Morgunblaðið - 12.02.2021, Page 4
Franska
tískuhúsið
Chanel býður
upp á víðar
síðbuxur í
sumartísku
sinni í ár.
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2021
Þ
egar rýnt er í tísku stóru tískuhúsanna má sjá víðar buxur sem minna á árin í kringum 1985.
Þær sem hafa vanið sig á það að ganga í gallabuxum með niðurmjóum skálmum þurfa örugglega
að máta nokkrar týpur til að finna réttu buxurnar. Þetta er svipað og þegar niðurmjóar buxur
komu í tísku á sínum tíma. Þær sem höfðu verið í útvíðum gallabuxum í mörg ár áttu erfitt upp-
dráttar í þessum niðurmjóa heimi og sumum leið eins og þær væru naktar. Það er nefnilega svo
mikil vörn í víðum skálmum! Svona eins og Patrekur Jamie finnur vörn með því að láta stækka á sér var-
irnar.
Svo eru það allir síðu kjólarnir sem verða vinsælir með vorinu. Það að vera í síðum kjól er svolítið
eins og að vera í náttfötum þar sem ekkert þrengir að og þú getur verið frjáls. Það að vera alltaf eins
og hengdur upp á þráð virkar ekki núna. Eftir alla heimavinnuna hefur fólk komist upp á lag með
að klæðast þægilegri fötum en áður. Á sama tíma hefur fólk líka komist upp á lag með að
vaxa á sér líkamshárin, plokka augabrúnirnar og djúpnæra hárið heima í baðvaskinum.
Þær sem vilja fara ferskari en nokkru sinni fyrr inn í nýja árstíð þurfa að hugsa
sérstaklega vel um húðina. Fyrsta skrefið er að byrja að þvo andlitið með and-
litssápu bæði kvölds og morgna, setja á sig maska einu sinni í viku og bera á sig
húðdropa. Þá ertu komin/n með góðan grunn fyrir þessa æsispennandi árstíð.
Sumartíska
Fendi 2021
er þægileg
og smart.
Á þessum árstíma þyrstir okkur í eitthvað nýtt. Við þráum ný föt, nýjar hár-
vörur, nýjar snyrtivörur og bara nýja orku ef hægt væri að kaupa hana á
brúsum. Hér ætlum við að skoða hvað þú getur gert til að hressa þig við.
Marta María | mm@mbl.is
Víðar buxur og peysa sem gyrt er ofan
í buxurnar er ekta Chanel vorið 2021.
/skin regimen/
dagkrem sem
mýkir húðina.
Það fæst á
beautybar.is
Djúpnæring-
arnar frá
Davines gera
mikið gagn.
Þær fást til
dæmis á
beautybar.is.
Þessi kjóll fæst í
versluninni Zara
í Smáralind.
Hitavörn frá
Davines
verndar hár-
ið. Fæst til
dæmis á
beautybar.is
Notaleg föt eru sýnileg í sumartískunni.
Þessi peysa fæst í Mathilda í Kringlunni.
Hvíti liturinn
verður áberandi
hjá Fendi vor og
sumar 2021.
Volume
Mousse frá
label.m er
nauðsynlegt
ef þig vantar
lyftingu í
rótina. Fást á
beautybar.is.
Vortískan 2021
Þessir strigaskór geta
hresst mestu leiðindapúka
við. Þeir fást í
Mathilda í
Kringl-
unni.
Þessi hreinsisápa frá /skin regimen/ gerir
mikið fyrir húðina sé hún notuð kvölds og
morgna. Hún fæst á beautybar.is.
Sumartískan kallar á útvíðar
gallabuxur. Þessar eru frá
Ralph Lauren og fást í
Mathilda í Kringlunni.
Hvítar útvíðar gallabuxur sem
fást í Mathilda í Kringlunni.
Hvítur
blazer-
jakki
frá Ralph
Lauren er
eigulegur.
Hann fæsti
í Mathilda í
Kringlunni.