Morgunblaðið - 11.03.2021, Page 30
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARS 2021
NÝTT FRÁ
Kartell
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is
LÝSTU UPP
SKAMMDEGIÐ
Toy Moschino
lampi Gold
Verð 45.900,-
Mix varð til í kringum 1960 og var
í fyrstu framleitt í Efnagerð Akur-
eyrar. Síðar ákváðu eigendur
efnagerðarinnar að einbeita sér að
gosdrykkjaframleiðslu og þá
breyttist nafn verksmiðjunnar í
Sana. Árið 1978 sameinuðust Sani-
tas og Sana. Þá var einnig farið
að framleiða Mix í verksmiðju
Sanitas við Köllunarklettsveg og
gosið kom inn á markað í Reykja-
vík. Eftir að Sanitas lagði upp
laupana keypti Ölgerðin Gosan,
sem var gosdrykkjahluti fyrir-
tækisins, árið 1992. Hefur Ölgerð-
in framleitt Mix síðan. Á þessum
tíma hefur útlit Mix tekið nokkr-
um breytingum. Um tíma voru
tvær ávaxtafígúrur áberandi í
kynningarefni gosdrykkjarins.
Þær kölluðust Kátur og Hress.
Sumarið 2008 setti Ölgerðin
systurdrykkinn Remix á markað.
Hann var appelsínugulur að lit en
þótti svipaður á bragðið. Remix
varð skammlíft.
Frá Efnagerð Akur-
eyrar til Ölgerðarinnar
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það er orðinn langur tími síðan þessi bók var
gefin út, yfir tíu ár. Við tókum þessu líklega
ekki nógu alvarlega í byrjun, en þessi gos-
drykkur er enn framleiddur, nú hjá Ölgerð-
inni, og okkur rann blóðið til skyldunnar,“
segir Valgerður Valdemarsdóttir.
Valgerður og systkini hennar, Þórhildur,
Hólmgeir og Baldvin, eru ósátt við hvernig
saga af tilurð hins vinsæla gosdrykkjar Mix
hefur verið afbökuð á seinni árum. Mix varð
til í gosdrykkjaverksmiðju föður þeirra en
hefur gjarnan verið eignað annarri verk-
smiðju. Telja þau að ástæðuna megi meðal
annars rekja til umfjöllunar og frásagnar sem
birtist í fimmta bindi Sögu Akureyrar bls.
160-161. „Við settum okkur í samband við
söguritara Sögu Akureyrar og sendum honum
greinargerð okkar um raunverulegan upp-
runa Mixins og í ljós kom að heimildamaður
hans hafði gefið honum upplýsingar sem ekki
voru byggðar á staðreyndum. Því miður birt-
ist þetta í síðasta bindi af Sögu Akureyrar og
því ekki um það að ræða að birta leiðréttingu í
næsta bindi. Söguritari hefur hins vegar boðið
okkur að frásögn okkar, um hinn raunveru-
lega uppruna Mixins, verði birt í tímaritinu
Súlum. Sem betur fer vita margir Akureyr-
ingar hver hin rétta útgáfa af sögunni er,“
segir Valgerður.
Þau systkin segja að hin ranga frásögn úr
Sögu Akureyrar, um uppruna Mixins, hafi síð-
an verið endurómuð í lítt breyttri mynd í
grein sem Dr. Gunni skrifaði í Fréttablaðið
árið 2010. Þar segir að Mixið hafi orðið til í
Efnagerðinni Flóru og Björgvin Júníusson
hafi þar náð að blanda góðan drykk sem hann
kallaði Skítamix. Það nafn hafi hins vegar þótt
ótækt og niðurstaðan hafi orðið að kalla
drykkinn einfaldlega Mix. „Hvort heimildir
fyrir þessari sögu eru fengnar úr sögu Ak-
ureyrar eða annars staðar frá vitum við ekki,
en þarna er eins og áður um hreinan skáld-
skap að ræða,“ segir Valgerður.
„Á Akureyri var á þeim tíma sem þarna er
rætt um starfrækt önnur og stærri gos-
drykkjaverksmiðja en Flóra. Sú verksmiðja
átti uppruna sinn að rekja til Siglufjarðar og
hét þá Efnagerð Siglufjarðar, stofnuð 1939,
þar sem framleiddir voru gosdrykkir og efna-
gerðarvörur. Verksmiðja þessi var síðan flutt
til Akureyrar árið 1945 og var þá nafni félags-
ins breytt í Efnagerð Akureyrar og síðar í
Sana, en það nafn hafði lengi verið notað á
framleiðsluvörur fyrirtækisins,“ segir í grein-
argerð sem systkinin hafa tekið saman. Þau
rekja að árið 1958 hafi faðir þeirra, Valdemar
Baldvinsson, og félagar hans, Jón M. Jónsson
og Skarphéðinn Ásgeirsson, fest kaup á verk-
smiðjunni. Faðir þeirra var sá eini af eigend-
unum sem vann við verksmiðjuna og var þar
framkvæmdastjóri að sögn systkinanna.
„Á Siglufirði var Valash uppistaðan í gos-
drykkjaframleiðslunni en Morgan Cream
Soda var einnig framleitt þar og ýmsar fleiri
tegundir. Á Akureyri bættust við nýjar teg-
undir svo sem Jolly Cola, sem var danskt að
uppruna. Þá var haldið áfram með Valash og
Morgan Cream Soda og svo komu fleiri teg-
undir í viðbót og þar á meðal var drykkur sem
nefndur var Mix.
Segja má að uppruni þess hafi verið nokk-
urs konar tilviljun en það atvikaðist þannig að
við framleiðslu á Valash var notað innflutt
appelsínuþykkni enda var sá drykkur danskur
að uppruna. Nú gerðist það eitt sinn að mis-
tök urðu í sendingu þannig að í stað appels-
ínuþykknis kom ananasþykkni. Þá voru góð
ráð dýr, hvað átti að gera við þetta ananas-
þykkni? Því björguðu Indriði Jakobsson, sem
var verkstjóri í framleiðslunni, og Þórhildur
Valdemarsdóttir sem þar starfaði einnig. Þau
tóku sig saman og blönduðu þessu ananas-
þykkni saman við annað ávaxtaþykkni og út-
koman varð blanda sem þau nefndu Mix.
Þetta þótti snjallt nafn og Mixið naut strax
vinsælda og seldist vel,“ segir í greinargerð
systkinanna.
Satt og logið um uppruna Mix
Systkini á Akureyri
leiðrétta frásögn af
tilurð gosdrykkjarins
Mix í Sögu Akureyrar
Morgunblaðið/Eggert
Mix Gosið er vinsælt og dósin er enn utan á höfuðstöðvum Ölgerðarinnar.
Í safni Þórs Jóhannssonar á Siglufirði er að finna mikið
af gömlum miðum af drykkjarflöskum. Útlit umbúða Mix
hefur greinilega tekið miklum breytingum frá upphafi.
Ljósmyndir/Hrólfur Baldursson
Mix í áranna rás