Morgunblaðið - 11.03.2021, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARS 2021
SÓLGLERAUGU
frá Aspinal of London
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Fæst í
netverslun
belladonna.is
Flott föt fyrir flottar konur
Skipholti 29b • S. 551 4422
Skoðið
laxdal.is
Vorið er komið í Laxdal
TRAUST
Í 80 ÁR
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Stakir jakkar
Kr. 9.900.-
Str. S-XXL
Misritun varð í frétt sem birtist á
bls. 8 í blaðinu í fyrradag um flutn-
ing reksturs hjúkrunarheimila til
ríkis og einkafyrirtækja. Vigdísar-
holt hefur tekið við rekstri heimilis-
ins í Hornafirði, ekki Vestmanna-
eyjum.
LEIÐRÉTT
Rekstur í
Hornafirði
Skógarkolefnisreiknir hefur verið
opnaður á vef Skógræktarinnar á
slóðinni reiknivel.skogur.is. Þar er
hægt að reikna út fyrir fram hversu
mikið kolefni er líklegt að ræktaður
skógur muni binda næstu hálfa öld-
ina eftir því hvar er borið niður á
landinu.
Tækið er byggt á viðamiklum
gagnagrunni um skógræktarskilyrði
í öllum landshlutum. Ótal breytur
eru þar með sem snerta landgerð,
hæð yfir sjó, veðurfar og þar fram
eftir götunum. Hægt er að spá fyrir
um vöxt og kolefnisbindingu helstu
trjátegunda á hvaða svæði sem er á
láglendi Ís-
lands þar sem
skógrækt kem-
ur til greina.
Hægt er að
velja á milli
þriggja land-
gerða og fimm
trjátegunda
sem allar eiga það sammerkt að vera
helstu trjátegundir í skógrækt og
eiga margra áratuga ræktunarsögu
á Íslandi. Matið er byggt á þús-
undum skógmælinga sem gerðar
hafa verið á þessum trjátegundum á
síðustu 20 árum um allt land.
Binding, að frádreginni losun, er
áætluð frá gróðursetningu fram til
50 ára aldurs. Ekki er gert ráð fyrir
hefðbundnum grisjunum á þessum
tíma og fleiri þætti þarf að hafa í
huga, eins og greint er frá á skog-
ur.is.
Fyrir utan að geta valið trjáteg-
und og landgerð þarf notandinn
sums staðar á landinu að meta hvort
landið er að jafnaði skjólgott eða
ekki.
Skógarkolefnisreiknirinn er ein-
ungis ætlaður til að gefa vísbend-
ingar um vænta kolefnisbindingu
nýskógræktar. aij@mbl.is
Magn kolefnis reiknað út
Skólastjórar í Kópavogi telja
ákvörðun um að slá samræmdum
pófum á frest, vegna tæknilegra
örðugleika sem upp komu við fyr-
irlögn þeirra á mánudaginn, óvið-
unandi inngrip í skipulag skóla-
starfs og að hún sýni lítilsvirðingu
gagnvart því sem þar er verið að
vinna.
Þetta kemur fram í ályktun
fundar skólastjóra í Kópavogi sem
haldinn var á þriðjudag. Leggja
þeir til að frekari próftöku þetta
skólaárið verði aflýst meðan ekki
sé búið að vinna viðunandi prófa-
kerfi sem ráði við álagið og fyrir-
lögn af þessu tagi.
Samræmdum prófum fyrir 9.
bekk í stærðfræði og ensku, sem
áttu að fara fram í vikunni, hefur
verið frestað. Boðið verður upp á
að endurtaka íslenskuprófið sem
fram fór á mánudag í skugga
tækniörðugleika.
Prófin séu barn síns tíma
Salvör Nordal, umboðsmaður
barna, gagnrýndi fyrirlögn próf-
anna og sagði algjörlega óviðunandi
að ítrekað væru lögð fyrir sam-
ræmd próf í prófakerfi sem af
skipuleggjendum væri metið „al-
gjörlega ófullnægjandi“. Fundur
skólastjóranna tók undir gagnrýni
hennar.
„Fundurinn telur jafnframt tíma-
bært að fyrirlögn samræmdra
prófa í núverandi mynd sé tekin til
gagngerrar endurskoðunar. Þau
eru barn síns tíma og eiga í þessari
mynd ekkert erindi inn í skólastarf
undir hugmyndafræði skóla án að-
greiningar,“ segir í ályktun fund-
arins.
Frestunin
óviðunandi
inngrip
Héraðsdómur Reykjavíkur kvað í
gær upp úrskurð um að maður
skyldi sæta áframhaldandi gæslu-
varðhalds í viku, eða til miðviku-
dagsins 17. mars, vegna rann-
sóknar lögreglu á manndrápi í
Rauðagerði um miðjan febrúar.
Lögregla hafði krafist úrskurð-
arins á grundvelli rannsóknarhags-
muna. Fjórir eru í gæsluvarðhaldi
vegna málsins.
Steinbergur Finnbogason fær
ekki að vera verjandi Íslendings
sem er sakborningur í morðmálinu
í Rauðagerði, einnig samkvæmt
ákvörðun dómsins sem féll í gær-
morgun.
Fjórir menn enn
í gæsluvarðhaldi