Morgunblaðið - 23.02.2021, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 2021
Af hverju gerir maður sjálfum
sér það, ár eftir ár, að bera
taugar til liðs í ensku úrvals-
deildinni? Ég hef haldið með Liv-
erpool frá því ég man eftir mér
og það er vissulega erfiðara í
dag en oft áður. Kannski er mað-
ur of góðu vanur eftir almennt
dekur frá lærisveinum Jürgens
Klopps undanfarin þrjú tímabil.
Maður hefur svo sannarlega
gengið í gegnum hæðir og lægð-
ir sem stuðningsmaður Liver-
pool en í minningunni hefur liðið
þó alltaf átt einhvers konar
draumaleiki inn á milli sem hafa
gefið manni veika von og rifið
mann upp úr sófanum.
Samfélagsmiðlar eru í að-
alhlutverki hjá knattspyrnu-
félögum í dag og hjá Liverpool
FC er það ekkert öðruvísi. Þar á
bæ byrja menn að hita upp fyrir
leiki vikunnar þremur til tveimur
dögum fyrir leikdag. Þar spila
menn myndbandsklippur af
fræknum sigrum, stórkostlegum
markvörslum og varnarleik, og
auðvitað frábærum sóknarleik.
Eftir leikinn gegn Everton
fékk ég nóg og sendi félaginu
tölvupóst. Ég bað þá vinsamleg-
ast um að hætta þessari eilífð-
arupphitun frá „dásemdardög-
unum“ og birta frekar
myndbönd af einhverjum eld-
gömlum 7:0-töpum svo maður
gæti í það minnsta sett sig í
stellingar fyrir það sem koma
skyldi. Ég hef ekki fengið neitt
svar enn þá.
Það er samt erfitt að kvarta og
kveina núna, enda liðið orðið
Evrópumeistari, heimsmeistari
og Englandsmeistari á undan-
förnum árum. Ég slökkti samt á
sjónvarpinu um helgina og leyfði
drengnum að halda áfram að
horfa á Bubbi byggir, eftir að
Everton fékk vítaspyrnu undir
lok leiksins. Það eru alla vega
þroskamerki, áfram gakk.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
mína hjá félaginu við forráðamenn
Bröndby og það á ekki að fara í fjöl-
miðla sem okkur fer á milli. Núna er
ég fyrst og fremst að hugsa um að
standa mig eins vel og mögulegt er
fyrir félagið og við tökum svo bara
stöðuna að tímabili loknu.
Ég er búinn að vera hérna í fimm
ár og kannski er kominn tími til
þess að reyna fyrir sér annars stað-
ar og prófa eitthvað nýtt. Þá er ég
sjálfur í góðri stöðu persónulega, að
vera að renna út á samningi, en mér
hefur liðið virkilega vel í Danmörku.
Ég framlengdi samning minn við fé-
lagið sumarið 2018 því ég var
ánægður hérna en það hefur aðeins
verið mín saga hjá félaginu að ég
hef verið að spila vel og svo hefur
það komið upp í umræðuna að þeir
vilji breyta til og prófa eitthvað
nýtt.“
Mikill uppgangur hjá félaginu
Miðvörðurinn varð bikarmeistari
með Bröndby árið 2018 og þá hefur
hann leikið í þremur bikarúrslita-
leikjum með liðinu á tíma sínum í
Danmörku.
„Ég hef þurft að sanna mig
nokkrum sinnum hérna og verið í
hálfgerðum eltingarleik um sæti í
liðinu sem hefur alveg tekið á líka.
Það hefur verið mikill uppgangur
innan félagsins síðan ég kom 2016
og liðið hefur verið á meðal bestu
liða Danmerkur undanfarin ár. Ég
er að nálgast 150 leiki fyrir félagið
og ég hef reynt að skila mínu eins
vel og kostur er fyrir félagið og það
er með þetta eins og allt annað,
maður vill vera metinn að verð-
leikum sem hefur kannski ekki allt-
af verið raunin.
Af þeim leikmönnum sem eru í
hópnum í dag hef ég verið lengst
hjá félaginu og það hefur verið sér-
stakt að sjá marga góða leikmenn
hverfa á braut, sérstaklega síðasta
árið. Það bjuggust margir við því að
félagið myndi fara í eitthvert upp-
byggingarstarf á tímabilinu og vera
í miðjumoði en það hefur ekki verið
raunin. Í gegnum tíðina hafa for-
ráðamenn félagsins vonast eftir
árangri í Evrópukeppnum sem hef-
ur ekki verið raunin og spurningin
núna hvort þeir vilja yngja upp leik-
mannahópinn hjá sér.“
Bjartir tímar fram undan
Hjörtur á að baki 18 A-landsleiki
þar sem hann hefur skorað eitt
mark en hann var í lokahópi ís-
lenska landsliðsins sem fór á EM í
Frakklandi 2016.
„Landsliðið er alltaf ofarlega í
huga manns en maður þarf fyrst og
fremst að standa sig vel með fé-
lagsliði sínu til þess að spila fyrir
landsliðið. Það var frábært að fá
þessa leiki sem ég fékk með lands-
liðinu í undankeppni EM 2020 og
svo kom Gulli [Guðlaugur Victor
Pálsson] inn í þetta og stóð sig frá-
bærlega. Þannig á þetta að vera og
ég hef ekkert nema gott að segja
um heilbrigða samkeppni innan
landsliðsins. Ég hef rætt við Arnar
[Þór Viðarsson, nýráðinn landsliðs-
þjálfara] um þá stöðu sem ég er í og
það er gott að vita til þess að þeir
séu meðvitaðir um það hvað ég er
að hugsa. Eins er gott að fá að
heyra þeirra skoðun á því hvernig
málin standa.
Arnar og Eiður [Smári Guðjohn-
sen] gerðu frábæra hluti með U21-
árs landsliðið og þeir eru með mjög
spennandi hugmyndir fyrir A-
landsliðið. Ég fékk aðeins að kynn-
ast Arnari þegar hann kom inn í
þetta gegn Belgum í Þjóðadeildinni
í október 2020 þegar allt þjálfara-
teymið var í sóttkví. Maður hefur
fylgst lengi með Eiði, það var frá-
bært að vera í kringum hann á EM
2016 þegar hann var í hópnum, og
næstu ár gætu orðið mjög spenn-
andi hjá landsliðinu,“ bætti Hjörtur
við í samtali við Morgunblaðið.
Tekið á að vera í eltingarleik
um sæti í byrjunarliðinu
Samningur Hjartar Hermannssonar við Bröndby í Danmörku rennur út í sumar
Morgunblaðið/Eggert
Landsliðið Hjörtur Hermannsson lék fjóra landsleiki í haust og var í
byrjunarliðinu í báðum leikjum Íslands og Englands í Þjóðadeildinni.
DANMÖRK
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Knattspyrnumaðurinn Hjörtur
Hermannsson hefur ekki átt fast
sæti í liði danska úrvalsdeildar-
félagsins Bröndby á leiktíðinni.
Varnarmaðurinn, sem er 26 ára
gamall, gekk til liðs við danska fé-
lagið frá PSV í Hollandi sumarið
2016 og er því á sínu fimmta tíma-
bili í Danmörku.
Hjörtur hefur komið við sögu í
tólf af sautján leikjum Bröndby á
tímabilinu en aðeins byrjað sex
þeirra, þá hefur hann verið í byrj-
unarliðinu í síðustu tveimur leikj-
um liðsins, en samningur hans við
danska félagið rennur út í sumar.
„Þetta tímabil er búið að vera
upp og ofan hjá mér persónulega,“
sagði Hjörtur í samtali við Morg-
unblaðið.
„Liðinu hefur gengið gríðarlega
vel og eins og gefur að skilja þá er
samkeppnin mjög hörð hjá klúbbi
eins og Bröndby. Ég væri að ljúga
ef ég myndi ekki segja að ég hefði
verið til í að vera búinn að spila
mun meira en ég hef gert á tíma-
bilinu, sérstaklega fyrir jól. Hvort
það spili eitthvað inn í að ég sé að
verða samningslaus skal látið ósagt
en ég hef allavega reynt að sinna
minni vinnu eins vel og kostur er,
bæði í leikjum og á æfingasvæðinu.
Sú vinna hefur skilað sér, alla-
vega eins og staðan er í dag, því ég
hef verið í byrjunarliðinu í undan-
förnum leikjum. Á sama tíma hef
ég komið við sögu í flestum leikjum
á tímabilinu þótt það hafi kannski
ekki alveg verið mínúturnar sem
ég hefði viljað því auðvitað vill
maður byrja alla leiki,“ sagði
Hjörtur sem er uppalinn hjá Fylki í
Árbænum.
Líður vel í Danmörku
Hjörtur hefur verið orðaður við
brottför frá Bröndby í dönskum
fjölmiðlum en það gæti vel farið
svo að leikmaðurinn verði áfram í
herbúðum félagsins á næstu leiktíð.
„Sem knattspyrnuáhugamaður
þá fylgist maður vel með íþrótta-
fréttum og það er oft meira sem
býr að baki en það sem er skrifað
um í fjölmiðlum. Ég hef rætt stöðu
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Erna Sóley Gunnarsdóttir úr ÍR
náði langbesta árangri íslenskrar
konu í kúluvarpi frá upphafi á
sunnudaginn þegar hún vann
yfirburðasigur í greininni á há-
skólamóti innanhúss í Birmingham í
Alabama-ríki í Bandaríkjunum.
Erna kastaði kúlunni 16,95 metra,
rúmum tveimur metrum lengra en
næsti keppandi, og bætti eigið Ís-
landsmet innanhúss um hvorki
meira en 76 sentimetra. Fyrra metið
sem hún setti í Houston í Texas í
janúar 2020 var 16,19 metrar.
Þá er kast Ernu 42 sentimetrum
lengra en Íslandsmetið utanhúss í
greininni en það setti Ásdís Hjálms-
dóttir haustið 2019 þegar hún kast-
aði 16,53 metra í Gautaborg.
Erna er aðeins tvítug að aldri og
hennar besti árangur utanhúss er
16,13 metrar en því kasti náði hún í
Houston fyrir tæpum tveimur árum
og setti þá stúlknamet, U19 ára, í
greininni. Það er þriðji besti árang-
ur Íslendings utanhúss en auk Ás-
dísar hefur Guðbjörg Hanna Gylfa-
dóttir kastað lengra en Erna
utanhúss, 16,33 metra árið 1992.
Erna, sem keppir fyrir Rice-
háskólann í Texas, er nú með níunda
besta árangur tímabilsins í banda-
rísku háskólunum í vetur og á því
góða möguleika á að fá keppnisrétt á
meistaramóti háskólanna, NCAA, í
vor. Þá er þetta 29. lengsta kast í
Evrópu á þessu ári en hún hefur
þegar náð lágmarki fyrir Evr-
ópumótið utanhúss fyrir 23 ára og
yngri sem fram fer í Bergen í Nor-
egi í sumar.
Morgunblaðið/Sigurður Ragnarsson
Best Erna Sóley Gunnarsdóttir hefur tekið miklum framförum á síðustu
árum og er orðin fremsti kúluvarpari landsins í kvennaflokki í dag.
Langbesta kast
íslenskrar konu
Erna Sóley kastaði 16,95 metra
Al-Arabi tapaði 3:2 gegn toppliðinu
í efstu deild í knattspyrnunni í Katar,
Al-Sadd, í gær. Freyr Alexandersson
stýrði Al Arabi í fjarveru Heimis Hall-
grímssonar sem er með kórónuveir-
una eins og fram hefur komið. Til
stóð að Aron Einar Gunnarsson
myndi byrja inn á en lék svo ekki með
þegar til kastanna kom. Mun hann
hafa orðið fyrir meiðslum í upphitun.
Al-Arabi komst tvívegis yfir í leiknum
en sú staða breyttist í uppbótartíma
þegar toppliðið skoraði tvö og vann
3:2.
Cristiano Ronaldo er orðinn
markahæsti leikmaður ítölsku A-
deildarinnar í knattspyrnu á þessu
tímabili eftir að hafa skorað tvívegis
fyrir Juventus í 3:0-sigri á Crotone.
Ronaldo hefur þar með gert 18 mörk í
deildinni í vetur, einu meira en hinn
belgíski Romelu Lukaku hjá Inter Míl-
anó.
Kvennalið ÍBV hefur fengið liðs-
auka frá Trínidad og Tóbagó fyrir
komandi keppnistímabil í fótbolt-
anum. Liana Hinds, landsliðskona
karabíska eyríkisins, er gengin til liðs
við ÍBV. Hinds hefur leikið með lands-
liði Trínidad og Tóbagó frá árinu 2014.
Belginn Christian Benteke tryggði
Crystal Palace 2:1-útisigur á Brighton
í ensku úrvalsdeildinni með marki á
fimmtu mínútu í uppbótartíma.
Eitt
ogannað