Morgunblaðið - 12.02.2021, Page 16
L
aufey er viðskiptafræðingur og fatahönnuður sem segir
að hlutverk hennar sem tvíburamamma sé án efa það
merkilegasta.
Hún er yfirmaður rafrænna viðskiptasamskipta (e.
Customer Relationship Management in Ecommerce)
hjá By Malene Birger þar sem hún fæst við stafræna
markaðssetningu, stefnuþróun og ákvarðanir um rafræna mark-
aðssetningu fyrirtækisins.
„Dagarnir eru mjög fjölbreyttir en þessa dagana snýst vinnan að
mörgu leyti um að bregðast við breyttu landslagi í verslun sem hef-
ur skapast í heimsfaraldrinum, en í augnablikinu eru allar okkar
verslanir í Danmörku og Bretlandi lokaðar. Því fylgja miklar
áskoranir; ásamt því að sinna hefðbundinni markaðssetningu erum
við að leita nýrra leiða og þróa okkur áfram til þess að geta betur
náð tökum í þessu nýja umhverfi!“
Vinnur að heiman í faraldrinum
Laufey segir að þessa dagana vinni hún að heiman og vakni því
yfirleitt við fót eða olnboga í andlitinu frá öðrum hvorum tvíbur-
anna sinna.
„Ég er mjög stolt tvíburamamma. Synir mínir eru fjögurra
ára. Ég er frekar hress á morgnana og ríf mig á fætur hvern
morgun og helli upp á kaffi. Við fjölskyldan reynum að eiga
gæðastund saman yfir morgunmatnum áður en drengirnir fara
í leikskólann.“
Dæmigerður dagur í vinnunni hjá Laufeyju hefst á stöðuf-
undi með yfirmönnum markaðsmála.
„Svo er unnið að þeim verkefnum sem liggja fyrir. Þrisvar í
viku fer ég út að hlaupa í hádeginu.“
Íslendingar þekkja By Malene Birger-vörumerkið og er það í
uppáhaldi hjá mörgum á Íslandi.
„Það er ótrúlega skemmtilegt hvað margir þekkja merkið
hér í Danmörku og einnig á Íslandi. Það hjálpar til þegar ég
segi fólki hvað ég fæst við. Þetta er fyrirtæki sem hefur frá
stofnum verið með konur við stjórn og það eru mikil forréttindi
að fá að vinna í skapandi umhverfi með kraftmiklum konum.“
Starfar hjá By Malene
Birger í Kaupmannahöfn
Laufey Lúðvíksdóttir hefur það gott í Danmörku með fjölskyldunni sinni. Hún hefur
óbilandi áhuga á tísku, þótt fataskápurinn hennar sé ekki að springa úr óþarfa varningi.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Laufey er fatahönn-
uður að mennt og
er einnig menntuð í
viðskiptum.
SJÁ SÍÐU 18
Nokkur af uppáhalds-
dressunum hennar Laufeyjar í
haustlínu By Malene Birger.
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2021