Morgunblaðið - 11.03.2021, Page 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARS 2021
Bolholti 4 • 105 Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is
s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a
Úrval aukahluta:
Hulstur, Hleðslutæki, Snúrur,
Minniskort, USB lyklar og fleira
VIÐ GERUM VIÐ
allar tegundir síma,
spjaldtölva, tölva og dróna
Bolholt 4
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Vegagerðin leitar eftir upplýs-
ingum um áhugasama bjóðendur
vegna fyrirhugaðs útboðs sam-
vinnuverkefnisins „Hringvegur um
Hornafjarðarfljót“, í samræmi við
lög nr. 80/2020 um samvinnuverk-
efni um samgönguframkvæmdir.
Er þetta fyrsta verkefnið af sex
sem boðið verður út samkvæmt
lögunum, sem samþykkt voru á Al-
þingi í júlí í fyrra.
Fram kemur í útboðslýsingu á
vef Vegagerðarinnar að um sé að
ræða nýja legu Hringvegarins um
Hornafjarðarfljót sem mun stytta
núverandi Hringveg um 12 kíló-
metra. Framkvæmdin felur í sér
lagningu 19 kílómetra langs þjóð-
vegar, byggingu fjögurra tvíbreiðra
brúa, lagningu nokkurra hlið-
arvega, samtals um fjögurra kíló-
metra langra, auk tveggja áning-
arstaða.
Framkvæmdir geti hafist í ár
Leitað er eftir aðilum, innan-
lands og utan, sem hafa áhuga á að
semja við Vegagerðina, í kjölfar út-
boðs, um framkvæmdina, fjár-
mögnun, rekstur og viðhald mann-
virkjanna til lengri tíma.
Verkhönnun er lokið og munu
hönnunargögn liggja fyrir við út-
boðið. Útboðið felur í sér byggingu
og fjármögnun mannvirkjanna auk
reksturs og viðhalds þeirra á 20-30
ára samningstíma. Gert er ráð fyrir
að ríkið leggi til allt að 50% fjár-
magnsins sem þarf til fram-
kvæmdanna. Stefnt er að því að
framkvæmdir geti hafist fyrir árs-
lok 2021.
Áhugasamir eru beðnir um að
skrá sig í rafræna útboðskerfinu
TendSign fyrir kl. 23:55 miðviku-
daginn 10. mars 2021.
Vegagerðin vekur athygli á því
að einungis er um að ræða beiðni
um upplýsingar. Skráning feli ekki
í sér skuldbindingu um þátttöku í
útboði á síðari stigum. Ákvörðun
um að skila ekki inn upplýsingum á
þessu stigi útiloki ekki þátttöku í
útboði þegar það verður auglýst.
Lög nr. 80/2020 tóku gildi 21. júlí
í fyrra. Samkvæmt þeim er Vega-
gerðinni heimilt að undangengnu
útboði að gera samning við einka-
aðila um samvinnuverkefni um eft-
irfarandi framkvæmdir: a. Hring-
vegur norðaustan Selfoss og brú
yfir Ölfusá, b. Hringvegur um
Hornafjarðarfljót, c. Axarvegur, d.
Tvöföldun Hvalfjarðarganga, e.
Hringvegur um Mýrdal og jarð-
göng í Reynisfjalli, f. Sundabraut.
Í 3. grein laganna segir að heim-
ilt sé að fjármagna samvinnuverk-
efni að hluta eða öllu leyti með
gjaldtöku af umferð um mannvirki
sem samvinnuverkefnið nær til.
Veggjöld geta í heild eða að hluta
staðið straum af byggingarkostn-
aði, viðhaldi, rekstri, þróun og eðli-
legum afrakstri af fjárfestingu
mannvirkis. Gjaldtaka vegna notk-
unar tiltekins mannvirkis skal ekki
hefjast fyrr en framkvæmd lýkur
og opnað er fyrir almenna umferð.
Gjaldtaka fyrir hvert mannvirki
skal ekki standa lengur en í 30 ár.
Í 6. grein laganna segir að heim-
ilt sé að ákveða að eignarhald
mannvirkjanna verði á samnings-
tímanum í höndum einkaaðila sem
annast framkvæmdirnar. Við lok
samningstímans skulu mannvirkin
ásamt öllu tilheyrandi verða eign
ríkisins án sérstaks endurgjalds.
Nýr Hringvegur um Hornafjörð
mun liggja á milli bæjanna Hólms
og Dynjanda. Vegamót verða við
núverandi Hringveg á móts við
Hólm, tengingar að Brunnhóli og
Einholti aðlagaðar nýjum vegi,
tengivegur verður meðfram Djúpá,
gerður verður varnargarður austan
Hornafjarðarfljóta, ný vegamót
verða við Hafnarveg og önnur
vegamót við núverandi Hringveg
austan Hafnarness. Jafnframt
verða útbúnir áningarstaðir fyrir
vegfarendur.
Fjórar brýr verða í fyrirhug-
uðum framkvæmdum; yfir Djúpá,
Hornafjarðarfljót, Austurfljót og
Bergá. Þannig fækkar einbreiðum
brúm á Hringvegi um þrjár.
Fyrsta samvinnuverkið boðið út
Vegagerðin hefur auglýst eftir áhugasömum bjóðendum í verkið „Hringvegur um Hornafjarðarfljót“
Fyrsta verkefnið af sex sem Alþingi samþykkti í fyrra Má fjármagna með gjaldtöku af umferð
Hornafjarðarfljót Nýr Hringvegur mun stytta núverandi veg um 12 kílómetra. Með tilkomu hans fækkar einbreiðum brúm á Hringveginum um þrjár.
Ný lega hringvegarins um Hornafjarðarfl jót
12 Nýtt vegstæði mun stytta
núverandi hringveg
um 12 kílómetra
4 Á vegkafl anum verða byggðar
fjórar tví breiðar brýr
Núverandi vegur
1
1
1
MÝRAR
NESJA-
HVERFI
Brú yfi r Horna-
fjarðarfl jót
Brú yfi r Hoffellsá
Brú yfi r Djúpá
Brú yfi r Bergá Höfn
Tölvuteikning/Vegagerðin
Nýlega hlutu Varðan – rannsókna-
stofnun vinnumarkaðarins og Fé-
lagsmálaskóli alþýðu fjögurra
milljóna króna styrk frá félags- og
barnamálaráðherra og dómsmála-
ráðherra til að vinna fræðslumynd-
bönd sem verða liður í baráttunni
gegn heimilisofbeldi, mansali og
áreitni. Styrkveitingin var afgreidd
á fundi að viðstöddum ráðherrum
og fulltrúum þeirra samtaka og
stofnana sem koma að verkefninu.
Myndböndin verða nýtt í fræðslu
Félagsmálaskólans til trún-
aðarmanna stéttarfélaganna á
vinnustöðum. Annars vegar verður
unnið myndband um eðli og afleið-
ingar heimilisofbeldis og þá með
áherslu á hlutverk samstarfsfólks í
að skilja og geta brugðist við
merkjum um heimilisofbeldi. Þá
verður unnið myndband um mansal
og verður það nýtt í trúnaðar-
mannafræðslu og til að efla þekk-
ingu vinnustaðaeftirlitsfulltrúa í að
greina mögulegt mansal og aðra
misnotkun.
Varða mun leiða vinnuna við efn-
istök myndbandanna í nánu sam-
ráði við Félagsmálaskólann, Jafn-
réttisstofu, Kvennaathvarfið,
Vinnueftirlitið og Neyðarlínuna.
Mikilvægt í baráttunni
„Í gegnum Félagsmálaskóla al-
þýðu stendur verkalýðshreyfingin
að fræðslu fyrir trúnaðarmenn sem
starfa inni á vinnustöðum. Þetta net
getur reynst mikilvægur hlekkur í
baráttunni gegn kynferðislegu og
kynbundnu ofbeldi og áreitni. Hvað
varðar heimilisofbeldi er mikilvægt
að samstarfsfólk geti greint merki
um ofbeldi og kunni að bregðast
rétt við,“ segir Kristín Heba Gísla-
dóttir, framkvæmdastjóri Vörðu.
Framleiða fræðslumyndir
um heimilisofbeldi og áreitni
Velferð Ráðherrar og fulltrúar samtaka og stofnana sem að verkefninu standa.