Morgunblaðið - 23.02.2021, Side 19

Morgunblaðið - 23.02.2021, Side 19
mér sem bróðir. Væntumþykja okkar umvefur stelpurnar hans, Hófí, Ásu Karen og Unu, móður og aðra ástvini sem aftur þurfa að takast á við svo mikinn missi. Blessun fylgi minningunum um feðgana fallegu, Jón Börk og Jón Ólaf, sem fóru svo alltof snemma. Guðrún Pétursdóttir. Kær vinur og samstarfsmaður er fallinn frá. Við minnumst Jónsa sem áhugasams nemanda í námskeiðum í lífeðlisfræði. Hann var hrókur alls fagnaðar í þéttum hópi líffræðinema sem voru uppá- tækjasamir og gengu hratt um gleðinnar dyr. Að loknu BS-námi í lífræði byrjaði hann að kenna verklega lífeðlisfræði. Hann tók einnig þátt í ýmsum rannsókn- arverkefnum við Rannsóknar- stofu HÍ í lífeðlisfræði, meðal annars samanburðarrannsókn á áhættuþáttum hjartasjúkdóma meðal Héraðsbúa og afkomenda þeirra sem fluttust frá Héraði til Kanada um aldamótin 1900. Jónsi fór í framhaldsnám til Gautaborgar. Þar vann hann á rannsóknarstofu í lífeðlisfræði, þar sem áhersla var lögð á rann- sóknir á stjórn hjarta og æða- kerfis. Jónsi og hans fjölskylda nutu dvalarinnar í Svíþjóð. Hann mat mikils hið faglega umhverfi og eftir að hann kom til Íslands hélt hann góðum tengslum við fyrrverandi samstarfsmenn á rannsóknarstofunni. Þegar heim var komið að dokt- orsnámi loknu setti Jónsi upp eig- in rannsóknarstofu á Lífeðlis- fræðistofnun HÍ. Þar hélt hann áfram rannsóknum á sama sviði og hann hafði unnið við í Svíþjóð. Hann var mjög fingrafimur við aðgerðir á tilraunadýrum, eins og að þræða slöngur í grannar æðar og erta taugar og skrá frá þeim. Einnig var hann alltaf reiðubúinn til að leiðbeina nemendum og samstarfsmönnum við þessar að- gerðir. Við eigum góðar minn- ingar frá þeim tíma þegar við unnum saman að verkefni um stjórn fæðutöku og líkamsþyngd- ar. Þar nutum við færni Jónsa við lyfjagjöf í heilahol. Jónsi kenndi aðallega nemum í hjúkrunarfræði og læknisfræði, og lagði sig einnig allan fram við að leiðbeina nemum í framhalds- námi. Hann hafði áhuga á tölvum og var alltaf reiðubúinn að miðla þekkingu sinni á því sviði til sam- starfsmanna. Hann átti frum- kvæði að tölvuvæðingu verklegr- ar kennslu í lífeðlisfræði. Ennfremur hafði hann áhuga á tölfræði og var reiðubúinn að að- stoða okkur við hana. Hann sinnti stjórnun við Háskóla Íslands af mikilli alúð. Hann var forstöðu- maður Lífeðlisfræðistofnunarinn- ar um árabil, tók virkan þátt í stjórnunarstörfum í hjúkrunar- fræðideild og sat um tíma sem fulltrúi Félags háskólakennara í háskólaráði. Jónsi hafði ákveðnar skoðanir og var tilbúinn að verja þær, hvort heldur þær voru fag- legs eðlis eða um málefni líðandi stundar. Við minnumst góðra samveru- stunda með Jónsa og fjölskyldu. Ekki síst í tengslum við að Jón Börkur og Hrund dóttir okkar voru saman í sveit hjá Önnu Birnu og Sigga í Varmahlíð und- ir Eyjafjöllum í tvö sumur. Eft- irminnilegar eru veiðiferðir í Holtsós á sumarkvöldum þar sem hefðbundnum eyfellskum veiðiaðferðum var beitt. Það var mikið áfall fyrir fjölskyldu Jónsa þegar Jón Börkur féll frá í kjöl- far flugslysins í Skerjafirði árið 2000. Við komum til með að sakna þess að hitta ekki lengur Jónsa með hundinn sinn á göngu með Ægisíðunni og spjalla við hann. Oftar en ekki barst talið að Hófi og dætrum þeirra sem hann var mjög stoltur af. Við, dætur okkar og þeirra fjölskyldur vottum Hófí, Unu Björk, Ásu Karen og öðrum að- standendum okkar dýpstu sam- úð. Guðrún og Logi. Jón Ólafur Skarphéðinsson hefur nú kvatt þennan heim eftir snarpa baráttu við illvígan sjúk- dóm. Ég varð þeirrar gæfu að- njótandi að fá að vera honum samferða stóran hluta ævinnar en hafði vænst þess að fá að gera það töluvert lengur. Þetta sam- ferðalag okkar hófst í bekk 7 ára B hjá Ásu í Hlíðaskóla og vorum við bekkjarbræður allt þar til við útskrifuðumst úr 23ja ára bekk í líffræði frá Háskóla Íslands. Jónsi bar strax höfuð og herðar yfir okkur hina, og gnæfði hátt upp úr beinu röðinni sem skylda var að mynda í þá daga áður en börnum var hleypt inn í skólann. Þrátt fyrir talsverða fjarlægð og mýrarfenið Kringlumýri sem skildi að okkur Hvassaleitinga og Hlíðabúa, tókst fljótt náinn vin- skapur milli okkar Jónsa, og myndaðist þá klíkan okkar sem átti eftir að endast til æviloka. Jónsi mátti eins og aðrir þola ýmsar raunir í lífinu, en sú lang- stærsta var auðvitað flugslysið hræðilega í Skerjafirði þegar son- urinn Jón Börkur var hrifinn brott í blóma lífsins. Slíkt áfall fyrir fjölskyldu er ómögulegt fyr- ir utanaðkomandi að gera að fullu sér í hugarlund, en slysið ásamt löngum eftirmálum þess höfðu ævilöng, djúpstæð áhrif á Jón. Þrátt fyrir þungar raunir á köfl- um væru það hrein öfugmæli að lýsa Jónsa sem blúsuðum karakt- er, en hann var hins vegar blús- maður af guðs náð. Við gengum saman gegnum ýmsar tónlistar- stefnur, poppið og síðan þunga- rokkið á unglingsárunum, pro- grokk, jass o.fl. á menntaskólaárunum, en síðan varð blúsáhuginn hæstráðandi hjá Jónsa. Eins og flest annað á þeim bænum var blúsinn tekinn föstum tökum og var Jón ekki spar á að leyfa félögunum að njóta með sér, í tóndæmum og frásögnum, ýmiss konar jaðar- þekkingu sem hann hafið grafið upp á því sviði. Og tóndæmin voru ekki leikin af neinni hóg- værð, hvort sem var í veiðitúrum eða heima hjá honum, því Jón var græjukarl fram í fingurgóma. Síðustu tóndæmin, ásamt tilheyr- andi fróðleiksmolum um nýjasta nýtt í tæknimálum sem við Gunni fengum að njóta frá Jónsa, komu úr splunkunýju tæki í stofunni heima hjá honum fyrir örfáum vikum. Jón valdi lífeðlisfræði sem sér- grein innan líffræðinnar, og þar var ekki síður farið í dýptina af mikilli ákefð, sem skilaði sér fljótt og vel í doktorsprófi, prófessors- stöðu og síðan farsælum starfs- ferli. Jónsi var mikill veiðimaður og náttúruunnandi. Kannski hafa sumardvalirnar í nálægð við sandana miklu á Suðurlandi ýtt undir mikinn áhuga hans á land- græðslu, og Jónsi tók þar harða afstöðu með vinkonu sinni lúp- ínunni. En hann skilur líka eftir sig alvöru vinkonur sem hann elskaði út af lífinu, Hófí, dæt- urnar Unu Björk og Ásu Karen og móður sína Höllu. Skarðið stóra sem höggvið er í vinahópinn okkar strákanna bliknar í sam- anburði við þann mikla harm sem kveðinn er að þessum konum í lífi Jóns Ólafs Skarphéðinssonar og bræðrum hans fjórum. Gísli Arnór Víkingsson. „Það að vera lifandi, er í sjálfu sér banvænt,“ sagðirðu í framhjá- hlaupi í Vatnsdalnum í fyrra. Þar gafstu í skyn að þig grunaði að eitthvað væri að heilsu þinni sem gæti skipt sköpum. U.þ.b. 8 mán- uðum síðar, um mánuði fyrir and- lát þitt, talaðirðu undir rós við okkur Gilla, þegar þú sættir ann- arri geislameðferð, keikur. Sagðir u.þ.b. þetta: „Næsta skref er sennilega líknardeildin.“ Enginn sagði neitt fyrr en þú sagðir: „Hva, það fara allir, þið líka! Þið vitið bara ekki alveg hvenær, enn þá.“ Svo bauðstu meira kaffi. Þú varst svo margt; stór, flók- inn, traustur, ósérhlífinn. Sjálfs- elskur en samt ást- og skilnings- ríkur við óvæntustu skilyrði. Stemningsmaður. Sterkur en samt veikur á svellinu. Óhræddur og upplitsdjarfur. Særandi en stundum svo yndislegur vinur að ég hefði tekið utan um hálsinn á þér ef ég næði upp. Tók utan um brjóstkassann í staðinn. Nema þegar þú mundir að beygja þig á móti. Sem þú áttir raunar oft erf- itt með út af bakinu. Það var gjaldið fyrir að vera stór, og bera þungt höfuð. Með fáum nákomnum hef ég varið meiri tíma en þér í mínum frístundum. Með fjölskyldum, MH-vinunum, þínum vinahópi, eða mínum eftir atvikum. Oftar en ekki í veiði. Margoft hefur þú verið eins og fjórði bróðir okkar bræðra þriggja. Sjálfur sagðist þú vera stærsti bróðirinn, sem var óumdeilt. Eða þá myndarleg- asti bróðirinn, sem var umdeilt. Þið Hófí fóruð til útlanda og þú lærðir þína lífeðlisfræði. Þar til þú vissir næstum allt um næstum ekki neitt, svo ég vitni í þig sjálf- an. Aldrei heimsóttum við Ásdís ykkur Hófí þar. En þegar þú komst heim eftir sjö ár tókum við upp þráðinn á sama stað og við skildum hann eftir. Það var eins og hefði einungis liðið vika. Þú varðst doktor frá HÍ 32 ára og prófessor nokkrum árum síð- ar. Fyrstur í vinahópnum af þremur doktorum og tveimur prófessorum. Fáir hafa orðið doktorar yngri en þú, trúi ég. Þú hafðir nánast alla hjúkr- unarfræði- og marga líf-, mat- væla-, læknis- og tannlæknis- fræðinema þessa lands í læri í áratugi. Þ.á m. allar þrjár dætur mínar. Þær hugsa til þín með miklum hlýhug og fannst þú frá- bær kennari sem hvatti nemend- ur sína til að hugsa sjálfstætt, rökrétt og gagnrýnið. Engan Trumpisma, takk. En þetta var bara vinnan þín. Stelpurnar þekktu þig líka per- sónulega og muna hve klár, hnyttinn, hvetjandi og fræðandi þú gast verið. Semsé góður kenn- ari í húð og hár. Vita skaltu að þeim þykir vænt um þig. Þú áttir líka til að bresta í miklar fræðilegar pælingalang- ferðir við lágstemmdan blúsund- irleik þegar við vorum úti að aka á vegum landsins. Á leið á veiði- slóð eða á gangi milli veiðistaða. Það var alltaf stutt í kennarann í þér. Ásdís man að þú tókst að þér að hjálpa henni og Hófí að búa sig undir stærðfræðipróf í MH. Ásdís náði. Hófí náði líka – í þig. Alla vega stóð hún við hlið þér og studdi við bakið á þér, í blíðu og stríðu í gegnum lífið uns yfir lauk. Kennarinn aftur. Örlagavaldur. Þín verður sárt saknað kæri vinur. Það verður ekkert eins. Við Ásdís og restin af Hoffsfjölskyld- unni hugsum hlýtt til ykkar; Hófí, Una, Ása, Halla og Baddi. Send- um ykkur af alefli okkar bestu strauma. Gunnar Oddur Rósarsson. Við Jón Ólafur vorum sam- stúdentar frá MH. Ég þekkti hann ekki mikið á menntaskóla- árunum en við vorum málkunnug. Það breyttist því við réðum okkur bæði um svipað leyti til starfa við Hjúkrunarfræðideild HÍ og átt- um þar farsælt samstarf í rúm 30 ár. Jón Ólafur var stór og glæsi- legur maður með sterka nærveru og sterkar skoðanir. Rannsókn- arsvið hans var lífeðlisfræði og lutu flestar rannsóknir hans að áhrifum ósjálfráða taugakerfisins á starfsemi hjarta og æða og stjórn blóðþrýstings, blóðflæðis og blóðþurrðar og margvíslegra áhrifa lyfja á þessa þætti. Rann- sóknir sínar stundaði hann með samstarfsfólki hjá Lífeðlisfræði- stofnun HÍ. Samstarf okkar sneri hins vegar að mestu að lífeðl- isfræðikennslu hjúkrunarfræði- nema. Hann hafði mikinn metnað fyrir menntun hjúkrunarfræðinga og það var gæfa hjúkrunarfræði- deildar að fá hann til starfa. Hann gerði miklar kröfur til kunnáttu í lífeðlisfræði en leitaði jafnframt leiða til að auðvelda nemendum að skilja efnið og tengja það við flókin störf hjúkr- unarfræðinga við umönnun sjúk- linga. Þá var hann frumkvöðull í að nota vefsíðuna kuracloud í kennslu en í gegnum þá síðu unnu nemendur ýmis verkefni tengd lífeðlisfræðinni sem auð- velduðu þeim að tileinka sér tengsl lífeðlisfræðinnar við virkni mannslíkamans. Við Jón Ólafur vorum ekki alltaf sammála um vægi lífeðlisfræðinnar í kennslu hjúkrunarfræðinema. Hefði hann ráðið væru allir hjúkrunarfræð- ingar „mini“ lífeðlisfræðingar og við gátum tekist hraustlega á um hvað væri mikilvægt að kenna og hvaða rými við hreinlega hefðum í kennsluskránni. En þegar grundvallargildi fara saman eins og í okkar tilfelli þá náðist alltaf niðurstaða sem allir voru sáttir við. Jón Ólafur og kona hans Hólmfríður urðu fyrir því skelfi- lega áfalli að missa son sinn Jón Börk árið 2001 í kjölfar flugslyss í Skerjafirði. Við í hjúkrunarfræði- deildinni fylgdumst náið með framvindu Jóns Barkar það tæpa ár sem hann lifði eftir slysið en Jón Ólafur ræddi við okkur reglu- lega um líðan sonar síns, aðbúnað hans, hjúkrun sem hann fékk og eigin líðan. Hann fékk þarna meiri reynslu af þjónustu heil- brigðiskerfisins og hjúkrunar- fræðinga en flestir á hans aldri höfðu og nýtti þá reynslu í kennslu og við almenn stjórnun- arstörf í deildinni til að byggja upp færa einstaklinga til starfa við hjúkrun sjúklinga. Jón Ólafur hafði mikinn áhuga á að leiðbeina hjúkrunarfræðing- um í rannsóknum þeirra og tengja viðfangsefni hjúkrunar líf- eðlisfræðinni í gegnum rann- sóknaverkefnin. Þar átti hann mikið verkefni óunnið en aðrir munu halda starfi hans áfram. Jón Ólafur kenndi flestöllum nemendum á Heilbrigðisvísinda- sviði HÍ lífeðlisfræði. Hann var virtur og vel metinn kennari og það er mikill missir að slíkum samstarfsmanni. Við samstarfs- fólk hans í hjúkrunarfræðideild sjáum á bak góðum félaga sem hafði mikinn metnað fyrir hönd hjúkrunar. Mestur er þó missir Hólmfríðar, Unu Bjarkar og Ásu Karenar og færi ég þeim inni- legar samúðarkveðjur fyrir hönd hjúkrunarfræðideildar og heil- brigðisvísindasviðs. Blessuð sé minning góðs manns. Herdís Sveinsdóttir, deildarforseti Hjúkr- unarfræðideildar HÍ. Ég skrifa þessar línur til að minnast kærs vinar, Jóns Ólafs Skarphéðinssonar eða Jónsa eins og hann var oftast kallaður. Nú þegar kveðjustund er runnin upp stingur það mig hvað okkar dýr- mætustu tilfinningar, ást og vin- átta, gera okkur mannfólkið síðar berskjölduð gagnvart sorg og söknuði. Það er tilfellið jafnt í mannlegu sem landfræðilegu samhengi að hæstu tindunum fylgja dýpstu dalir. Ég vissi fyrst af Jónsa í Hlíða- skóla á barnaskólaárunum og hann því verið innan minnar rat- sjár í yfir hálfa öld. Leiðir okkar lágu samsíða á unglingsárunum og vinahóparnir tengdir. Þegar hann og mín nánasta vinkona Hófí rugluðu saman reytum urðu samskiptin enn nánari. Ég á margar hamingjuminningar frá þessari vegferð. Auk fjölskyldu- stunda áttum við Jónsi saman áhuga á stangveiði og fórum ótal ferðir í slíkum erindagjörðum. Til að byrja með með Skarphéðni föður Jónsa í Sogið en síðan víða um land í ár og fjallavötn. Ef það er eitthvað eitt sem ég tengi Jónsa sérlega við, þá er það sum- arnóttin. Við vöktum gjarnan fram á morgun á þessum ferðum okkar, ekki vegna veiðidellu held- ur vegna þess hvað íslenska sum- arnóttin er dásamleg. Þá var ekki skrafað mikið, heldur bara notið kyrrðar, birtu og fugla. Ég er þakklátur fyrir þær stundir sem Jónsi gaf mér og allan þann fróðleik sem hann miðlaði. Hann var jú doktor og prófessor í lífeðlisfræði og hafði af rannsóknum í þeim fræðum margar magnaðar sögur að segja. Þegar kom að því að meta lífsins spurningar hafði hann báða fætur á jörðinni, al- gerlega raunsær og gaf ekki mikið fyrir skýringar sem byggjast á annarra heima mátt- arvöldum. Nú þegar endi hefur verið bundinn á þessar sam- verustundir verður dýrmæti stundarinnar skýrt. Við Jónsi eigum að hluta ræt- ur í sjöunda áratugnum og þeir sem eru þaðan komnir eru gjarnan annaðhvort Bítla- eða Stones-menn. Jónsi var Stones- maður. Blús litaði þeirra verk og blús var Jónsa tónlist. Það er því viðeigandi við ferðalok að fá að láni hluta kveðjuorða sameiginlegs félaga og blús geggjara, KK, úr ljóð- inu „Englar himins grétu í dag“, sem ort er í minningu Jóns Barkar, sonar Jóns og Hólmfríðar: Allt var kyrrt og allt varð hljótt Miður dagur varð sem nótt Sorgin bjó sig heiman að Englar himins grétu í dag Elsku Hófí, Una Björk og Ása Karen, við Laufey og börnin okk- ar sendum ykkur okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Megi gæfa og góðar vættir varða veginn ykkar alla tíð. Bergur Þórisson. MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 2021 Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, RAFN MAGNÚSSON vélfræðingur og kennari, Löngulínu 7, Garðabæ, lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold í Garðabæ mánudaginn 15. febrúar. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju fimmtudaginn 25. febrúar klukkan 13. Innilegustu þakkir til alls starfsfólks dvalarheimilisins Ísafoldar í Garðabæ. Eva Guðmundsdóttir Vilborg Rafnsdóttir Kristinn Rafnsson Sólborg Tryggvadóttir Elsa Rafnsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÚLÍUS RÚNAR HÖGNASON, Júlli Högna, Kirkjuvegi 11, Keflavík, varð bráðkvaddur á heimili sínu laugardaginn 13. febrúar. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 26. febrúar klukkan 11:00. Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu aðstandendur viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður streymt á https://www.facebook.com/groups/jullihogna Hlekk á streymi er hægt að nálgast mbl.is/andlat Guðmunda Kristín Reimarsdóttir Júlíana Guðrún Júlíusdóttir Árni Jens Einarsson Jóhann Reimar Júlíusson María Jóhannesdóttir Regína Júlíusd. Buchanan Alexander Eugene Buchanan Högni Þorsteinn Júlíusson Amy Greenberg Hulda María Einarsdóttir Einar Már Atlason afabörn og langafabörn Okkar elskaði, HANNES HALL, Stigahlíð 43, lést á Landspítalanum Fossvogi þriðjudaginn 16. febrúar. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 26. febrúar klukkan 13. Ragnheiður Hall Steinunn Hall Jón Ingi Jónsson Jóhanna Sveinsdóttir María Eir og Anna Sigríður Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, HALLDÓRA G. J. HALLDÓRSDÓTTIR, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi sunnudaginn 14. febrúar. Útförin fer fram frá Landakotskirkju föstudaginn 26. febrúar klukkan 15. Þar sem takmarka þarf fjölda kirkjugesta verður útförinni streymt á Facebook-viðburðinum „Jarðarför Halldóru Halldórsdóttur (Dóu)“. Davíð Marinósson Jón Viðar Viðarsson Ragna Gróa Steingrímsdóttir Heiða Karen Viðarsdóttir Adrian Hansen Friðrik Jósef Viðarsson Sigurlaug Rúnarsdóttir Hildur Karen Jónsdóttir Sóley Jónsdóttir Frosti Jónsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.