Morgunblaðið - 12.02.2021, Side 40

Morgunblaðið - 12.02.2021, Side 40
Morgunblaðið/Eggert 40 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2021 Skipholti 29b • S. 551 4422 NÝTT Í LAXDAL Skoðið laxdal.is TRAUST Í 80 ÁR E va Dögg heldur úti vellíðunarvefnum Rvk Ritual með samstarfskonu sinni Dagnýju Berglindi Gísladóttur. Þar kenna þær konum að hugleiða og næra sig í gegnum fréttir á síðunni og áhugaverð námskeið. „Uppáhaldssnyrtivaran mín og sú sem ég mæli hvað mest með er hugleiðsla. Það er ekkert sem virkar jafn fegrandi og frískandi og góð hugleiðsla, öndun og jóga. Áföll og streita sjást á andlitinu og líkamanum og geta komið fram sem öldrunareinkenni. Hugleiðsla er algjört lykilatriði, andlitsnudd með Ritual Gua Sha-kristallinum og smá andlits-yoga. Þá þarftu ekki mikið annað en eitt gott krem sem virkar á allt og þá mæli ég með AMB-kreminu sem ég geri. AMB-kremið heitir „Allra Meina Bót“ og er eitt krem fyrir allt. Ég nota það á hverjum morgni og hverju kvöldi og nokkrum sinn- um yfir daginn. Ég set það á varirnar, líkamann, nota það sem „highlighter“ og set það í hárið. Það er alveg lífrænt og ég get ekki lifað án þess.“ „Áföll og streita sjást á andlitinu“ Eva Dögg kennir konum að hug- leiða og næra sjálfar sig. Eva Dögg Rúnarsdóttir, fatahönnuður og jógakennari, segir hugleiðslu bestu snyrtivör- una í bland við krem sem dugar á næstum allt. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is N ýjar förðunaráherslur líta dagsins ljós í vor- og sumartískunni. Nú erum við að tala um ljómandi húð, skarpan eyeliner og bjarta varaliti. „Það er ekkert sem bannar okkur að fara í fínni föt, setja upp varalit og maskara, hvort sem er fyrir fjarfundinn eða sem tilbreyting heima við. Eftir síðasta ár hefur aldrei verið eins mikilvægt að huga að heilsunni, sem endurspeglast í vorförðuninni þar sem mikið er um „bare face“ eða mjög létta og ljóm- andi förðun sem leyfir húðinni að njóta sín. Með auk- inni grímunotkun eru augun áherslusvæðið og með vorinu sjáum við skarpa, vængjaða eyelinerinn koma til baka. Bjartari tímar kalla svo á litríkari og djarfari varaliti. Ég legg alltaf mikla áherslu á góðar og rakagefandi húðvörur sem undirbúning fyrir förðun. Umhverfis- breytingar eru miklar á vorin sem hafa áhrif á rakastig húðarinnar og grímunotkun hefur áhrif sömuleiðis. YSL Top Secrets andlitsvatn fyllir húðina raka og viðheldur honum allan daginn,“ segir Björg. Hún segir að YSL Pure Shots Lines Away serumið jafni áferð húðar og gefi ljóma. „Seruminu má dúmpa yfir kinnbein og augabrúnir þegar förðunin er tilbúin til að ná fram heilbrigðri „dewy“ ljómaáferð.“ Kremaðir, mjúkir farðar sem hafa húðbætandi eig- inleika eru vinsælir núna og til að toppa húðina þarf ekki meira en milt sólarpúður og bjartan kinnalit. Touche Éclat er vinsælasti farði YSL og kemur endurbættur í febrúar, enn mýkri og endingarbetri. YSL Touche Éclat high cover hyljari inniheldur koffín og E-vítamín sem draga úr þrota á augnsvæð- inu og jafna litarhátt. Beached Bronzer frá Urban Decay er létt sól- arpúður sem gefur fullkomið, sólkysst útlit,“ segir Björg. Hún mælir með því að fólk noti augnskuggann sinn sem kinnlit. „Ég nota bleiku litina í Color Clutch-pallettunni frá YSL bæði á augu og á kinnar. Þar sem mig langaði að hafa áherslu á skarpa augnlínu gerði ég milda skyggingu á augun og ýfði augabrúnir fyrir enn náttúrulegra lúkk.“ Eitt af leynitrixum Bjargar er að nota blautan augnskuggagrunn til að dýpka púðurlitina sem á eftir Litríkari varir og eyeliner í forgrunni Björg Alfreðsdóttir, alþjóðlegur förð- unarfræðingur YSL á Íslandi, segir að skarpur eyeliner og bjartur varalitur verði eitt af trendum ársins 2021. Hún farðaði Söndru Gunnarsdóttur með nýjustu litunum. Marta María | mm@mbl.is Björg legg- ur áherslu á að undirbúa húðina vel fyrir förðun. Hún notar til dæmis YSL Top Secrets andlitsvatn, YSL Pure Shots og YSL farð- ann Touche Éclat.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.