Morgunblaðið - 12.02.2021, Blaðsíða 14
Anna Margrét Björnsson, upplýsingafulltrúi franska sendiráðsins, er mikill kvikmyndaunnandi. Öll orka hennar
þessa dagana fer í að vinna við frönsku kvikmyndahátíðina en hún fer fram í 21. skiptið á þessu ári í Reykjavík.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
„Ég myndi fara í verslanir
sem selja notuð föt og ná
mér í nokkra fallega kjóla“
H
vað ertu að fást við núna?
„Kvikmyndahátíðin var alltaf í
Háskólabíó en hefur nú fært sig
um set í Bíó Paradís þar sem hún
er annað árið í röð. Þessi hátíð er
mikið tilhlökkunarefni hjá kvik-
myndaunnendum. Áður fyrr var mjög erfitt að
sjá evrópskar myndir í bíó hér á landi þótt það
hafir breyst mikið með tilkomu Bíós Paradísar
sem er svona alvöru „art house“-kvikmyndahús.
Það er mjög gleðilegt að geta haldið hátíðina í ár,
þar sem það var að sjálfsögðu óvissa vegna kór-
ónuveirunnar.
Það komast ekki eins margir í sæti og vanalega
í bíósalnum og það er grímuskylda. Við munum
passa vel upp á sóttvarnir en ég held að fólk sé
farið að þyrsta í bíó og af þeim sökum verði kvik-
myndahátíðin vel sótt.“
Hvaða kvikmynd á frönsku kvikmyndahátíðinni
ætlar þú að sjá?
„Ég ætla að reyna að sjá sem flestar og hef séð
tvær nú þegar. Ég er mikill aðdáandi chileanska
leikstjórans Alejandro Jodorowsky og við feng-
um nýju heimildarmyndina hans Psychomagic til
sýningar. Það er bara ein sýning í bíó en það er
einnig hægt að kaupa aðgang að henni á Heima-
bíói Bíós Paradísar sama sólarhring og hún er
sýnd ef maður nær ekki í miða. Myndin fjallar um
sérstakar aðferðir Jodorowskys við sálræna með-
ferð sem hann kallar Psychomagic en hann skrif-
aði einmitt bók líka með sama heiti. Ég ætla að
fara með níu ára dóttur mína á teiknimynd sem
heitir Hin fræga innrás bjarna á Sikiley en
Frakkar eru mjög framarlega í myndasögum og
teiknimyndagerð. Það er skemmtilegt að segja
frá því að hin virta leikkona Catherine Deneuve
er í tveimur myndum á hátíðinni. Sú fyrri er ný
mynd eftir japanska leikstjórann Hirokazu Kore-
eda en margir ættu að kannast við myndina hans
Shoplifters sem fékk frábærar viðtökur. Þar leika
Catherine Deneuve og Juliette Binoche mæðgur.
Síðari myndin er sýnd á Valentínusardaginn og
heitir Les Parapluies de Cherbourg (Regnhlíf-
arnar í Cherbourg) eftir Jacques Demi. Myndin
er klassísk kvikmyndaperla frá sjöunda áratugn-
um og í henni má sjá Deneuve unga. Þetta er til-
valið kvöld til að eiga rómantíska kvöldstund í bíó
og við verðum með sérstaka valentínusarglaðn-
inga í boði.“
Hvers vegna heillar kvikmyndin Les Parapluies
de Cherboug?
„Þessi mynd er klassísk rómantísk söng-
leikjamynd og er litrík og falleg. Hún hefur haft
áhrif á leikstjóra samtímans og til dæmis mynd-
ina La La Land eftir
David Chazelle.
Myndin er heillandi af
því hún er dálítið sorg-
leg og skartar dásam-
legri og frægri tónlist
eftir franska tón-
skáldið Michel LeGr-
and. Svo er hún svo
falleg áhorfs, litirnir
og tískan frá fyrri
hluta sjöunda áratugs-
ins eru svo skemmti-
leg.“
Hvað finnst þér fal-
legt við stíl Catherine
Deneuve? „Catherine
Deneuve var með
þennan fallega
franska áreynslulausa stíl bæði á hvíta tjaldinu og
utan þess. Hún valdi sér fatnað frá fremstu hönn-
uðum sjöunda áratugsins, meðal annars Yves
Saint Laurent og Co-
urréges. Hún lék oft
svona ósnertanlegar,
dálítið kaldar „femme
fatale“-týpur sem end-
urspeglaðist í klæðnaði
hennar, svona skörp-
um „mod“-stíl. Hún er
í einföldum stílhrein-
um fötum, með fallega
aukahluti eins og
borða í hárinu eða
blússur með slaufum
og oft með svöl gler-
augu og flotta hatta. Í kvikmynd Jacques Demy
er hún í pastellituðum fatnaði sem rímar við litina
í umhverfinu.“
Hvað gera franskar konur
til að halda sér í formi?
„Það er erfitt að segja, það er mjög mikið til af
klisjum um hvað franskar konur gera eða gera
ekki þegar kemur að útlitinu. En þegar ég bjó í
París þá gekk ég endalaust mikið alla daga, ann-
að hvort á milli Metro-stöðva eða hverfa. Þetta er
bara svo gönguvæn borg. Ætli það haldi þeim
ekki í góðu formi? Svo er líka mjög mikið af stig-
um í húsum og fáar lyftur þannig að það er van-
metin hreyfing. Svo er góð frönsk regla að setjast
niður og borða góðan mat í hádegi og á kvöldin en
ekki þessi endalausu millimál okkar Íslendinga.“
Hvað gera þær sem er smart
þegar kemur að förðun?
„Þegar ég hugsa um það þá farða franskar
konur sig afskaplega lítið. Það þykir ekkert voða-
lega smart að vera mikið farðaður. Ætli það sé
ekki bara annaðhvort eyeliner eða rauður varalit-
ur svona spari. Aldrei mikið meik og vesen heldur
mikið lagt upp úr fallegri húð.“
Hvernig getum við íslenskar konur fundið
munað í búðunum hér – til að vera í takt við
Catherine Deneuve í klæðaburði?
„Ég myndi fara í verslanir sem selja notuð föt
og ná mér í nokkra fallega kjóla, pils eða notaðan
pels og fallega vintage aukahluti. Horfið bara á
nóg af kvikmyndunum hennar til að fá inn-
blástur!“
Hvað ertu með í snyrtibuddunni?
„Svartan eyeliner, ljómapennann á baugana
mína frá Sensai, rósrauðan kinnalit, Velvet
Teddy-varalit frá Mac og Nuxe Huile Prodigeuse
og allt of mikið af drasli.“
Fegurðin í kvikmyndinni Parapluies de Cherbourg er mikil.
Anna Margrét mælir með frönskum
kvikmyndum með Catherine Deneuve.
Hún mælir með því að fólk
kynni sér fatastíl Deneuve.
Anna Margrét er á því að franskar konur
séu í góðu formi því þær gangi mikið.
Pelsarnir í Gyllta
kettinum eru flottir.
Anna Margrét Björns-
son starfar fyrir
franska sendiráðið.
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2021