Morgunblaðið - 11.03.2021, Qupperneq 40
40 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARS 2021
HERRASKÓR Í MIKLU ÚRVALI
Delson
Verð: 14.995.-
St. 41- 47,5
Ultra Flex 2.0
Verð: 14.995.-
St. 41-47,5
Bellinger 2.0
Verð: 14.995.-
St. 41- 47,5
Bellinger 2.0
Verð: 14.995.-
St. 41- 47,5
Smáralind - Kringlan - Skór.is
withMemory
Foam
withMemory
Foam
withMemory
Foam
withMemory
Foam
SKECHERS
AFP
Rio de Janeiro Um það bil eitt ár er liðið frá því að kórónuveiran stakk sér fyrst niður í Brasilíu og hafa dauðsföll þar í landi aldrei verið fleiri.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Ný bresk rannsókn sem birt var í
gær bendir til þess að hið svonefnda
breska afbrigði kórónuveirunnar sé
um 64% banvænna en fyrri afbrigði
hennar. Í janúar höfðu bresk stjórn-
völd varað við því að nýja afbrigðið
væri allt að 40% líklegra til þess að
draga fólk til dauða, miðað við þær
rannsóknir sem þá lágu fyrir.
Rannsóknin sem birt var í gær var
framkvæmd af Exeter-háskóla, og
bar hún saman 55.000 pör af þátttak-
endum sem greindust jákvæðir við
skimun utan sjúkrahúsa milli októ-
ber 2020 og janúar síðastliðins. Voru
þátttakendur paraðir saman eftir
ýmsum þáttum eins og aldri, kyni og
kynþætti. Hækkaði dánartíðni
þeirra sem fengu breska afbrigðið úr
2,5 dauðsföllum á hver 1.000 tilfelli
upp í 4,1 dauðsfall á hver 1.000 til-
felli.
Þeir sérfræðingar sem AFP-
fréttastofan ræddi við voru á einu
máli um að niðurstöðurnar þýddu að
brýnt væri að bólusetja sem flesta
gegn kórónuveirunni. Þá sagði Mich-
ael Head, lýðheilsufræðingur við há-
skólann í Southampton, að niður-
stöðurnar sýndu hversu hættulegt
er að leyfa veirunni að dreifa sér.
„Því meira af kórónuveirunni sem er
til staðar, því meiri líkur eru á því að
nýtt afbrigði sem valdi áhyggjum
komi fram.“
Sprenging tilfella í Póllandi
Kórónuveiran heldur áfram að
valda usla í Evrópu, þar sem rúm-
lega 39 milljónir tilfella og 882 þús-
und dauðsföll hafa verið skráð frá
upphafi. Pfizer tilkynnti í gær að
ríkjum Evrópu myndi standa til boða
allt að fjórar milljónir skammta af
bóluefnum sínum á næstu tveimur
vikum til þess að senda á þau svæði
þar sem tilfellum er að fjölga sem
mest. Stjórnvöld í Póllandi greindu
frá því í gær að sólarhringinn á und-
an hefðu 17.260 ný tilfelli verið skráð
og 398 dauðsföll. Þetta er mesti fjöldi
nýrra tilfella sem sést hefur í landinu
á þessu ári, og skellti Wojciech
Andrusiewicz, talsmaður pólska heil-
brigðisráðuneytisins, skuldinni á
breska afbrigðið sem væri að dreifa
sér ört, ásamt því að Pólverjar væru
farnir að leyfa sér að slaka of mikið á
sóttvarnakröfum sínum.
Hyggjast Pólverjar setja á lagg-
irnar tímabundin úrræði svo hægt
verði að koma fyrir 1.500 sjúkrarúm-
um til viðbótar vítt og breitt um
landið. Pólland slapp tiltölulega vel
frá fyrstu faraldursbylgjunni síðasta
vor, en seinni bylgjan hefur hitt
landið illa fyrir og hafa nú rúmlega
1,8 milljónir Pólverja smitast af völd-
um veirunnar.
Líkt við tilraunastofu
Utan Evrópu er faraldurinn í
einna mestum uppgangi í Brasilíu,
en þar hafa nú komið upp rúmlega 11
milljónir tilfella, en um það bil eitt ár
er liðið frá fyrstu tilfellunum þar.
Um 70.000 ný tilfelli bættust við á
þriðjudaginn sem og 1.972 dauðsföll
af völdum kórónuveirunnar, og hafa
aldrei fleiri dáið á einum degi í Bras-
ilíu frá upphafi faraldursins.
Fiocruz, ein helsta heilbrigðis-
stofnun landsins, varaði við því í gær
að heilbrigðiskerfi landsins væri
komið að fótum fram vegna farald-
ursins, en um 80% af öllum gjör-
gæslurýmum í 25 af 27 stærstu borg-
um landsins eru upptekin.
Jesem Orellana, faraldsfræðingur
við Fiocruz, sagði við AFP-frétta-
stofuna að það besta sem væri hægt
að vonast eftir væri kraftaverk í
bólusetningum eða algjör breyting á
því hvernig stjórnvöld litu á farald-
urinn. „Í dag er Brasilía ógn við
mannkynið“ sagði Orellana og líkti
landinu við tilraunastofu þar sem
kannað væri hver áhrif þess væru að
leyfa veirunni að leika lausum hala,
en brasilíska afbrigði veirunnar þyk-
ir ekki síður smitandi en hið breska.
„Viðbrögð fáráðlings“
Luiz Inacio Lula da Silva, fyrrver-
andi forseti Brasilíu, gagnrýndi Jair
Bolsonaro, eftirmann sinn, harka-
lega í gær og sagði hann hafa brugð-
ist við faraldrinum eins og „fáráð-
lingur“, en Bolsonaro hefur látið í
ljósi efasemdir um gagnsemi bólu-
setningar og látið ráðleggingar sér-
fræðinga sem vind um eyru þjóta.
Hæstiréttur Brasilíu hreinsaði
Lulu af ákærum fyrir spillingu fyrr í
vikunni og veitti honum um leið
heimild til þess að sækjast aftur eftir
opinberu embætti í Brasilíu. Kosið
verður til forseta á næsta ári, og er
talinn ágætur möguleiki á því að
Lula og Bolsonaro muni þar etja
kappi.
Hvatti Lula samlanda sína til þess
að láta bólusetja sig og hlýða ekki
„fáránlegum ákvörðunum“ Bolson-
aros og heilbrigðisráðherra hans.
Sagði hinn 75 ára gamli Lula að
Brasilíumenn ættu betra skilið, en
sagðist ekki hafa hugleitt forseta-
framboð enn sem komið er.
Brýnt að bólusetja meira
Breska afbrigðið sagt um 64% banvænna en fyrri afbrigði Aldrei fleiri tilfelli á
einum degi í Póllandi Heilbrigðiskerfi Brasilíu nánast komið að fótum fram
Thomas Mertens, yfirmaður
STIKO, bólusetningarráðs Þýska-
lands, lýsti í gær yfir stuðningi sín-
um við Spútník 5-bóluefnið, sem
þróað var í Rússlandi. „Þetta er
gott bóluefni, og það lítur út fyrir
að það verði samþykkt innan ESB
einhvern tímann,“ sagði Mertens
við dagblaðið Rheinische Post, og
bætti við að rússneskir vísinda-
menn væru mjög reyndir í fram-
leiðslu bóluefna.
Evrópska lyfjastofnunin er nú
með til skoðunar hvort leyfa eigi
Spútník-efnið, en hún hefur þegar
veitt markaðsleyfi fyrir þremur
efnum, öllum framleiddum á Vest-
urlöndum. Ungverjar, Tékkar og
Slóvakar hafa hins vegar þegar
veitt leyfi fyrir Spútník-efninu hjá
sér. Embættismenn í Brussel segja
að biðji fjögur aðildarríki um slíkt
gæti sambandið hafið viðræður við
Rússa um kaup á efninu.
Hrósar Spútník 5-
bóluefninu í hástert
Sprauta Spútník-bóluefnið fær lof.
ÞÝSKALAND
AFP
Kínversk stjórn-
völd sökuðu í
gær aðmírálinn
Philip Davidson
um að „ýkja“
ógnina sem staf-
aði af Kínverjum
gagnvart Taívan,
en Davidson bar
fyrir öldunga-
deild Banda-
ríkjaþings í fyrri-
nótt að Kína kynni að hefja innrás
innan næstu sex ára.
Sögðu Kínverjar orð aðmírálsins
eingöngu vera ætluð til þess að
auka útgjöld Bandaríkjamanna til
varnarmála og réttlæta hernaðar-
leg umsvif þeirra í Asíu.
Davidson, sem er yfirmaður alls
herafla Bandaríkjanna í Asíu og á
Kyrrahafi, sagði í vitnisburði sínum
fyrir öldungadeildinni að Kínverjar
stefndu leynt og ljóst að því að taka
fram úr hernaðargetu Bandaríkj-
anna fyrir árið 2050.
Varaði Davidson við því að her-
taka Taívan, sem Kínverjar telja
hluta af Kína, væri á óskalista Kín-
verja. Þá væri herstöð Bandaríkja-
manna á Gvam einnig í hættu, og
vísaði Davidson í þjálfunarmynd-
bönd kínverska hersins, sem sýndu
eldflaugaárásir á svipaðar stöðvar.
Segja innrásar-
hættu vera ýkjur
KÍNA
Philip
Davidson