Morgunblaðið - 11.03.2021, Page 4

Morgunblaðið - 11.03.2021, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARS 2021 „Komdu í Bílanaust þar færð þú allt fyrir bílinn og meira til“ rafgeymar olíurvarahlutir vetrarvörur 3 7 verslanir um land allt Hafnargötu 52Vatnagörðum 12 104 Reykjavík S. 535 9000 Guðni Einarsson Jóhann Ólafsson Eldgos getur komið upp á Reykja- nesskaga með skömmum fyrirvara, að mati dr. Páls Einarssonar, jarð- eðlisfræðings og prófessors emer- itus. Afar litlar líkur eru á því að slíkt gos nái í byggð, að sögn vís- indaráðs almannavarna. „Það er bullandi atburðarás í gangi og allt óstöðugt. Meðan það ástand varir er erfitt að segja hvert framhaldið verður,“ sagði Páll. Hann segir að ef kvikan hefur þrýsting og aðstæður til þess að koma upp á yfirborð þá geti hún far- ið þann kílómetra sem eftir er á stuttum tíma. „Við erum þegar búin að sjá aðdragandann. Hann er orð- inn langur en getur líka orðið lengri,“ sagði Páll. Hann minnti á að Holuhraunsgangurinn lengdist í tvær vikur áður en kvikan kom upp. Komi upp eldgos við Fagradals- fjall er líklegt að það verði sprungu- gos. Þau geta verið kraftmikil í fyrstu. Botninn dettur þó oft fljótt úr kraftinum eins og þekktist í Kröflugosunum. Sum byrjuðu á löngum sprungum og sendu frá sér mikið hraun á stuttum tíma. Eftir daginn var svo allur kraftur úr þeim. Ein sviðsmyndin er að aðfærsla kviku geti stöðvast. Þá mun gang- urinn storkna og verða viðbót við jarðskorpuna. Endi kvikugangsins á Reykjanes- skaga hefur færst sunnar og var syðri endi hans undir Fagradalsfjalli í gær. Gangurinn er 1-2 metra þykk- ur, að sögn Páls. Hann segir að líta megi á kviku- ganginn eins og borðplötu sem er reist upp á rönd. Efri brúnin er á um 1-1,5 km dýpi og svo nær hún 4-5 km niður í jörðina. Talið er að 10-20 rúmmetrar af kviku streymi inn í ganginn á sekúndu. Hann þenst því út og þykknar. Áætlað er að heildar- rúmmálið sé orðið 10-20 milljónir rúmmetra. „Það þykir ekki voðalega mikið,“ sagði Páll. „Ef það kæmi allt upp á yfirborðið þá væri það eins og eitt Fimmvörðuhálsgos sem var með minnstu gosum.“ Líkön sem nú eru reiknuð gera ráð fyrir að heldur hafi grynnkað á öllu varðandi kvikuganginn og hann færst nær yfirborðinu. Páll segir að jarðlögin sem eru ofan við ganginn séu líklega veikari en þau sem hann hefur þegar troðist í gegnum. Fyrir ofan ganginn kemur vatn inn í myndina sem gæti kælt kvik- una. Það gæti því farið að gæta jarð- hita á svæðinu. Páll segir að jarðskjálftarnir verði fyrst og fremst vegna þess að gang- urinn hafi áhrif á spennusviðið í jarðskorpunni. Hann geti því hleypt af spennu sem er þar fyrir. Það er því ekki sjálfur gangurinn sem veld- ur skjálftunum heldur hleypir hann þeim af stað. Sennilega eru þetta gikkskjálftar að mestu leyti, að mati líklega fyrir ofan skjálftaupptökin,“ sagði Páll. Líkurnar á eldgosi aukast „Það er heilmikil virkni enn í gangi og ný gervitunglamynd frá því í gærkvöldi [fyrrakvöld, innsk. blm.] sýnir að kvikugangurinn milli Keilis og Fagradalsfjalls er að stækka og það er að byggjast upp þrýstingur í honum,“ sagði Kristín Jónsdóttir, fagstjóri á sviði náttúruvár hjá Veð- urstofunni, í samtali við mbl.is í gær. Kristín segir gervitunglamyndina benda til þess að það sé frekar stöð- ugt flæði kviku inn í kvikuganginn. „Síðan bregst jarðskorpan þannig við að það verður hrinukennd jarð- skjálftavirkni og einstaka sinnum stærri skjálftar.“ Á mánudag kom fram að kviku- gangurinn væri á um eins kílómetra dýpi þar sem hann er lengst til suð- vesturs og hefur hann haldið áfram að grynnast. Spurð hvort þetta muni enda með eldgosi, sagði Kristín lík- urnar á því aukast: „Ég held að við þurfum að gera ráð fyrir því og á meðan þetta er í gangi aukast líkurnar. Auðvitað er þetta búið að standa yfir í nokkra daga og við sjáum ekki nein merki þess að þessu muni linna. Möguleik- inn á eldgosi verður alltaf líklegri, eftir því sem líður á.“ Líklega skammur fyrirvari goss  Fari að gjósa við Fagradalsfjall gýs líklega á sprungu  Litlar líkur á að gos nái til byggða  Mögu- lega getur kvikugangurinn storknað  Spennulosun veldur jarðskjálftum  Vaxandi líkur eru á eldgosi Jarðskorpu hreyfi ngar á Reykjanesskaga Heimild: ÍSOR InSAR bylgjuvíxlmynd 3.-9. mars 2020 Hreyfi ng á yfi r borði KEFLAVÍK NJARÐVÍK VOGAR GRINDAVÍK Krýsuvík Þorbjörn Trölla- dyngja KeilirFagra- dalsfjall Bláa lónið Páls. „Þar sem við höfum betri upp- lýsingar, eins og með Bárðarbungu- ganginn sem fór norður í Holu- hraun, þá virtust skjálftaupptökin vera við neðri brúnina á ganginum frekar en þá efri. Gangurinn er því Enginn greindist með kórónuveir- una í gær, hvorki starfsmenn og sjúklingar Landspítalans né tón- leikagestir í Hörpu. Þetta sagði Már Kristjánsson, yfirlæknir á smit- sjúkdómadeild Landspítalans, í samtali við mbl.is í gærkvöldi. Smit kom upp hjá starfsmanni göngudeildar lyflækninga Landspít- alans um síðustu helgi, en hann sótti tónleika í Hörpu á föstudagskvöld. Allur hópurinn fer í seinni skimun í dag. Starfsmenn og sjúklingar Landspítalans sem um er að ræða eru um 70 talsins. Aftur á móti sóttu um 800 manns tónleikana í Hörpu. Már sagði að dagurinn í dag yrði stór þegar kemur að því að meta stöðuna hér á landi eftir að ljóst varð að nokkur innanlandssmit hefðu orðið af breska afbrigði Co- vid-19. Spítalinn sér um skimanir þeirra starfsmanna og sjúklinga sem eru bólusettir en eftirfylgnin fyrir þá sem eru í sóttkví er á vegum Heilsu- gæslu höfuðborgarsvæðisins. Starfsmenn Landspítala hafa einnig verið bólusettir í þessari viku og haldið verður áfram með bólu- setninguna í þeirri næstu. „Við sjáum fram á að ljúka bólusetningu allra starfsmanna spítalans, skrif- stofufólks, verktaka og annarra á um tveimur vikum,“ sagði Már, en um 5.000 manns er ræða. Um 1.000 sýni höfðu verið tekin inn í veirutæki sýkla- og veirufræði- deildar Landspítalans seint í gær. Af þeim 600 til 700 svörum sem voru komin þegar blaðið fór í prentun hafði, sem fyrr segir, ekkert jákvætt sýni greinst. Að sögn Karls G. Kristinssonar, yfirlæknis á deildinni, eru þetta að vonum jákvæð tíðindi. Hafa beri samt í huga að ekki eru komnar nið- urstöður úr öllum sýnunum. „Það á eftir að keyra heilmikið af sýnum ennþá. Við vitum ekki hvernig dag- urinn mun líta út,“ sagði hann og reiknaði með því að sýni gærdagsins yrðu á annað þúsund. Af þeim þremur jákvæðu sýnum sem greindust á deildinni í fyrradag, greindust tveir með smit á landa- mærunum, auk þess sem einn var með mótefni í landamæraskimun. Enginn greindist í gær  Stór dagur í dag, segir Már  Á annað þúsund sýni voru tekin í gær  Ekki liggja fyrir allar niðurstöður gærdagsins Morgunblaðið/Eggert Skimun Sýnin sem rannsökuð voru í gær voru á annað þúsund talsins. Nú hillir undir að laxeldi geti hafist í Ísafjarðardjúpi. Fyrst í röðinni er Háafell, dótturfyrirtæki Hraðfrysti- hússins-Gunnvarar. Matvælastofnun og Umhverfisstofnun hafa kynnt til- lögur að rekstrar- og starfsleyfum til fyrirtækisins til eldis á 6.800 tonnum af laxi í Djúpinu. Aðeins aftar í röðinni eru umsóknir Arctic Fish og Arnarlax. Háafell hefur leyfi til 6.800 tonna eldis á regnbogasilungi og fellur það úr gildi þegar laxeldisleyfið verður gefið út. Leyfið er miðað við hámarks- lífmassa sem þýðir að heildarfram- leiðsla á ári getur orðið rúmlega 5.400 tonn. Eldi í sjó hefst eftir rúmt ár Reikna má með að leyfi verði gefin út á næstu vikum. Háafell stefnir að því að setja fyrstu laxaseiðin út í sjókvíar vorið 2022. Þau koma frá seiðaeldisstöð fyrirtækisins á Naut- eyri í Ísafjarðardjúpi. „Við fáum hrognin í hús í næsta mánuði. Það tekur ár að klekja þau út og ala seiðin í sleppistærð,“ segir Kristján G. Jóakimsson, vinnslu- og markaðsstjóri HG. Hann tekur und- ir þau orð að tillaga að rekstrar- og starfsleyfum sé jákvætt skref í þá átt að koma eldi í Ísafjarðardjúpi af stað. Laxinn þarf að ala utan við línu sem dregin er þvert yfir Djúpið, nálægt Æðey. Háafell er með staðsetningar innan línunnar sem notaðar verða til eldis á regnbogasilungi og eftir fáein ár er stefnt að eldi á ófrjóum laxi þar. Þess vegna fær Háafell sérstakt leyfi fyrir eldi á ófrjóum laxi, til viðbótar frjóa laxinum. Hafrannsóknastofnun hefur metið burðarþol Ísafjarðardjúps 30 þúsund tonn, miðað við hámarkslífmassa, en áhættumat sömu stofnunar með tilliti til erfðablöndunar heimilar 12 þúsund tonn af frjóum laxi. helgi@mbl.is Leyfi til laxeldis í Djúpinu í farvatninu  Tillaga að leyfi fyrir Háafell

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.