi búktjónið verið óverulegt.
Bretar ákváðu í gær að banna í lofthelgi sinni allt
flug Boeing 777-flugvéla með sömu þotuhreyfla og
flugvélin sem þurfti að snúa aftur til Denver. Sam-
gönguráðherrann Grant Shapps sagði bráða-
birgðabannið ná til Pratt & Whitney 4000-112-
hreyfla. Kvaðst hann myndu vinna náið með
breska loftferðaeftirlitinu vegna málsins. Bresk
flugfélög eiga hvorki né reka flugvélar með við-
komandi hreyfli. United Airlines er eina banda-
ríska flugfélagið sem hefur B-777-þotuna í rekstri.
Öllum Boeing-777-þotum með Pratt & Whitney-
hreyfla ber að forðast lofthelgi Japans með öllu þar
til annað verður ákveðið. Þetta á við um flugtak,
lendingu og flug yfir landinu. Hefur japanska
stjórnin samþykkt að flugfélögin JAL og ANA
hætti ótímabundið notkun þessara flugvélarteg-
unda sinna.
Í nýliðnum desember neyddist 777-þota frá JAL
til að snúa aftur og lenda á Naha-flugvelli vegna
ótilgreindrar bilunar í vinstra hreyfli. Hún var
jafngömul þotunni sem hreyfillinn sprakk í sl.
laugardag eða 26 ára. Árið 2018 brotnaði hægri
hreyfill United Airlines-þotu af sömu gerð rétt fyr-
ir lendingu í Honolulu. Var það niðurstaða NTSB
að sprunga eftir endilöngu hreyfilblaði hefði orsak-
að bilunina.
Hið dramatíska flug United-þotunnar er nýtt
áfall fyrir stærstu flugvélasmiðju heims. 737 MAX-
þotur hennar voru kyrrsettar frá mars 2019 eftir
að 346 manns fórust í tveimur slysum með stuttu
millibili; með þotum Lion Air í Asíu 2019 og þotu
Ethiopian Airlines árið eftir. Niðurstaða rannsak-
enda var að gallaður stjórnbúnaður, svonefndur
MCAS-búnaður, hefði valdið slysunum. Varð Bo-
eing að lagfæra það frá grunni og umskrifa
þjálfunarbækur flugmanna.
737 MAX sló í gegn hjá flugfélögum og seldist
hraðar en nokkur önnur þota Boeing þar til flug-
bannið var sett á hana, en því var nýlega aflétt.
Með kórónuveirufaraldrinum hrundi eftirspurn
eftir flugvélum og afpöntuðu félög hundruð MAX-
véla.
Yfirvöld í Hollandi sögðust í gær vera að rann-
saka hreyfileld í Boeing 747-400-flutningaþotu sem
lét braki rigna niður yfir lítinn bæ, Meerssen, í
Hollandi á svipuðum tíma sl. laugardag og hreyfill
United-flugvélarinnar eyðilagðist í eldi. Hollenska
þotan var nýfarin í loftið á Maastricht-Aachen-
flugvellinum skammt frá Meerssen í suðurhluta
Hollands er atvikið átti sér stað. Slösuðust tveir
menn er þeir urðu fyrir fallandi braki úr þotunni
sem var á leið til New York með vörur og lyf. Notar
747-400-þotan smærri útgáfu af Pratt & Whitney-
hreyflinum sem var í B-777-þotunni í Denver.
AFP
Brak Hurð skall nærri hælum er fremsti hluti hreyfilkápunnar og annað smábrak hrapaði niður á ein-
býlishússlóð í Broomfield skammt frá Denver. Á svipuðum tíma rigndi braki einnig niður í Hollandi.
B-777-þotur Boeing kyrrsettar
Annar hreyfla B-777-þotu United Airlines sprakk rétt eftir flugtak Braki úr log-
andi hreyfli B-747-þotu rigndi nær samtímis niður í Hollandi þar sem tveir slösuðust
Síðasta sólarhring fór tala látinna af
völdum kórónuveirunnar í Bandaríkj-
unum upp fyrir hálfa milljón frá því
kórónufaraldurinn blossaði upp fyrir
rösku ári. Vaxandi vonir eru um að
bólusetning sé að verða almennari og
afkastameiri víða um heim.
Þar sem bólusetningar eru komnar
á skrið í Bandaríkjunum eru vonir
bundnar við að úr tíðni dauðsfalla
dragi fljótt. Þá hefur nýsmiti fækkað
síðustu daga. Joe Biden forseti segir
manninn með ljáinn við störf og var-
aði hann við því að allt að 600.000
manns gætu látist áður en kórónu-
veiran yrði kveðin í kútinn. „Þetta er
hræðilegt og sögulegt. Við höfum ekki
séð neitt í líkingu við þetta í yfir
hundrað ár, eða frá faraldrinum 1918.
Það fær á mann að horfa á þessar töl-
ur, nær ótrúlegar en samt sannar,“
sagði Anthony Fauci, aðalráðgjafi
Bidens varðandi kórónuveiruna, við
NBC-stöðina í gær.
Í gærmorgun stóð tala látinna í
498.897 manns, að sögn Johns Hopk-
ins-háskólans sem haldið hefur saman
gögnum um útbreiðslu kórónuveir-
unnar. Er heildardauði á heimsvísu
að nálgast 2,5 milljónir manns.
Að sögn sóttvarna Bandaríkjanna
(CDC) hefur rúmlega 61 milljón
manna fengið fyrri skammt bóluefnis
gegn kórónuveirunni í Bandaríkjun-
um. Eiga 18 milljónir eftir að fá seinni
skammtinn. Hefur Biden forseti haft
það í forgangi að ná því að bólusetja
100 milljónir manna fyrstu 100 dag-
ana sem húsbóndi í Hvíta húsinu.
Boris Johnson, forsætisráðherra
Bretlands, gerði breska þinginu í gær
grein fyrir áætlun um afnám aðgerða
gegn kórónuveirunni í áföngum sem
gætu þýtt að Bretar komist undan oki
veirunnar í sumarlok. Til afar
strangra aðgerða var gripið í byrjun
janúar er upp kom í Bretlandi af-
brigði af kórónuveirunni sem þótt
hefur illskeyttara og dreifa sér hraðar
en frumgerð veirunnar.
Hálf milljón látin
í Bandaríkjunum
Bretar stefna að tilslökunum í júní
AFP
Nottingham Bólusetningar ganga
vel í Bretlandi og vilja Bretar slaka
á aðgerðum sínum fljótlega.
Hæstiréttur
Bandaríkjanna
hafnaði í gær
kröfu Donalds
Trumps fyrrver-
andi Bandaríkja-
forseta um að
lagt yrði bann
við því að skatt-
framtöl hans
yrðu afhent sak-
sóknurum í New York.
Dómarar Hæstaréttar létu ógert
að útskýra ákvörðun sína en
Trump hefur hefur háð harða bar-
áttu fyrir dómstólum gegn því að
Cyrus Vance saksóknari Manhatt-
an fengi að komast í skatt-
framtölin.
Vance hefur viljað fá framtölin
allt aftur til 2011 vegna athugunar
á ætluðum peningagreiðslum til
tveggja meintra hjákvenna
Trumps. Hefur það leitt til frekari
skoðunar á hugsanlegu undanskoti
hans á sköttum svo og trygginga-
og bankasvindli, að sögn AFP-
fréttastofunnar.
BANDARÍKIN
Mega afhenda
framtöl Trumps
Donald Trump
Sendiherra Ítalíu
í Austur-Kongó,
Luca Attanasio,
beið bana í árás á
bílalest Mat-
vælahjálpar Sam-
einuðu þjóðanna
við Goma í aust-
urhluta Kongós í
gær.
Auk sendiherr-
ans beið einnig ítalskur lög-
reglumaður bana í árásinni. Lýsti ut-
anríkisráðherrann Luigi Di Maio
hryggð sinni og sorg vegna atviks-
ins. Sat hann á fundi í Brussel er
árásin spurðist út og sneri þegar í
stað til Rómar. Hét hann því að allt
yrði gert til að komast til botns í
málinu.
Attanasio var 43 ára og var
fulltrúi Ítalíu í Kinshasa frá 2017.
Hann hóf störf í ítölsku utanrík-
isþjónustunni 2003 og hafði m.a.
starfað í Sviss, Marokkó og Nígeríu.
AUSTUR-KONGÓ
Luca Attanasio
Sendiherra Ítalíu
skotinn til bana