Morgunblaðið - 23.02.2021, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 2021
„ÉG HEF EKKI HUGMYND UM HVER ÞETTA
ER! HANN VARA BARA HÉRNA ÞEGAR ÉG
VAKNAÐI Í MORGUN.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að kaffæra hana í
gjöfum.
STÓRFENGLEGT
HERTOGAYNJA! HRÓLFUR
HEFUR SAMÞYKKT AÐ SKILA
SKARTGRIPASKRÍNINU SEM
HANN STAL FYRIR ÞESSA 100
GULLPENINGA SEM ÞÚ BAUÐST!
ÖKUSKÓLI
GUÐI SÉ LOF!
ÞAÐ HEFUR
ÓMETANLEGT
TILFINNINGALEGT
GILDI!
EN HANN KREFST 100 GULLPENINGA AÐ AUKI
FYRIR ÁSTARBRÉFIN FRÁ JARLINUM AF
ESSEX SEM FALIN ERU Í SKRÍNINU!
„ÞAÐ ER ENGINN „SPILA AFTUR” TAKKI.”
unarfræðingur. „Saman búum við í
Þingholtunum nálægt Landspít-
alanum en jafnframt höfum við haft
búsetu á Kungsholmen í Stokkhólmi
vegna vinnu þar sem ég var í mánuði
hverjum frá 2011 þar til Covid byrj-
aði.“
Foreldrar Sólveigar eru hjónin
Helga Hauksdóttir, f. 29.8. 1941,
fiðluleikari og Kristján Jónsson, f.
27.1. 1936, framkvæmdastjóri. Sól-
veig á tvö börn, Þórhildi og Ólaf
Sverri Stephensen. Fyrri eiginkona
Gunnlaugs er Jóhanna Sólveig Löv-
dahl, f. 14.2. 1960, náms- og starfs-
ráðgjafi.
Börn Gunnlaugs og Jóhönnu eru
1) Eva Ýr Gunnlaugsdóttir, f. 12.12.
1979, mannauðssérfræðingur, býr á
Seltjarnarnesi ásamt Bjarna Þor-
steinssyni arkitekt. Börn Evu eru
Aldís Eyja Axelsdóttir, f. 2000,
Bjarni Magnús Jóhannesson, f.
2007, og Grímur Kári Jóhannesson,
f. 2013; 2) Sigfús Kristinn Gunn-
laugsson, f. 27.6. 1985, barnalæknir
og sérfræðingur í lungnalækningum
barna á Barnaspítalanum í Boston
en kona hans, Unnur Ágústa Guð-
mundsdóttir, er hjúkrunarfræð-
ingur. Þau búa í Boston. Börn þeirra
eru Kolbeinn Kári, f. 2014, og Eva
Lind, f. 2020; 3) Einar Lövdahl
Gunnlaugsson, f. 11.3. 1991, rithöf-
undur, býr í Uppsala ásamt Heiðdísi
Ingu Hilmarsdóttur sem er meist-
aranemi. Dóttir þeirra er Lóa Björk,
f. 2019.
Systkini Gunnlaugs eru Elín Sig-
fúsdóttir, f. 24.8. 1955, viðskipta-
fræðingur, búsett í Reykjavík, og
Arnór Þórir Sigfússon, f. 7.11. 1958,
dýravistfræðingur, búsettur í
Reykjavík.
Foreldrar Gunnlaugs voru hjónin
Ragnhildur Eyja Þórðardóttir, f.
10.9. 1924, d. 9.6. 2016, starfaði
lengst af sem deildarstjóri í heil-
brigðisráðuneytinu, og Sigfús Krist-
inn Gunnlaugsson, f. 22.7. 1924, d.
22.6. 1970, viðskiptafræðingur. Þau
voru búsett í Reykjavík.
Gunnlaugur
Sigfússon
Guðrún Jónsdóttir
húsfreyja á Marbakka á Akranesi, bjó síðar í Reykjavík
Magnús Helgason
húsmaður á Marbakka, drukknaði
Gunnvör Magnúsdóttir
húsfreyja á Högnastöðum í Þverárhlíð, Mýr.
Þórður Lárentínus Jónsson
bóndi á Högnastöðum
Ragnhildur Eyja Þórðardóttir
deildarstjóri í Reykjavík
Ragnhildur Þórðardóttir
húsfreyja á Háreksstöðum
Jón Eyjólfsson
bóndi og skáld á Háreksstöðum
í Norðurárdal, Mýr.
Guðrún Jónsdóttir
húsfreyja í Hringveri í Hjaltadal, Skag.
Sigurður Hallsson
bóndi í Hringveri
Sigríður Sigurðardóttir
húsfreyja á Dalvík
Gunnlaugur Sigfússon
smiður á Dalvík
Kristín Rósa
Gunnlaugsdóttir
húsfreyja í Syðra-Holti
Sigfús Páll Pálsson
bóndi í Syðra-Holti í Svarfaðardal
Úr frændgarði Gunnlaugs Sigfússonar
Sigfús Kristinn Gunnlaugsson
viðskiptafræðingur í Reykjavík
Stefán Bogi Sveinsson skrifaði áBoðnarmjöð um helgina: „Lilja
frænka mín í Merki á Jökuldal hef-
ur undanfarin ár, ásamt fleirum,
staðið fyrir nokkuð reglulegum
gönguferðum um helgar. Fyrst var
arkað milli bæja á Jökuldal en þeg-
ar hann þraut var farið að ganga
um nágrannasveitir.
Ég ákvað að skjótast með fyrir
skemmstu en vantaði far frá Egils-
stöðum á upphafsstað göngu úti í
Jökulsárhlíð. Philip Vogler á fag-
urrauðan Ford og bauð mér farið
en sagði að ég þyrfti að borga með
vísu. Ég lét það bíða þar til daginn
eftir og hafði þær því tvær, með
dráttarvöxtum“:
Létt um hauður lítið trauð
Lilja sauði hvetur.
Fagra-Rauð sinn Philip bauð
ferjað kauða getur.
Úti í Hlíð er unaðstíð
ekki stríðir vetur.
Sólin blíð og sýnin víð
svo mér líður betur.
Guðmundur Stefánsson yrkir um
vegagerð í Ölfusi:
Minnkar heilmikið halli
og hæðarmunur þar
sem ekið er Ingólfsfjalli
ofan í mýrarnar.
Hólmfríður á Sandi yrkir í tilefni
af opnum börum:
Nú mun ekki sorg og sút
setjast að í geði.
Drekkum út úr einum kút
og yrkjum svo um gleði.
Af því gleðin alltaf vex
í ölvímu, ég þori.
að yrkja um vín og öl og sex
eins og fugl að vori.
Enn yrkir Hólmfríður, – og „ekki
um stjórnmál“:
Þeir ferðuðust aldrei með frúna.
Á fyllirí skruppu þeir núna.
Kapparnir féllu
í kúaskítsdellu.
„Svín,“ sagði svínið við kúna.
Þá er limra eftir Kristján H.
Theódórsson:
Sá ég hann Vernharð frá Vöglum,
á vélfáki þeysandi á nöglum.
Þá svifrykið lengi,
svífur um engi,
Sama hvað mikið við möglum.
Kári Erik Halldórsson yrkir um
valdafíkn:
Valdasjúkur Pútín plottar,
pískar þegna hlýðni til.
Auðinn stöðugt til sín tottar,
tæpast býður nokkur grið.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Frá Jökuldal um
Aðaldal í Ölfus
VERTU MEÐ
BINGÓGLEÐ
Í OPINNI DAGSKRÁ FYR
BINGÓGLAÐA ÍSLEND
ALLA FIMMTUDAGA K
Á MBL.IS/BING
Í
INNI
IR ALLA
INGA
L. 19:00
O
TAKTU
ÞÁTT