Morgunblaðið - 12.02.2021, Side 18
með því á hliðarlínunni. Ég hef einnig fengið að vera aðeins með
sem hefur vakið meiri áhuga á að byggja eitthvað upp frá grunni
sjálf.“
Tekur tískuna ekki of alvarlega
Hvað er tíska í þínum huga?
„Tíska á að vera skemmtileg og fyrir alla. Mér finnst mikilvægt
að taka hana ekki of alvarlega og treysta sjálfum sér þegar kemur
að því að velja sér fallegar flíkur.
Við erum fyrst og fremst að klæða okkur í föt til þess að full-
nægja mismunandi þörfum. Mér finnst fólk eiga að klæða sig í föt
sem lætur því líða vel og þegar fólki líður vel þá skín það í gegn.“
Spurð um vörurnar í snyrtibuddunni segir Laufey að hún noti
mest vörur frá ChitoCare beauty.
„Ég er með andlitskremið og serum frá ChitoCare Beauty. Anti-
Aging Repair-serumið er ekki komið á markað en kemur í lok mán-
aðarins. Ég nota það bæði kvölds og morgna. Ég nota felara frá
Nars og kinnalit sem ég skilgreini sem nauðsynjavörur þegar mað-
ur er með tvo litla stráka sem eiga það til að vilja fara á fætur á
mjög svo ókristilegum tíma.
Ég er einnig með ilmvatnið mitt, Tobacco Vanille frá Tom Ford, í
snyrtibuddunni. Ilmvatnið nota ég daglega.“
Laufey segir fataskápinn sinn frekar einfaldan.
„Ég er með stóran jakka (e. oversized blazer), stuttermaboli,
gallabuxur og góða skó, þar sem ég fer allt gangandi eða á hjóli.
Mér finnst mikilvægt að minnka fatasóun og reyni því að hugsa
mig vel um áður en ég bæti í fataskápinn.“
Laufey kann að
meta fegurðina í
höfuðstöðvum By
Malene Birger.
Fallega lagt á borð úti við höf-
uðstöðvar By Malene Birger.
Laufey ásamt unn-
usta sínum Vigfúsi.
Kaupmannahöfn er heimilisleg stórborg
Áttu þér uppáhaldsflík frá vörumerkinu?
„Ég elska peysur. Í Danmörku er stundum óhugnanlega kalt á
veturna líkt og á Íslandi og því eru By Malene Birger-peysurnar
mínar í algjöru uppáhaldi.“
Aðspurð hvað sé á óskalistanum fyrir heimilið í vetur segir hún
að því miður sé By Malene Birger ekki að selja marga hluti fyrir
heimilið.
„Efst á óskalistanum eru stólar frá Jean Prouvé fyrir borðstof-
una. En bestu kaup heimilisins á síðasta ári voru JFK-skrifborð frá
Norr11, sem hefur komið sér einstaklega vel nú þegar vinnan fer
mest fram á heimilinu.“
Laufey er menntaður fatahönnuður frá Listaháskóla Íslands og
er með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræði frá
Háskóla Íslands.
„Ég flutti til Kaupmannahafnar til að fara í skiptinám við Copen-
hagen Business School og byrjaði fljótlega eftir að ég kom út að
vinna hjá 66° Norður. Þau voru þá að opna sína fyrstu verslun hér
og tók ég þátt í uppbyggingu á henni. Ég vann fyrir fyrirtækið frá
ársins 2014 til ársins 2018.
Ég byrjaði hjá By Malene Birger árið 2019 í markaðsdeildinni og
í kjölfarið var mér svo boðin vinna við að leiða hluta af stafrænni
markaðssetningu og ég færði mig af þeim sökum í upphafi árs 2020
yfir í stafræna (e. Ecommerce) teymið.
Það var ekki upphafleg áætlun mín að ílengjast í Kaupmanna-
höfn, en borgin er frábær að búa í og okkur líður öllum mjög vel
hér. Sem er ástæða þess að við erum hér og verðum um óákveðinn
tíma.“
Hún segir Kaupmannahöfn heimilislega stórborg.
„Það er mikið að gerast. Borgin er líklega heitasti staðurinn í
heiminum í dag í matarmenningu og hún hefur ríka menningar- og
listasögu. Að sama skapi verður borgin aldrei yfirþyrmandi.
Eins finnst mér alveg ótrúlega þægilegt að geta farið nánast allt
gangandi eða hjólandi. Við fjölskyldan búum til að mynda í „þorpi“
á Vesterbro, þar sem vinnan okkar og leikskóli barnanna er í nokk-
urra kílómetra radíus.“
Velur gæði fram yfir magn
Laufey segir ýmislegt að læra af tískunni.
„Fyrir mér er það augljóst að tískuiðnaðurinn þarf að taka stefn-
una frá fatnaði sem er gerður í hraði (e. fast fashion) og ráðlegg ég
öllum að eiga frekar færri gæðaflíkur sem hægt er að nota í mörg
ár, hvort sem þær eru keyptar notaðar eða nýjar. Við erum mark-
visst að vinna að því að framleiðslan sé eins sjálfbær og hægt er.“
Íbúðin sem fjölskyldan býr í er falleg með svalir sem snúa í suð-
ur sem gerir gæfumuninn að hennar sögn.
„Í fimm mánuði ársins er hægt að vera úti á svölunum. Við
blöndum klassískri hönnun við hluti sem okkur finnst skemmtilegir
eða praktískir.“
Hún segir hugmyndina á bak við að læra viðskiptafræði og fata-
hönnun alltaf hafa verið þá að vera betur í stakk búin til að stofna
sitt eigið vörumerki.
„Í augnbalikinu finnst mér dásamlegt að vinna fyrir og læra af
öðrum og sé ekki fram á að breyta því í bráð. Sigríður Vigfúsdóttir
tengdamamma mín og Vigfús Rúnarsson kærastinn minn hafa síð-
ustu ár staðið að þróun og uppbyggingu íslenska vörumerkisins
ChitoCare Beauty og ég hef lært mikið af þeim af því að fylgjast
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2021