Morgunblaðið - 12.02.2021, Side 54

Morgunblaðið - 12.02.2021, Side 54
É g var ósátt við sjálfa mig að öllu leyti. Ég stundaði grimmt niðurbrot og var minn versti óvinur. Mér fannst ég frekar lélegur pappír, var ósátt við spegilmyndina og refsaði mér í ræktinni í hundleiðinlegum þolæfingum og hoppiskopptímum. Ég vissi að ég þyrfti að hreyfa mig en markmiðið var aldrei að vera við góða heilsu. Ég var þjökuð af átröskun og sjálfsmyndin í molum. Með algjöru sjálfsofbeldi náði ég að halda mér þolanlegri en ég var aldrei sátt. Ég sé það í dag að ég var bara í sjálfsköpuðu fangelsi.“ Var tilbúin að taka út refsinguna Sandra Dögg kynntist jóga fyrir algjöra slysni þegar hún fór í sinn fyrsta jógatíma fyrir átta árum síðan. „Ég var tilbúin að taka út refsinguna sem ég taldi mig þurfa að sitja. Ég hafði heyrt að þetta væri eitthvað allt ann- að en ég var vön. Ég hafði svo sem ekki mikla trú á að ég mundi finna mig í þessari hreyfingu frekar en annarri en ég var örvæntingarfull og drifkrafturinn var svo sannarlega að verða mjó svo ég mundi nú passa inn í samfélagið. Fyrsti tím- inn var erfiður en ég sá samt að þetta var skárra en allt hitt. Á móti mér tók fullur salur af fullkomnu fólki að mér fannst og ég ætla klárlega ekkkert að leyna því að mér fannst það mjög erfitt og ég upplifði mig sem algjöran einhyrning þarna inni. Staðalímyndin var sönn, þarna var fullt af fólki í full- komnum hlutföllum að mér fannst. Ég er sem betur fer með Sandra Dögg segir jóga hafa breytt lífi sínu og að jóga sé fyrir alla. „Ég refsaði mér í ræktinni með hundleiðinleg- um æfingum“ Sandra Dögg Jónsdóttir jógakennari segir að hún hafi notað líkamsrækt til að refsa sér með, þar til hún kynntist jóga. Hún er hamingjusöm, glöð og frjáls í dag, en þannig var lífið ekki áður. Hún leiðir fólk í átt að meiri sjálfsmildi með jóganámskeiðinu Jákvæð líkamsmynd. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is 54 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2021 EVY-dagkremið í froðuformi er til daglegrar notkunar. „Fyrirbyggir ótímabæra húð- öldrun og brúna húðbletti“ E VY „Anti-age“-andlitsmousse fyrir-byggir ótímabæra húðöldrun og brúna húð- bletti. Varan var valin vara ársins árið 2017 af tímarit- inu TARA. Dagkremið er í froðu- formi og er til daglegra nota. Það inniheldur hýalúronsýru, kollagen og silkiextrakt ásamt C- og E-vítamíni sem byggir upp húðina.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.