Morgunblaðið - 12.02.2021, Síða 49
FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2021 MORGUNBLAÐIÐ 49
Þú ert rósin ... Allt sem lifir, um síðir mun sölna seinast þú, ástinmín ...
Úrval dekurstunda fyrir einn, málsverða fyrir tvo, hótelgisting og fleira
GEFÐU
ÁSTINNI
UPPLIFUN
Í ÖSKJU
SP
ÖR
EH
F.
577 5600 | info@oskaskrin.is
Óskaskrín fæst einnig í verslunum Pennans Eymundsson og Hagkaups
Sjálf hef ég horft upp á og heyrt reynslu-
sögur frá mínum starfsfélögum erlendis sem
hafa setið á ansi heitum fundum í Afríku
með stríðandi fylkingum, með bókstaflega
hríðskotabyssur undir stólum. Þar sem hef-
ur tekist að koma á varanlegum friði með
gagnkvæmri hlustun og skilningi.
Þessi hugmyndafræði er notuð í friðar-
viðræðum um allan heim en vinir mínir og
kollegar eru ansi ötulir á spennusvæðum
eins og Palestínu/Ísrael þar sem fólk úr mis-
munandi aðstæðum fær innsýn í líf hvert
annars. Það sem ég er kannski að reyna að
koma á framfæri er að þetta er ótrúlega
magnað tól til að tengja fólk án þess að
nokkur málamiðlun sé gerð, en allir fá sitt
og öll mörk eru virt.“
Hver er þín trú á tengslum samskipta og
heilsu?
„Ég hef reynslu af hversu samtvinnuð
andleg heilsa er líkamlegri heilsu. Áföllin
okkar sitja í beinunum okkar. Meira að
segja áföll fyrri kynslóða sitja í okkar lík-
ömum að einhverju leyti og stýra okkur í
meðvitundarleysi eða sjálfstýringunni okkar.
Það er frekar lítið mál að vinda ofan af
þessu, það eina sem þarf er einbeittur vilji,
þor og stuðningur frá aðilum sem hafa tekið
til í eigin tilveru og hafa kunnáttu og innra
rými til að halda utan um ferli viðkomandi.“
Kolbrún segir að áherslan sé á tengingu
við hinn aðilann og sjálfan sig og síðan
gagnkvæman skilning.
„Grunnurinn sem aðferðin er byggð á eru
sammannlegar þarfir sem við erum alltaf að
uppfylla. Allt sem við gerum eru leiðir til að
uppfylla þarfir. Sumir skilgreina þær sem
gildi, en listinn er langur og það sem ég
vinn með telur 70-100 þarfir eins og öryggi,
tengsl, samfélag, gleði, léttleika og ást svo
eitthvað sé nefnt. Ég tek að mér hlutverk
túlks og hlusta eftir þörfum sem hvor um
sig er að uppfylla með hegðun sem er mögu-
lega meiðandi fyrir annan aðilann eða báða.
Þetta er gert í tvennu lagi eða saman. Það
fer eftir því hversu harður hnúturinn er.“
Margar góðar leiðir í boði í samskiptum
Hún segir að þegar gagnkvæmur skiln-
ingur sé kominn fari spennan og opnast á
lausnir.
„Við höfum öll þörf fyrir að styðja hvert
annað og vera í samhljómi. Ég get sagt sögu
af pabbanum sem kom heim dauðþreyttur.
Dóttir hans sem var níu ára tók á móti hon-
um og langaði í badminton. Hann nennti
ekki en svaraði með tón að hann gæti leikið
við hana. Hún alin upp í anda NVC heyrði á
raddbeitingunni hvernig stemmingin á hon-
um var og nefndi að það væri ekki gaman
fyrir hana að leika við hann í þessum ham.
Svo bauð hún honum að tjá þarfirnar sínar,
sem voru hvíld en að sama skapi samvera og
tengsl við hana. Hún stakk þá upp á að
hann myndi leggja sig, hún myndi föndra og
lita og hann myndi bara hrósa henni af og
til. Hann var meira en til í það svo allir
fengu það sem þeir voru að leitast eftir.
Þetta er það sem NVC gengur út á. Að
fara af stað í ferðalag og skoða hvaðan við
erum að koma og finna leiðir til að uppfylla
þarfir allra án afsláttar. Hver þörf á 1.001
leið til að verða uppfyllt.“
Áttu góð ráð fyrir þá sem eru í erfiðum
samskiptum?
„Að vanda orð sín og ásetning og vera
meðvituð/aður um hvaða orku maður/kona
er að gefa frá sér. Við erum speglar svo allt
sem við gefum frá okkur kemur til baka til
okkar. Eins að hlusta til að heyra og ein-
beita sér að þörfunum á bak við orðin en
ekki hlusta til að bregðast við. Það er
ástæða fyrir að við erum með einn munn en
tvö eyru. Svo að gefa sér rými í amstri
dagsins til að fara í leikinn: Hvað kann ég
mest að meta við þig? Sem sagt taka tíma til
að setjast niður og íhuga og tjá sig um hvað
hinn aðilinn gerir sem bætir tilveru mína og
öfugt. Ráð sem ég fékk frá afleggjaranum
mínum, oft kennir eggið hænunni ef við
hlustum. Ég mæli með að fólk setjist and-
spænis hvort öðru og hvor fær fjórar til
fimm mínútur til að tala út frá eigin brjósti
til skiptis. Þetta tekur í kringum fjörutíu
mínútur. Eins að undirbúa stundina með því
að útiloka allt áreiti og hægja á sér. Það er
hjálplegt að hafa opnar spurningar til hug-
vekju. Það er mikilvægt að stoppa ekki
flæðið og hvorki trufla þann sem er að tala
né tala á milli, bara skipta á fimm mínútna
fresti og ræða síðan eftir hvernig upplifunin
var. Ég hef líka mælt með að fólk setjist
niður og aðili tali í fimm mínútur ótruflað, ef
hann/hún þegir í þrjár, þá er tíminn samt
sem áður hans/hennar og ekki má trufla.
Næst eru fimm mínútur þar sem hinn að-
ilinn fær að endursegja hans/hennar skilning
á því sem talað var um. Það skýrir það sem
er óskýrt í fimm mínútur þar til kominn er
gagnkvæmur skilningur. Svo snýst dæmið
við. Mikilvægt er að gefa þennan tíma
ótruflaðan.“
Kolbrún er ein þeirra sem telur mikilvægt að heilari heili sig sjálfan fyrst.
Umhyggjurík samskipti hafa verið kennd
meðal annars í Afríku.