Morgunblaðið - 11.03.2021, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARS 2021
Sjáum um allar
merkingar
Höfðabakka 9, 110 Rvk | www.runehf.is
Gísli, sölu- og markaðsstjóri
vinnufatnaðar
Sími 766 5555 | gisli@run.is
ÖRYGGIS-
SKÓR
VANDAÐUR
VINNUFATNAÐUR
6424
6202
55505536
3307 3407
SAFE & SMART
monitor
SMÁRALIND
www.skornir.is
Leður-
strigaskór
Einstakur jafnvægisstuðningur sem tryggir
stöðugleika og öryggi við hvert skref.
Mjúkt leður, styrking á tá.
Stærðir: 24-32
Verð 10.995 - 11.995
DAGMÁL
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
„Útlitið er bjart.“ Með þessum orð-
um bregst Úlfar Steindórsson,
stjórnarformaður Icelandir Group,
við þegar hann er beðinn um að lýsa
stöðunni framundan hjá flugfélag-
inu. Úlfar er gestur Dagmála í dag
sem aðgengileg eru áskrifendum
Morgunblaðsins á mbl.is.
„Við finnum alveg að það er mikill
ferðavilji, og þá er ég ekki bara að
tala um að fólk vilji fljúga eitthvert
frá Íslandi eða bara til Íslands. Við
sjáum að fólk vill fara milli Evrópu
og Bandaríkjanna. Við sjáum upp-
lýsingar um það,“ segir Úlfar.
Félagið mjög sveigjanlegt
Hann segist hafa fulla trú á því að
þegar hjól ferðaþjónustunnar taki
að snúast á ný, muni þau snúast
hratt.
„Ég trúi því að þegar þetta gerist
þá muni það gerast mjög hratt því
það er einfaldlega allt tilbúið. Það
er allt klárt hjá okkur hjá Ice-
landair.“ Bendir hann á að það sé
mikill innbyggður sveigjanleiki hjá
félaginu. Í ViðskiptaMogganum í
gær var fjallað um endurkomu
MAX-vélanna í flota félagsins og
þar kom m.a. fram að sparneytni
þeirra og stærð gæfi fyrirtækinu
færi á að opna hratt á markaði þar
sem eftirspurn væri ekki með sterk-
asta móti. „Við erum með drjúgt
framboð enn úti þó svo að það hafi
ekki verið bókanir í samræmi við
það í nærtíma. En við finnum að
þegar það fer að líða lengra á, að
það eru hlutir að gerast þar.“ Hann
segir að framhaldið muni ráðast að
miklu leyti á bólusetningum en var-
ar við hugmyndum um að ekki megi
opna landamærin fyrr en búið verði
að bólusetja allar þjóðir og alls stað-
ar.
Ekki hægt að bólusetja alla
„Það verður aldrei hægt að bólu-
setja alla og við munum sennilega
aldrei losna alveg við þetta frekar
en flensu, en við verðum að gera ráð
fyrir að stjórnvöld, ekki bara á Ís-
landi, fari nú að horfa á þetta með
raunsærri hætti en hingað til,“ segir
Úlfar og hnykkir á með þeim orðum
að stjórnvöld verði á einhverjum
tímapunkti að horfa til þess að það
hrannast upp alvarleg vandamál
sökum þeirra aðgerða sem gripið
hefur verið til í þeirri viðleitni að
hefta útbreiðslu veirunnar.
„[…] sérstaklega í fátækari lönd-
um sem eru að verða illa úti vegna
þess að heimurinn er allur í hálf-
gerðu stoppi. Við verðum að fara að
sjá eitthvað gerast í þeim efnum.
Þetta snýr ekki bara að Íslandi
heldur er allur heimurinn undir.“
Segist sjá viðsnúning í kortunum
Stjórnarformaður Icelandair Group bjartsýnn á að ekki þurfi að draga á lánalínur frá íslenska ríkinu
Gerir ráð fyrir að ferðaþjónustan muni snúa vörn í sókn í sumar Stjórnvöld þurfi að taka af skarið
Morgunblaðið/Brynjólfur Löve Mogensson
Ferðaþjónusta Úlfar er bjartsýnn fyrir hönd íslenskrar ferðaþjónustu. Aðalfundur Icelandair fer fram á morgun.
Rekstur Bílastæðasjóðs Seltjarn-
arness er nú kominn í gang og sjá
stöðuverðir um eftirlit og sekta fyr-
ir stöðubrot í bænum.
Eins og komið hefur fram í Morg-
unblaðinu hefur staðið til um hríð
að sekta þá sem leggja ólöglega í
bænum. Sigrún Edda Jónsdóttir
bæjarfulltrúi sagði við blaðið vorið
2019 að fá úrræði væru í boði til að
sporna við þessu, ólíklegt sé að lög-
regla komi og sekti bíla sem lagt er
ólöglega. „Við viljum hafa þann
kost að geta sektað sjálf og getum
þá nýtt starfsmenn bæjarins til
þess. Það er helst í kringum
íþróttamiðstöðina sem þörf er á,“
sagði Sigrún Edda.
„Verkefni sjóðsins er að sjá til
þess að allir íbúar Seltjarnarnes-
bæjar komist leiðar sinnar á sem
öruggastan og besta máta, sama
hver ferðamátinn er hverju sinni og
án truflunar frá ökutækjum sem
lagt er ólöglega,“ sagði í kynningu
heimasíðu Seltjarnarnesbæjar.
Meðal þess sem sektað verður
fyrir er ef bílar eru stöðvaðir eða
þeim lagt á gangbraut eða innan
fimm metra frá henni, ef stöðvað
eða lagt er á gangstétt, göngustíg-
um, umferðareyjum, í stæði merktu
ökutækjum fatlaðs fólks, við vatns-
hana eða í vistgötu.
Stöðubrotsgjald á Seltjarnarnesi
er 10.000 krónur. Verði álagt gjald
ekki greitt innan 14 daga frá álagn-
ingu hækkar það um 50% og gjald
enn ógreitt að liðnum 28 dögum frá
álagningu hækkar það um 100%
miðað við upphaflega fjárhæð. Þá
fer hún til innheimtu. hdm@mbl.is
Sektað fyrir stöðubrot á Nesinu