Morgunblaðið - 12.02.2021, Side 12

Morgunblaðið - 12.02.2021, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2021 hitti Pálma Haraldsson á kaffihúsi og var síðan ráðin í starfið án þess að hafa menntun eða reynslu af stjórnun fyrirtækja.“ Lærði rekstur fyrirtækja með því að gera hlutina Þegar Sigrún var orðin framkvæmdastjóri Innn komst hún að því að fyrirtækið skuldaði margar milljónir í lífeyrissjóði og var í raun og veru með skuldahala víða. „Ég var ekki ráðin í starfið fyrir hæfni mína í viðskiptum og bókhaldi, heldur fyrir áhuga á starfinu og vilja til að snúa rekstr- inum við. Ég ákvað að taka bókhaldsmöppurnar með mér heim og sat síðan á kvöldin og fletti í gegnum reikningana. Þarna hófst nám mitt í bókhaldi. Ég sá einingar innan fyrirtækisins sem ég vildi selja og síðan gat ég innleyst allskonar inneign- arnótur og þannig fengið peninga til að borga öllum þeim sem við skulduðum. Mér hefur alltaf þótt áhugavert að finna falda fjársjóði og tók það mig ellefu mánuði að snúa rekstrinum við.“ Á þessum tíma var Sigrún einnig Dale Carnegie-kennari og á einum slíkum kvöldfundi fær Sigrún símtal hvort hún geti tekið við sem forstjóri Tæknivals. ,,Þetta var þá fjórða stærsta tölvufyrirtæki landsins, með 73 starfsmenn og töluvert meira tap í rekstri. Ég sagði já og sé ekki eftir því í dag, en ég var ekki með nógu mikinn stuðning né reynslu til að geta klárað það verkefni eins og ég vildi. Eigendur höfðu gefist upp á fyrirtækinu og fóru hlutirnir ekki eins og ég hefði viljað hafa þá.“ Hvaða áhrif hafði þetta á þig? „Ég sé ekki eftir neinu, enda geri ég alltaf mitt besta í öllu. Ég fékk mjög mikla reynslu í innkaupastjórnun, lagerhaldi og samningagerð. Í raun hef ég sjaldan lært jafnmikið í lífinu. Ég var 33 ára á þessum tíma og ekki með mikla reynslu en ég er með gott innsæi gagnvart viðskiptum. Mér fannst sem dæmi allt of mikið á lager hjá okkur og fór ég því og hlóð niður ársreikn- ingum hjá samkeppnisaðilum okkar. Þegar ég skoðaði lag- erstöðu þeirra þá sá ég að við vorum ekki að standa okkur vel á þessu sviði. Ég ákvað þá að lesa mér til um lagerstjórnun og lærði um ABC-regluna sem segir að birgðahald eigi að vera ólíkt eftir vöruflokkum. Sumar vörur köllum við A og þær þurfa að vera til á lager. Aðrar vörur köllum við B og þær seljast hægar. Síðan eru til vörur C sem eru pantaðar eftir eftirspurn. Þær vörur eru ekki til á lager. Ég er mjög hliðholl og fer ekki frá hálfkláruðu verki. Það kom því aldrei til greina að segja upp og fara. Reksturinn var mjög erfiður og niðurstaðan var að selja fyrirtækið til samkeppn- isaðila. Mínir yfirmenn vildu að ég setti allan minn fókus aftur á Innn.“ Fór í MBA-nám í flottasta viðskiptaháskóla Evrópu Sigrún viðurkennir að það hafi verið mjög erfitt að fara aftur í að stýra minna fyrirtæki, en að hún hafi þá valið að fara í MBA- nám sem fyrirtækið myndi styrkja hana með. ,,Ég leitaði á netinu að besta MBA-námi í Evrópu, sem var á þeim tíma kennt í London Business School og skráði mig í það.“ Sigrún segir ekki einfalt að stíga fram í eigin nafni. Það við- urkennir hún fúslega sem og að alls konar hlutir hafi gerst á ferl- inum hennar. „Ég hef verið rekin, þrátt fyrir að vera að skila mínu og með góðar rekstrartölur. Í mínu tilviki voru stjórnendur ekki á minni línu og ekki með sömu gildi og ég og því gekk þetta ekki upp.“ Hvernig finnst þér að vera rekin? „Mér finnst bara frábært að vera rekin. Það hefur gerst nokkrum sinnum og var ekki erfitt. Ég hef mín gildi og þau ganga ekki alls staðar. Ég var atvinnulaus með sex mánaða upp- sagnarsamning þegar ég flutti til London á sínum tíma og gat þá einbeitt mér að lokaverkefni mínu í MBA-náminu. Ég notaði tækifærið og fór á Tony Robbins-ráðstefnu í febrúar árið 2008 sem hafði mikil áhrif á mig og þar kynntist ég manninum mínum. Það hefði sem dæmi aldrei gerst hefði ég ekki verið rekin.“ Hvað með ástina? ,,Ég er sambandskona og vil vera í sambandi og kynntist manninum mínum, Martin Uetz, í London. Ég hafði verið ein í nokkur ár og settist hjá honum og móður hans á námskeiðinu hjá Robbins og okkur kom strax vel saman. Ég skráði mig í kjölfarið á fleiri námskeið með Tony Robbins og hann gerði það líka. Svo við hittumst oft áður en við ákváðum að fara í samband. Robbins talaði um sex meginþarfir manneskjunnar og var ástin ein þeirra. Ég hafði ekki fjárfest í ástinni eins vel og ég vildi gera. Þannig að þegar ég útskrifaðist með MBA-gráðuna mína og mér var boðin staða sem forstjóri Nissan í Svíþjóð, þá ákvað ég að flytja heldur til Sviss og fjárfesta í okkar lífi saman. Ég vildi ekki fara lengra inn í lífið án þess að gefa ástinni aðeins meiri séns. Maðurinn minn var í góðri stöðu hjá Cisco Systems og studdi mig vel fyrstu sex mánuðina í Sviss. Mér fannst þetta erfitt í fyrstu en ég gefst ekki auðveldlega upp. Ég vildi gera mitt besta og sjá hvert það myndi leiða mig. Ég fór að vinna fyrir sænska konu sem var gift austurrískum manni, en varð svo veik og upp- lifði líkamann minn segja nei. Ég gat ekki unnið í sjö mánuði og var með mikla verki í bakinu og í höfðinu. Ég notaði tímann á meðan ég var veik og keypti mér allskonar netnámskeið og lærði fullt af nýjum hlutum.“ Tilvistarkreppa sem breytti lífi hennar Sigrún segir að hún hafi nokkurn veginn náð sér að fullu en að hún geti nú skilið fólk sem upplifir erfiðleika í kjölfar þess að veikjast í vinnu. ,,Ég hafði aldrei lent í einelti í skóla en ég lenti í einelti í vinnu vegna veikindanna. Þá fór ég í einskonar tilvistarkreppu og fékk tíma til að hugsa hvað mig langaði að gera við restina af lífinu. Ég vissi að ég væri góð í alls konar en var ekki að koma auga á fjársjóðinn innra með mér heldur var meira að leita að hug- myndinni í einhverju öðru.“ Sigrún og maðurinn hennar lifa góðu lífi í dag, þau búa bæði á Íslandi og í Sviss og geta ferðast á milli landa og stjórnað tím- anum sínum og lífinu sjálf. ,,Tilvistarkreppan varði í átján mánuði. Það var í lok ársins 2013 þegar ég var alltaf að vesenast í heimasíðunni minni. Ég hélt áfram að skipta um þema, vildi gera vefsíðuna svo flotta en var svo með engar upplýsingar á vefnum um hvernig væri hægt að vinna með mér. Þá lærði ég að stundum þarf maður að byrja áður en maður upplifir sig tilbúinn. Í janúar árið 2014 var ég ennþá að henda „spagettí á vegginn“; eða að gera allskonar hluti sem virkuðu misvel. Það var samt ýmislegt sem ég gerði sem var áhugavert, sem dæmi að aðstoða fólk í allskonar Facebook-hópum með hluti sem ég kunni að leysa. Það er án efa ástæðan fyrir því að vel gekk fyrir mig að safna netföngum og að fólk þekkti mig þegar ég fór að bjóða upp á viðskiptaráðgjöf. Ég bjó loks til hnapp á heimasíðunni minni þar sem ég bauð upp á klukkustundar ráð- gjöf hjá mér fyrir 180 dollara.“ Í dag er Sigrún svo vinsæl að ekki er hægt að bóka tíma hjá henni. Síðasta gjaldið sem hún tók fyrir klukkustundina sína var 2.500 dollarar. Sigrún segir hlutina eins og þeir eru og er fúsari en margir aðrir að deila velgengni sinni með öðrum. Hvernig fórstu að því að auka virði þitt svona hratt? „Eftirspurnin eftir mér ræður gjaldinu og er verðið á klukku- stund í dag hjá mér þannig að það sýnir að ég hef ekki áhuga á að bjóða upp á einstaklingsráðgjöf. Mér fannst rosalega erfitt að ákveða verðið fyrst, því ég vissi ekki hvað þekkingin mín var mikils virði fyrir annað fólk. En það voru nokkrar konur sem keyptu af mér tíma fyrst og ein þeirra sagði mér að hún hefði keypt ráðgjöf hjá nokkrum aðilum á þessum tíma og að ráðin mín væru þau bestu en að ég væri alltof ódýr. Þá hækkaði ég verðið í 350 dollara og síðan hækkaði verðið smátt og smátt eftir eftirspurn.“ Sigrún segir mikilvægt að mæta fólki þar sem það er og að fólk fái meira út úr því að vinna í hópum. „Á netnámskeiðunum mínum er ég að bjóða fólki að vera í hópi með fleirum sem eru að gera það sama og það virkar miklu betur en að vinna einn og óstuddur. Þegar ég fór af stað með net- námskeiðin mín þá var ég búin að safna 1.500 nöfnum á net- fangalista en tekjurnar voru ekki í samræmi við vinnuna fyrir vörumerkið mitt. Í dag vinn ég öðruvísi. Ég bý ekki til nýtt net- námskeið fyrr en ég hef selt inn á það fyrst. En áður en meg- inþorri tekna minna kom frá netnámskeiðum þá bauð ég fyrst upp á einstaklingsþjálfun með ráðgjafarpökkum og þegar ég var fullbókuð þá fór ég að bjóða upp á hópnámskeið og síðan komu netnámskeiðin til að geta hjálpað enn fleirum á sama tíma.“ Sigrún segir sérfræðinga þurfa aðstoð við að koma sér á fram- færi. Eins þurfi fólk, sérstaklega konur, oft stuðning við að ganga vel. „Ég sem dæmi hægði verulega á mér eftir fyrstu stóru söluna mína, því einhvers staðar í undirvitund minni var grafin sú hug- mynd að það væri einungis vont fólk sem ætti mikið af pen- ingum. Ég fór aðeins dýpra ofan í það og fann að þetta var bara lítil stelpa sem ég þurfti að tala við. Að sjálfsögðu eru peningar hvorki góðir né vondir. Ef þú ert góð manneskja þá ýkja pen- ingar það upp í þér. Ef þú ert vond, þá geta peningar svo magnað það. Eitt er víst að við konur eigum að geta sett á laggirnar draumafyrirtæki sem afla góðra tekna. Eina leiðin til að ná algjöru jafnrétti er að konur afli tekna á við karla. Þær verða að setja sig í fyrsta sæti og láta drauma sína rætast. Það eru ekki síst draumar kvenna sem eru með góða hugmynd sem breyta heiminum til hins betra. Saman getum við stuðlað að meira jafnrétti fyrir allar konur.“ Á SOMBA-námskeiðunum hjá Sigrúnu mæta þátttak- endur vanalega í rauðu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.