Morgunblaðið - 11.03.2021, Síða 38

Morgunblaðið - 11.03.2021, Síða 38
38 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARS 2021 HVÍTANES Merínó hálsklútur Kr. 4.990.- Vinir fá sérkjör Skráning á icewear.is MÁR tveggja laga regnjakki Kr. 18.990.- Þín útivist - þín ánægja VIÐEY Hanskar Kr. 3.300.- Embla Thermore® Ecodown® dúnjakki kr. 17.990.- ATLI softshell buxur Kr. 17.900.- HELLY HANSEN Bowstring kk skór Kr. 22.990.- HELLY HANSEN M Odin Minimalist Kr. 32.990.- BRIMNE meðalþykk göngusok Kr. 2.15 S ir kar 0.- SALEWA Firepad 16 BPi Kr. 9.990.- SALEWA MS Dropline GTX Kr. 29.990.- SNÆDÍS prjónað ennisband Kr. 2.990.- 11. mars 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 127.58 Sterlingspund 177.08 Kanadadalur 101.21 Dönsk króna 20.403 Norsk króna 15.047 Sænsk króna 14.969 Svissn. franki 137.06 Japanskt jen 1.1718 SDR 182.08 Evra 151.73 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 187.155 Hrávöruverð Gull 1702.85 ($/únsa) Ál 2152.5 ($/tonn) LME Hráolía 68.13 ($/fatið) Brent BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Þórhildur Ólöf Helgadóttir, forstjóri Íslandspósts, segir starfsfólk sitt hafa unnið þrekvirki við erfiðar aðstæður í fyrra. Tekjur hafi dregist saman í kór- ónuveirufaraldrinum og kostnaður fallið á Póstinn vegna sóttvarna. Alls 104 milljóna hagnaður varð af rekstri Póstsins í fyrra, að teknu tilliti til 509 milljóna króna framlags vegna alþjónustu samkvæmt úrskurði Póst- og fjarskiptastofnunar, en alþjónusta er samkvæmt lögum sú „lágmarks- póstþjónusta sem notendum póst- þjónustu skal standa til boða á jafn- ræðisgrundvelli“. Niðurstaðan var hagnaður Samkvæmt nýbirtum ársreikningi var tæplega 749 milljóna tap af sam- keppni innan alþjónustu árið 2019 en 519 milljóna króna hagnaður af sam- keppni utan alþjónustu. Eru þessar fjárhæðir tilgreindar í afkomu starfs- þátta en heildarniðurstaðan er sem áður segir 104 milljónir í hagnað. Þórhildur Ólöf segir trúnað ríkja um afkomu á samkeppni innan og ut- an alþjónustu. „Við gefum ekki upp af- komu einstakra vöruliða. Við tökum þetta alltaf saman í heild og erum ekki að taka það sérstaklega saman fyrir aðra en okkur til upplýsingar.“ Með því ríkir trúnaður um afkomu af innlendum og erlendum pakka- sendingum sem og af útburði bréfa. „Svo erum við einnig komin í sam- keppnisrekstur í vöruflokknum al- menn bréf þannig að við gefum ekki upp afkomu einstakra vöruþátta inn- an eða utan alþjónustu.“ Til upprifjunar var einkaréttur Ís- landspósts á bréfum upp að 50 grömmum afnuminn 1.1. 2020. Með því skiptist reksturinn í sam- keppni innan og utan alþjónustu. Vegna áðurnefnds trúnaðar um af- komu einstakra starfsþátta birtir fé- lagið ekki frekari upplýsingar. Með lögum 23/2019 var Póstinum heimilað að setja á sérstakt gjald vegna erlendra póstsendinga. Var svo lagt á 400 króna gjald fyrir sendingar innan Evrópu og 600 króna gjald fyrir sendingar utan Evrópu. Var markmiðið að mæta þannig raunkostnaði við sendingarnar. Spurð hvort erlendu sendingarnar skili nú hagnaði vísar hún til fyrr- nefnds trúnaðar um einstaka vöruliði. „Við erum stöðugt að aðlaga verð og finna leiðir til að einstaka vöruliðir beri sig. Vegna faraldursins var síð- asta ár ekki einfalt. Leiðirnar sem við þurftum að finna til að afgreiða pant- anir og sendingar til og frá Íslandi urðu ansi langar. Þannig að við þurft- um gjarnan að fara í gegnum óvenju- leg lönd en vatnið leitar alltaf eftir far- veginum. Árið í fyrra var alveg sérstaklega erfitt fyrir flutninga í heiminum. Flutningskostnaður var hár og það var erfitt að flytja vörur milli landa,“ segir Þórhildur Ólöf. Sem áður segir var afkoman af samkeppni innan alþjónustu neikvæð um 748 milljónir í fyrra. Skýrist ekki af faraldrinum Þórhildur Ólöf segir tapið ekki skrifast að miklu leyti á faraldurinn. „Faraldurinn stytti ekki leiðina á Grímsstaði á Fjöllum svo einhver staður sé nefndur, eða lækkaði launa- kostnað eða bifreiðakostnað. Það kostar að halda uppi kerfinu. Póst- inum ber samkvæmt lögum að fara með alla pakka og öll bréf heim til fólks undir 10 kg,“ segir Þórhildur Ólöf um kostnað af alþjónustunni. Sá kostnaður tengist 2. mgr. 17. gr. póstlaga sem segir að gjaldskrá fyrir alþjónustu skuli vera sú sama um allt land. Hafði sú málsgrein í för með sér að sama verð varð á pakkasendingum upp að 10 kg innan landsins frá 1.1. 2020 en áður voru fjögur gjaldsvæði. Í 3. mgr. sömu lagagreinar segir: „Gjaldskrár fyrir alþjónustu, þar á meðal gjaldskrár vegna erlendra póstsendinga, skulu taka mið af raun- kostnaði við að veita þjónustuna að viðbættum hæfilegum hagnaði. Gjald- skrár skulu vera auðskiljanlegar og gæta skal jafnræðis og tryggja gagnsæi.“ Spurð hvort því megi ætla að gjöldin séu ekki í samræmi við kostnaðinn við að veita þjónustuna, í ljósi taps af samkeppni innan alþjón- ustu, segir Þórhildur að blaðamaður verði að draga eigin ályktanir. „Því fylgir ákveðinn kostnaður að halda uppi kerfinu. Magnið hefur minnkað mikið á síðustu árum sem leiðir til tekjutaps, á sama tíma stækkar dreifikerfið með fleiri heim- ilum og fyrirtækjum og þar af leið- andi fleiri lúgum. Kostnaðurinn lækk- ar ekki heldur hækkar á hverja vitjun með kjarasamningsbundnum hækk- unum launa svo eitthvað sé nefnt en tekjur minnka. Okkur ber enn skylda til að fara með vörur innan alþjónustu heim til allra,“ segir Þórhildur Ólöf. Á sama tíma bendir hún á að magn pakka sé að aukast og að Pósturinn sé stöðugt að auka framboð á öðrum leiðum til að sækja pakka, til dæmis með póstboxum eða leita allra leiða til að hafa afhendinguna sem ódýrasta. Sem áður segir úrskurðaði Póst- og fjarskiptastofnun (ákvörðun 1/2021) að Íslandspóstur skyldi fá 509 millj. vegna alþjónustu árið 2020. Þar af 126 milljónir vegna „eitt land, eitt verð“. Hlutdeild ríkisins í loforði „Þetta er í raun hlutdeild ríkisins í því að bæta upp fyrir loforðið um eitt land, eitt verð. Og við báðum ekki um þessa klásúlu og benti Pósturinn strax á vandkvæði hennar,“ segir hún. Varðandi afkomu starfsþátta sé stuðst við LRAIC-líkan sem meðal annars styðst við verðleiðrétt reikn- ingsskil. „Það býr til aukið tap innan starfsþátta, sem er ekki raunverulegt tap í starfsemi okkar,“ segir Þórhild- ur Ólöf og tekur fram að þetta sé ekki einfalt mál fyrir leikmenn. Í sem stystu máli séu eignir verð- leiðréttar miðað við vísitölu og af- skriftir reiknaðar út frá verðleiðrétt- um eignum. Fyrir vikið verði afskriftirnar hærri en ella. „Þetta er því ekki reikningslegt tap heldur er beitt þekktri aðferð innan póstheims- ins að beiðni Póst- og fjarskiptastofn- unar. Afkoman af starfsþáttum er lakari sem nemur mismuninum af af- skriftunum sem við reiknum í okkar bókhaldi og því sem þarna er reiknað miðað við verðleiðrétt reikningsskil á eignir félagsins. Það munar heilmiklu. Ég er þó ekki að segja að það yrði ella hagnaður af alþjónustunni. Það mun- ar ekki svo miklu,“ segir Þórhildur Ólöf. Hún segir þessa aðferðafræði við útreikninga á alþjónustubyrði ekki íþyngjandi fyrir Póstinn. Við reikn- ingsskilin sé enda ekki stuðst við af- komu starfsþátta heldur hina alþjóð- legu reikningsskilastaðla IFRS. Krefst lagabreytinga „Fram undan er enn frekari hag- ræðing. Þær aðgerðir verða erfiðar og sumpart er um að ræða aðgerðir sem við getum ekki farið í nema það komi til aðstoð frá yfirvöldum. Eitt af því sem væri hægt að gera er að vera með póstkassavörður og stytta leiðina okkar heim til fólks. Við gerum það ekki sjálf. Við þyrftum ákveðnar laga- breytingar til þess. En það er alveg hægt ef það er vilji til þess á Alþingi,“ segir Þórhildur Ólöf og ítrekar að Pósturinn sé ekki að íhuga þetta skref. Þetta sé aðeins ein af þeim hug- myndum sem ræddar hafa verið. Þá sé það viðskiptavina að ákveða hvort þeir vilja senda bréf. Spurð hvort til greina komi að þessi þáttur þjónustunnar – útburður bréfa að 50 g – verði boðinn út, svo að þeir sem eru í fjölpósti, eða bera út dag- blöð, geti sinnt þessari þjónustu, segir hún yfirvalda að ákveða það. „Það er allt inni í myndinni. Við værum ekkert á verri stað ef þessi þjónusta væri boðin út og við gætum boðið í hana líka,“ segir hún. Afkoman sögð vera trúnaðarmál  Forstjóri Íslandspósts segir trúnað gilda um afkomu starfsþátta  Vísar til samkeppnisrekstrar  Síðasta ár hafi verið þungt í póstþjónustu vegna faraldursins  Bókhaldsaðferð ýkir afskriftirnar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Forstjóri Þórhildur Ólöf á aðalfundi Íslandspósts síðastliðinn föstudag. Bæði fjárhagslegur og umhverfis- legur ávinningur af starfsemi Nefco, Norræna umhverfisfjármögnunar- félagsins, fór fram úr væntingum árið 2020. Hagnaður jókst frá fyrra ári vegna aukinnar lánastarfsemi og hækkunar á virði eigna. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. Nefco var stofnað árið 1990 af nor- rænu löndunum fimm og er græni banki landanna, eins og segir í til- kynningunni. Hagnaður Nefco árið 2020 var 3,6 milljónir evra, sam- anborið við 1,4 milljónir árið 2019. Eigið fé Nefco í lok árs var 169,6 milljónir evra, og til viðbótar stýrir Nefco sjóðum fyrir aðra að andvirði 428,5 milljóna evra. Í tilkynningunni segir að Nefco fjármagni einungis verkefni sem hafa jákvæð umhverfis- og loftslagsáhrif. Stærstur hluti fjárfestinga Nefco tengist þannig endurnýjanlegri orku og bættri orkunýtni. Þá hefur Nefco tekið þátt í verkefnum sem miða að bættri nýtingu auðlinda og frekari þróun hringrásarhagkerfisins m.a. Nefco skilaði hagnaði  Einungis já- kvæð verkefni STUTT ● Einn af þeim níu einstaklingum sem tilkynnt höfðu um framboð til stjórn- ar Icelandair Group á aðalfundi félags- ins sem fram fer á morgun hefur dregið framboð sitt til baka. Það er raunar sá fram- bjóðandi sem síð- ast bættist í hópinn, Bandaríkjamað- urinn Marty St. George, margreyndur úr flugheiminum og núverandi fram- kvæmdastjóri hjá suðurameríska lág- gjaldaflugfélaginu LATAM. Einn dregur framboð til baka hjá Icelandair Marty St. George

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.