Morgunblaðið - 11.03.2021, Side 26

Morgunblaðið - 11.03.2021, Side 26
26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARS 2021 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Sveitarstjórn Reykhólahrepps hefur samþykkt að úthluta Flateyjarveit- um lóð undir slökkvistöð við Tröll- enda 7 í Flatey. Ingibjörg Birna Er- lingsdóttir sveitarstjóri segir að lóðin sé eingöngu ætluð fyrir hús vegna tækja til brunavarna og segist hún gera sér vonir um að það rísi í ár. Stærð hússins verður um 80 fer- metrar og kostnaður er áætlaður rúmlega 20 milljónir. Flateyjarveitur, sem eru í eigu húseigenda í Flatey, reisa húsið og koma upp búnaði, en sveitarfélagið mun leigja húsið, væntanlega til 15 ára. Ingibjörg segir að nú sé slökkvi- vagn með búnaði, eins og sjódælum og slöngum, fyrir hendi í Flatey. Með nýja húsinu komist aðstaða fyr- ir búnað undir þak. Til standi að kaupa dráttarvél og haugsugu eða tank, sem muni standa tilbúinn til að bæta við vatnsforðann, og einnig annan búnað sem verði til að auka öryggi þeirra sem dvelja í Flatey. Fyrsta skrefið Hún segir að þetta sé fyrsta skref í uppbyggingu slökkvibúnaðar, en til framtíðar megi auka búnað og dælu- getu. Flateyjarveitur hafi byggt upp vatnsveitu af myndarskap og hafi sveitarfélagið ákveðið að fara í sam- starf við veitufélagið um slökkvi- stöðina fyrir hönd eyjarskeggja. Brunahanar sem eru í eyjunni voru settir upp af Flateyjarveitum í tengslum við vatnslagnir að gömlu byggðinni í Flatey. Þeir eru nýtan- legir að því marki sem vatn í vatns- veitutanki veitunnar dugar til, en eins og staðan er þá er vatn flutt út í Flatey með Baldri. Í fundargerð stýrihóps um bygg- ingu slökkvistöðvar í Flatey frá 27. janúar segir svo m.a.: „Umræður áttu sér stað um mikilvægi þess að líta ekki á byggingu slökkvistöðvar sem endastöð eldvarna í Flatey heldur fyrsta skrefið í heildstæðri vinnu varðandi eldvarnir í eyjunni. Starfshópurinn leggur til að áfram- haldandi vinna, um þarfagreiningu á búnaði og næstu skref í eldvörnum, eigi sér stað í starfshópnum, með fulltrúa frá Reykhólahreppi, fulltrúa frá Flateyjarveitum og fulltrúa úr framfarafélagi Flateyjar ásamt slökkviliðsstjóra.“ Þyrping 40 gamalla timburhúsa Stöðin verður miðlæg, nánast á háeyjunni, á milli annars vegar gamla þorpsins og hins vegar Krá- kuvarar og Læknishússins, en á síð- arnefndu stöðunum er heils árs bú- seta. Ingibjörg segir að í Flatey séu merkar og viðkvæmar byggingar, flestar úr timbri, og sé mikilvægt að hafa búnað tiltækan komi eldur upp í eyjunni. Í greinargerð með aðalskipulagi Flateyjar sem gilti til 2018 segir svo meðal annars: „Þorpið býr yfir sér- stökum gæðum sem eru bundin um- hverfi húsanna, þorpinu sem heild og einstökum húsum, sem hvergi eru enn þá til staðar í sama mæli á landinu. Um er að ræða þyrpingu um 40 gamalla timburhúsa sem mynda fjölbreytt bæjarmynstur.“ Ný slökkvistöð eykur öryggi  Merkar timburbyggingar í Flatey Slökkvistöð Áformað er að nýja byggingin rísi á næstu mánuðum. Morgunblaðið/Eggert Fjölbreytt bæjarmynstur Mörg falleg hús eru í Flatey, frá vinstri: Bents- hús, Vinaminni, risið á Vertshúsi, Vorsalir, Vogur, Ásgarður og Sólheimar. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Vitafélagið – íslensk strandmenning fagnar tillögu til þingsályktunar um viðhald og varðveislu gamalla báta. Segir í umsögninni að augljóst sé að málaflokkurinn sé hornreka undir fornminjasjóði. Þingályktunartillag- an er nú til meðferðar á Alþingi og er þar m.a. fjallað um að settur verði á laggirnar sjóður sem hafi það hlut- verk að halda við og varðveita gömul skip og báta. Ekki hlotið mikið vægi Í umsögn Vitafélagsins kemur fram að þrátt fyrir að lög um menn- ingarminjar veiti fornminjasjóði heimild til að veita styrki til „minja sem njóta ekki friðunar á grundvelli aldurs en teljast hafa varðveislu- gildi, svo sem skipa, báta og annarra samgöngutækja“ hafi málaflokkur- inn ekki hlotið mikið vægi við úthlut- anir síðustu ára. Frá árinu 2013 hafi árlega aðeins eitt til þrjú verkefni er snúa að varðveislu skipa og báta hlotið styrki úr fornminjasjóði, og hafa þær fjárhæðir numið að jafnaði 4,4% af heildarúthlutun. „Samkvæmt opinberum gögnum hafa styrkir til bátaverndar numið alls um 200 milljónum króna síðustu tvo áratugina, til samanburðar má nefna að úhlutanir húsafriðunar- sjóðs nema um 300 milljónum króna á ári hverju. Á árunum 2000-2012 voru að meðaltali veittar 14,4 m.kr. til málaflokksins árlega, en á árun- um 2013-2019 var sú upphæð að jafnaði 3,1 m.kr. á ári. Framlög til bátaverndar hafa því rýrnað um 78% á undanförnum tuttugu árum,“ segir í umsögn Vitafélagsins. Vakningarherferð Rakið er að á síðustu árum hafi Vitafélagið – íslensk strandmenning, ásamt systurfélögum á Norðurlönd- um, unnið að því að fá handverkið við smíði súðbyrðings á lista hjá UNESCO yfir menningarerfðir mannkyns – listann yfir þýðingar- mikla starfshætti sem borist hafa frá kynslóð til kynslóðar, hefðir sem munu hverfa verði þeim ekki við- haldið. „Í desember nk. verður ljóst hvort umsóknin verður samþykkt á lista UNESCO. Hljóti hún sam- þykki, sem talið er nær víst, þá er vert að benda á þær skyldur sem því fylgja,“ segir í umsögninni. Að mati félagsins er ekki síður mikilvægt að viðhalda þekkingu á handverki við bátasmíði sem og aðra forna starfshætti. Bent er á að á Norðurlöndum sinna lýðskólar jafnt og iðnskólar kennslu í smíði súð- byrðings og í Noregi er einnig að finna nám í smíði og sögu súðbyrð- ings á háskólastigi. Bent er á í því samhengi að lýðskólinn á Flateyri væri upplagður til kennslu í smíði súðbyrðings sem og Síldarminja- safnið á Siglufirði. Þá kemur fram í umsögninni að nú á vormánuðum muni Vitafélagið – íslensk strandmenning hefja vakn- ingarherferð um smíði og hefðir súð- byrtra báta, framtíðarnýtingu þeirra og framtíðarsýn landans á strandmenningu. Norræn bátasmíði Unnið er að því að fá handverkið við smíði súðbyrðings á lista UNESCO yfir starfshætti sem borist hafa frá kynslóð til kynslóðar. Gamlir bátar hornrekur  Framlög til bátaverndar hafa rýrnað  Vitafélagið telur „nær víst“ að smíði súðbyrðings fari á lista hjá UNESCO Áskell Þórisson blaðamaður sýnir litríkar ljósmyndir í Gallerí Vest við Hagamel í Reykjavík. Sýningin verður opnuð í dag og stendur fram á laugardag. Hún er opin þessa daga frá klukkan 13 til 17. Mynd- irnar á sýningunni eru til sölu. Áskell tekur listrænar nær- myndir úr íslenskri náttúru og vinnur áfram í myndvinnsluforriti. Áskell segist oft fara með mynda- vélina af stað og taka margar ljós- myndir í ferðinni, stundum geti hann enga nýtt í framhaldsvinnslu en stundum gangi betur. Hann setj- ist síðan niður við tölvuna og geri tilraunir með hráefnið. Afurðin er prentuð á striga. Hægt er að fræðast nánar um myndirnar á www.askphoto.is. Ljósmyndir og litaflóð í Gallerí Vest Ljósmynd/Áskell Þórisson Litfegurð Nærmyndir úr náttúrunni eru hráefni í listsköpun Áskels Þórissonar. Laugavegi 178,105 Rvk. | Sími 551 3366 | www.misty.is BREYTT OPNUN: Virka daga 12-18, laugardaga kl.11-15 MATHILDA KiSS frá Haldari: 10.950,- Nærbuxur 4.990,-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.