Morgunblaðið - 11.03.2021, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARS 2021
Afstaða núverandiheilbrigðis-
ráðherra til einka-
rekstrar hefur ekki
farið framhjá nein-
um. Frekar en að
greiða fyrir aðgerðir
á einkareknum stof-
um hér á landi hefur
jafnvel verið flogið
með sjúklinga til út-
landa til að fram-
kvæma aðgerðirnar
þar fyrir mun hærri
upphæð – jafnvel af
sama lækninum og
hefði ella framkvæmt
aðgerðina hér á landi fyrir lægra fé.
Árni Tómas Ragnarsson læknirritaði grein í Morgunblaðið í
gær þar sem hann fjallaði um annan
anga þessa fjandskapar í garð einka-
rekstrar á heilbrigðissviði. Árni
Tómas sagði í grein sinni að „þing
og ríkisstjórn beittu sér fyrir því fyr-
ir nokkrum árum að gjöld fyrir kom-
ur til sérfræðilækna hækkuðu mikið
á meðan t.d. lág gjöld vegna komu til
heilsugæslulækna voru lækkuð enn
frekar, þ.e. meira niðurgreidd af
hinu opinbera, já, 10-20 sinnum
meira en gjöld til sérfræðilæknanna.
Þannig hefur mikill fjöldi Íslendinga
þurft að greiða miklu meira fyrir
heilbrigðisþjónustu sína, þ.e. þeir
sem vilja eða þurfa að njóta þjónustu
sérfræðilækna.“
Sú afstaða sem Árni Tómas lýsirtil sérfræðilækna hefur einnig
komið fram í afstöðunni til einkarek-
inna hjúkrunarheimila sem bera sig
illa eftir samskiptin við fjandsamlegt
stjórnvald.
Kreddurnar sem ráðið hafa ríkj-um í heilbrigðisráðuneytinu á
undanförnum árum hafa verið rík-
inu dýrar, en ekki síður sjúklingum í
auknum útgjöldum, verri aðhlynn-
ingu og meiri þjáningum. Afar brýnt
er að þessu ástandi fari að linna.
Atlagan gegn
einkarekstrinum
STAKSTEINAR
Svandís
Svavarsdóttir
Árni Tómas
Ragnarsson
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Frestur til að skila skattframtölum
einstaklinga rennur út á miðnætti á
morgun, föstudaginn, 12. mars. Opn-
að var fyrir framtalsskil 1. mars s.l.
vegna tekna ársins 2020.
Í gær höfðu um um 120.000 ein-
staklingar skilað skattframtali (kt.)
sem svarar til u.þ.b. 38-39% af þeim
framtölum sem búast má við að skili
sér yfirhöfuð þetta árið. Þetta er síst
minna en á síðasta ári, segir Kristín
Gunnarsdóttir, sérfræðingur hjá
Skattinum. „Mikið álag er í kringum
alla þjónustu, í síma, tölvupósti og
símtalapöntunum en góður gangur í
málum,“ segir Kristín.
Þeir sem taka að sér framtalsskil
að atvinnu eins og t.d. löggiltir end-
urskoðendur og bókarar fá lengri
skilafrest fyrir sína viðskiptavini
samkvæmt sérstöku samkomulagi.
Á árinu 2020 voru framteljendur
313.338 talsins en eru að þessu sinni
liðlega 311 þúsund. Má það væntan-
lega rekja til minni umsvifa í at-
vinnulífinu í fyrra vegna heimsfar-
aldurs Covid-veirunnar.
Upplýsingar um t.d. launatekjur,
skuldir, fasteignir og aðrar eignir,
dagpeninga, hlutabréf, greiðslur og
styrki eru forskráðar á framtölin.
Fyrir allan þorra framteljenda eru
framtalsskilin því einföld að þessu
sinni. sisi@mbl.is
Mikið annríki er hjá Skattinum
Frestur til að skila skattframtölum
einstaklinga rennur út annað kvöld
Morgunblaðið/sisi
Skipulagsfulltrúinn í Reykjavík hef-
ur tekið neikvætt í ósk um að leggja
svokalla aparólu (zip-línu) frá Perl-
unni og niður í Öskjuhlíð. Slíkar ról-
ur er að finna víða um land og njóta
vinsælda.
Rekstraraðili Perlunnar áætlaði
að setja upp línu frá útsýnispallinum
á Perlunni og suður í átt að kirkju-
garði þar sem hægt væri að renna
sér á milli. Lengd línunnar var áætl-
uð 235-250 metrar og reiknað með
200 gestum á degi hverjum. Línan
yrði ekki notuð nema veður væri
þannig að það hefði ekki áhrif á hana
vegna t.d. vinds eða snjóa. Tvær lín-
ur yrðu settar upp og gert ráð fyrir
að tveir notendur geti rennt sér í
einu, þ.e. einn í hvorri línu.
Efri strúktúrinn yrði tengdur við
Perluna til að tryggja að hann skriði,
en sá neðri byggður ofan á tvo gáma
inni í skógarlundi. Gámarnir yrðu
hífðir á staðinn svo allt rask væri í
algjöru lágmarki. Umhverfisáhrif
yrðu lítil sem engin nema mögulega
að nokkur tré þyrfti að fella. Grafa
þyrfti fjórar holur og koma fyrir
steyptum stöplum til að tryggja að
gámar skriðu ekki.
Skipulagsfulltrúinn segir að meg-
instefna í skipulagi Öskjuhlíðar sé að
svæðið þjóni áfram hlutverki sínu
sem einn helsti útivistarskógurinn
innan þéttbýlissvæðis borgarinnar.
Uppbygging innan og í jaðri svæð-
isins skuli vera í lágmarki.
„Lagt er því til að heimila ekki
uppsetningu á zip-línu á borgarlandi
með tilheyrandi gámastæði með vís-
an til þess að það samræmist ekki
gildandi deiliskipulagi fyrir Öskju-
hlíðina, né er það vilji borgarinnar
að breyta skipulaginu til að koma
slíkri starfsemi inn á skipulag.“
sisi@mbl.is
Aparóla verður ekki
sett upp í Öskjuhlíð
Lengd línu frá
Perlunni var áætluð
235-250 metrar
Morgunblaðið/Golli
Vinsælar Aparólur hafa vakið
lukku, til dæmis þessi í Laugardal.
Baðinnréttingar
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
2
0
0
0
—
2
0
2
0
Tímabundin opnunartími
vegna Covid–19
Mán. – Föst. 10–17
Laugardaga 11–15