Morgunblaðið - 23.02.2021, Síða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. FEBRÚAR 2021
Tómas Guðni Eggertsson orgelleik-
ari kemur fram á hádegistónleikum
í Hafnarfjarðarkirkju í dag, þriðju-
dag, klukkan 12.15 til 12.45. Tómas
Guðni, sem er organisti Seljakirkju,
leikur á bæði orgel kirkjunnar á
tónleikunum. Aðgangur er ókeypis
en minnt á sóttvarnareglur og
grímuskylda er á tónleikunum.
Á efnisskránni eru Passacaglia í
d-moll eftir Buxtehude, tvö verk
eftir Johann Sebastian Bach, „Jesu,
meine Freude“ og „Ich ruf zu dir,
Herr Jesu Christ“, og Kórall nr. 3 í
a-moll eftir Franck.
Tómas Guðni er fjölmenntaður
orgelleikari og kemur reglulega
fram sem einleikari eða meðleikari
með kórum, söngvurum og hljóð-
færaleikurum úr ólíkum kimum.
Tónleikar í Hafn-
arfjarðarkirkju
Fjölhæfur Tómas Guðni Eggertsson.
Sérfræðingar í Munasafni Þjóð-
minjasafns Íslands, þau Ármann
Guðmundsson og Hrönn Konráðs-
dóttir, flytja í dag hádegisfyrir-
lestur í fyrirlestrasal safnsins sem
þau kalla „Öll vötn renna til sjávar.
Móttaka gripa úr fornleifarann-
sóknum 2020“. Vegna fjöldatak-
markana þurfa áhugasamir að skrá
sig á vef safnsins. Fyrirlestrinum
verður einnig streymt á youtube-
rás þess.
Fjallað verður um innra starf
safnsins og sagt frá jarðfundnum
gripum sem því hafa borist og
gögnum úr fornleifarannsóknum.
Fjalla um forn-
leifafannsóknir
Í Þjóðminjasafninu Þangað berast gripir
sem finnast við fornleifarannsóknir.
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Draumar og brothætt hjörtu er
yfirskrift tónleika í Tíbrár-röð Sal-
arins í Kópavogi í kvöld, þriðjudag,
klukkan 19.30. Fram koma söng-
konurnar Þóra Einarsdóttir sópran
og Hanna Dóra Sturludóttir mezzó-
sópran ásamt píanóleikaranum
Peter Máté. Fluttir verða bæði ein-
söngvar og dúettar eftir Johannes
Brahms, Robert Schumann og
Clöru Schumann, Hugo Alfvén,
Jórunni Viðar, Tryggva M. Bald-
vinsson, Edvard Grieg, Jean Sibe-
lius, Strauss og fleiri.
Hanna Dóra varð fyrir svörum
þegar listamennirnir, sem allir eru
í fremstu röð hér á landi, voru
truflaðir á æfingu í Salnum. Hún
segir að upphaflega hafi staðið til
að vera með aðra efnisskrá og
lengri en nú á tímum fjöldatak-
markana megi tónleikarnir ekki
vera nema ein klukkustund og þess
vegna hafi þau æft upp aðra efnis-
skrá. „Við röðuðum saman lögum
sem okkur öllum þykja mjög falleg.
Og við syngjum einmitt um drauma
og brothætt hjörtu,“ segir Hanna
Dóra og vísar þar til yfirskriftar
tónleikanna.
„Við syngjum til að mynda
draumaljóð Griegs og Sibeliusar og
líka um ýmsar langanir og þrár.
Svo syngjum við um vorið. Það á
vel við núna.“
– Eruð þið þannig bæði að hugga
fólk og brýna í heimsfaraldrinum?
„Nákvæmlega. Þetta er mjög ljúf
dagskrá og við endurnærumst með
þessari tónlist. Það er svo gefandi
að fá að syngja opinberlega.“
Gaman að músisera
Hanna Dóra upplýsir að þetta sé
í fyrsta skipti sem hún komi fram
með þeim Þóru og Peter á ljóða-
tónleikum en þær Þóra hafa þó
vitaskuld oft komið saman fram í
óperum. Þær bæði byrja og enda
dagskrána á dúettum, eftir Brahms
og Schumann, en flytja einsöngslög
þar á milli.
„Það er rosalega gaman að músi-
sera með Þóru og Peter. Við
vinnum öll í Listaháskólanum og
erum með góð tengsl.“
– Voru þá lögð drög að efnis-
skránni í frímínútum?
„Það liggur við!“ svarar hún. „Á
milli tölvupósta og funda veltum við
á milli okkar hugmyndum að lögum
að syngja, nefndum óskalög og það
sem okkur þótti passa.
Þá syngjum við líka íslensk lög,
sem er ómissandi á tónleikum, og
völdum falleg lög eftir Jórunni og
Tryggva sem standa alltaf fyrir
sínu.“
Á þessum tímum Covid snýst allt
um sveigjanleika, hann er númer
eitt, tvö og þrjú.“
Þegar spurt er hvort faraldurinn
hafi ekki valdið mikilli röskun á lífi
og ferli tónlistarmannanna, fólks
sem er vant því að koma reglulega
fram, segir Hanna Dóra að vissu-
lega hafi þetta verið skrýtinn tími.
Sameiginleg upplifun
„En í þessum bransa er mikil-
vægt að vera sveigjanlegur því það
getur alltaf eitthvað komið upp á.
Ég hef til dæmis upplifað að leik-
stjóri hættir við og uppfærslu er
þess vegna frestað, hljómsveitir
hafa farið í verkfall, ýmislegt getur
komið upp á. En þetta hefur verið
óvenjulangur tími og ég hef bæði
æft fyrir verkefni sem hafa ekki
orðið að veruleika eða hefur verið
frestað. Mér finnst ég hafa verið
að vinna jafn mikið fyrir tónleika
og áður, því það hefur verið stefnt
að þeim, en þar sem minna hefur
verið um tækifæri til að koma fram
og syngja hef ég notið þess þeim
mun betur þegar tækifæri hafa
gefist. Eins og til að mynda við að
syngja við útfarir, að ná þá til fólks
og geta fengið þessa sameiginlegu
upplifun í tónlistinni. Það hefur
verið ómetanlegt í hvert skipti
þegar það hefur komið upp á.
En við erum ótrúlega heppin
með stöðu mála hér á Íslandi núna,
og við þrjú að geta fyrir vikið verið
með þessa tónleika. Við vonum líka
að sem flestir komi til að njóta og
upplifa þetta með okkur í Salnum.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tónlistarfólkið Hanna Dóra Sturludóttir, Þóra Einarsdóttir og Peter Máté æfðu fyrir tónleikana í Salnum í gær.
„Við syngjum einmitt um
drauma og brothætt hjörtu“
Þóra Einarsdóttir, Hanna Dóra Sturludóttir og Peter Máté með tónleika