Morgunblaðið - 12.02.2021, Síða 52
kerfið okkar. Þá öndum við eins og ungbörn,
djúpt ofan í kvið, stöldrum við og öndum svo
rólega frá okkur í gegnum nefið. Við kunnum
þetta sem börn og getum lært þetta aftur.
Tryggjum einnig djúpan nætursvefn við góð
svefnskilyrði. Við hvetjum fólk einnig til þess
að sækja sér daglega „heilahvíld“. Þá gefum
við okkur rými til að kúpla okkur aðeins út úr
dagsins önn og amstri til þess að dreifa og
hvíla hugann. Við getum horft á sjónvarps-
þátt, prjónað, eldað, dansað, sungið eða spilað.
Að lokum vil ég minnast á hugrekki. Því
tvær helstu grunnþarfir mannsins eru að vaxa
og upplifa stjórn á lífi sínu. Forsenda þess að
geta vaxið er að fara út fyrir þægindaram-
mann endrum og eins; að ögra sjálfum sér og
sigra sjálfan sig. Þægindaramminn er ekkert
svo þægilegur. Meira að segja vatn myglar
þegar það er kyrrt of lengi; hvað þá mann-
eskjur.
Flest gamalt fólk sér eftir því sem það gerði
ekki í lífinu, ekki því sem það gerði. Það er
mikil lífsfylling fólkin í því að lifa í takt við
eigin gildi, langanir, drauma og þrár. Búrið er
alltaf opið en það er okkar að þenja vængina
og fljúga af stað. Taka stjórnina og bera
ábyrgðina. Þegar við sigrum okkur sjálf eykst
sjálfstraust okkar og sjálfstraust er smitandi.
Það er gefandi og gaman að vera innan um
fólk sem ber virðingu fyrir sér og öðrum.“
Ástin skiptir máli í lífinu
Hver er grunnurinn að góðu sambandi að
þínu mati?
„Ást, virðing, sameiginleg gildi, húmor og
verkaskipting. Sem foreldrar fjögurra barna
þurfum við að vera mjög skipulögð og skipta
með okkur verkum. Maðurinn minn sem
dæmi eldar og ég sé um þvottinn. Við erum
samstilltir foreldrar og höfum sömu grunn-
gildi í uppeldinu að leiðarljósi: Að varðveita
sjálfstraustið og sjálfstæðið sem börnin okkar
fæddust með. Sjálfstraust er lykillinn að öllu
góðu í lífi okkar. Okkur finnst mikilvægt að
þau fái áheyrn, skilning, hvatningu og skilyrð-
islausa ást, tækifæri til að fara út fyrir þæg-
indarammann, hugsa út fyrir boxið, sigra sig
sjálf, reka sig á og læra af reynslunni og sýna
seiglu.
Vissulega erum við ólík á margan hátt en
það að grunngildin séu þau sömu tel ég mik-
ilvægt til þess að hvaða hjónaband sem er
gangi upp. Að fólk líti til sömu áttar. Þá er
einnig mikilvægt að virða það að við erum ólík
og í staðinn fyrir að líta á það sem ógn að líta
á það sem tækifæri til þess að læra eitthvað
meira og skilja heiminn betur. Svo verður
maður að vera ástfanginn, sýna virðingu og
geta hlegið saman. Að taka sig ekki of alvar-
lega heldur geta gert góðlátlegt grín að sjálf-
um sér. Það er engin ástæða til þess að taka
lífið of alvarlega, við komumst hvort eð er
ekki lifandi frá því. En það er ekki það sama
að vera „bara til“ og að „lifa til fulls“ – að
fagna lífinu og þakka lífgjöfina þrátt fyrir að
lífið sé ekki alltaf dans á rósum. Það lofaði
okkur því enginn að lífið yrði alltaf létt. Þegar
reynir á okkur er einmitt kjörið tækifæri til
þess að þroskast, læra og „stækka“.“
Aldís Arna er þakklát fyrir hvað mark-
þjálfun er að verða vinsæl.
„Læknanemar við læknadeildina í Harvard
eru farnir að læra markþjálfun til þess að
flýta fyrir bata og endurhæfingu með því að
skapa umhverfi sem hvetur sjúklinga til þess
að hafa meira um bataferli sitt að segja. Sjúk-
lingar eru hvattir til þess að bera ríkari
ábyrgð á eigin heilsu, líta í eigin barm, virkja
eigin visku og styrk til þess að finna lausn
sem hentar viðkomandi og flýtir fyrir endur-
komu út í lífið eða á vinnumarkaðinn. Þegar
sjúklingar eiga meiri hlutdeild í „lausninni“ þá
eru þeir líklegri en ella til þess að ná til-
skildum árangri.“
Aldís Arna er í
viðbragðsteymi
Rauða krossins
á Vesturlandi.
Aldís Arna er mikið fyrir að
vera úti í náttúrunni.
52 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2021
Kevin Murphy Iceland Kevin Murphy Iceland
Skincare for your hair