Morgunblaðið - 11.03.2021, Page 18
18 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARS 2021
Landsmenn bíða eftir fregnum af eldgosi á Reykjanes-
skaga, sem vísindamenn telja æ líklegra á næstunni. Einn
þeirra sem fylgst hafa vel með fréttum, ljósmyndum og
spálíkönum af hræringunum er Guðbrandur Magnússon,
framkvæmdastjóri Landsprents, sem prentar Morgun-
blaðið. Hann hefur birt vatnslitamyndir á Facebook-síðu
sinni síðustu daga sem sýna eldgos í nágrenni við Keili og
Fagradalsfjall. Guðbrandur gaf blaðinu leyfi til að birta
nokkrar þeirra en tók fram að þetta væru hraðunnar
skissur. Guðbrandur hefur nokkur undanfarin ár málað
vatnslitamyndir í frístundum sínum og m.a. tekið þátt í
samsýningum og fengið myndir sýndar erlendis.
Prentsmiðjustjórinn málar í frístundum
Yfirvofandi eldgos í vatnslitum
Guðbrandur
Magnússon
Kvikugangur Eldar sem gætu komið upp milli Fagradalsfjalls og Keilis.
Sviðsmynd Fagradalsfjall gýs og Reykjanesskaginn í bakgrunni.
Eldgos Hér renna eldtungur niður eitt fjallið á Reykjanesskaganum.
Ein helsta heilusfarsáskorun21. aldarinnar er að minnkaalgengi lífsstílssjúkdóma, en
rekja má ríflega 80% dauðsfalla til
þessara sjúkdóma. Hreyfingarleysi
er ein orsök aukningar á lífsstíls-
sjúkdómum en almennt er talað um
að þörf sé á að hreyfa sig af meðal-
ákefð í 150 mínútur á viku til að
minnka líkur á að þróa með sér lífs-
stílssjúkdóma.
Hreyfing er meðferð
Hreyfing er ekki einungis mikil-
væg í forvarnarskyni heldur einnig
sem meðferð við hinum ýmsu sjúk-
dómum. Umfangsmikla vísindalega
þekkingu á jákvæðum áhrifum
hreyfingar á hina ýmsu sjúkdóma
má finna í fjölda rannsókna. Skipu-
lögð hreyfing er því öflugt meðferð-
arúrræði og mikilvægur hluti af
meðferð við mörgum algengum sjúk-
dómum svo sem langvarandi verkj-
um, kvíða, depurð, sykursýki, offitu,
kransæðasjúkdómum, hjartabilunar-
einkennum, afleiðingum lungna-
þembu, háum blóðþrýstingi, hækk-
uðum blóðfitum svo eitthvað sé
nefnt.
Hér á landi hefur verið innleitt og
þróað úrræði innan heilbrigðiskerf-
isins þar sem skrifað er upp á hreyf-
ingu sem meðferð, svonefndur hreyfi-
seðill og byggist það á sænska hreyfi-
seðilsmódelinu.
Ráðleggingar og hvatning
Telji læknar eða aðrir heilbrigðis-
starfsmenn að hreyfing ætti að vera
hluti af meðferð við þínum sjúkdómi
er þér vísað til hreyfistjóra sem er
sjúkraþjálfari með aðsetur á heilsu-
gæslunni þinni. Þú getur einnig haft
frumkvæði að því að óska eftir til-
vísun á hreyfiseðil. Ávísun á hreyfi-
seðil felur í sér einnar klukkustundar
viðtalstíma hjá sjúkraþjálfara þar
sem farið er í gegnum heilsufarssögu,
sjúkdómseinkenni og hreyfivenjur.
Sett eru upp markmið og hreyfiáætl-
un út frá þinni getu að teknu tilliti til
ákveðinna heilsufarsmælinga, sjúk-
dóma og heilsuvanda. Út frá þessu
færðu ráðleggingar um tegund hreyf-
ingar, magn, ákefð og tímalengd.
Þú skráir hreyfingu þína rafrænt
eða símleiðis og færð hvatningu,
stuðning og aðhald með skilaboðum í
gegnum Heilsuveru eða símtölum.
Hópar góður kostur
Á þriggja mánaða fresti fær læknir
/ heilbrigðisstarfsmaður greinargerð
frá hreyfistjóra þar sem mat er lagt á
framvindu og árangur meðferðar-
innar. Meðferð getur varað í eitt ár,
allt eftir óskum þínum og árangri og
er þér að kostnaðarlausu að undan-
skildu viðtalinu þar sem greitt er
komugjald.
Þjálfunin sjálf er margs konar og
getur farið fram víða. Nokkuð er um
að fólk stundi hreyfingu á eigin veg-
um en einnig geta ýmsir skipulagðir
hópar í nærumhverfi fólks verið góð-
ur kostur.
Ef þú ert að glíma við sjúkdóms-
ástand þar sem regluleg hreyfing
getur haft umtalsverð áhrif þá skaltu
ræða um möguleika hreyfiseðils fyrir
þig við heilbrigðisstarfsmann
Hreyfiseðill er lausn sem gæti hentað þér
Morgunblaðið/Ómar
Almenningshlaup Hreyfing er fólki nauðsynleg, en mikilvægt er að hver og einn finni þjálfun við sitt hæfi. Mælt er með að fólk hreyfi sig saman.
Heilsuráð
Auður Ólafsdóttir
verkefnisstjóri hreyfiseðils
hjá Þróunarmiðstöð íslenskrar
heilsugæslu
Unnið í samstarfi við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins.
Ferðafélag Íslands • Mörkinni 6 • www.fi.is • 568-2533
PÁSKAFERÐIR FÍ • skráðu þig inn og drífðu þig út!
Sjáumst á fjöllum