Morgunblaðið - 11.03.2021, Side 44

Morgunblaðið - 11.03.2021, Side 44
44 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARS 2021 Móðurmálið er grundvöllur skilnings sem við yfirfærum, er við lærum önnur tungumál. Til að ná góðri færni í öðrum tungumálum er mik- ilvægt að ná tökum á sínu eigin móðurmáli. Þetta er staðreynd sem á við hér á landi og alls staðar. Lestur á íslenskum texta er einn af hornsteinum grunnskólamenntunar á Íslandi, heimalestur á hverjum degi. Þjálf- un og iðkun skipta sköpum í þeim efnum. Breytingar hafa orðið á grunn- skólalögunum í gegnum árin, þar sem hugtakið kristnifræði hefur fengið að víkja fyrir hugtakinu trúarbragðafræði. Það er fagn- aðarefni að trúarbragðafræðunum skuli gert hátt undir höfði, en þarf það að vera á kostnað kristnifræð- innar? Á sama máta og íslenska tungan er grundvallandi í kennslu og miðlun í grunnskólum landsins, ætti hinn kristni menningararfur og iðkun að vera grundvallandi fyrir kennslu og skilning okkar á öðrum trúarbrögðum, vegna áhrifa hennar í sögu og menningu lands- ins. Góður skilningur á þeim kristna jarðvegi sem samfélag okkar byggist á, skiptir sköpum fyrir skilning okkar á öðrum trúar- brögðum og merkingu þeirra fyrir mann og heim. Slíkt er grundvall- andi fyrir aukið menningarlæsi. Ástæða er til að benda á skýrsl- una Toledo Guiding Principles on Teaching About Religions and Be- liefs in Public Schools, sem hefur að geyma ítarlegar leiðbeiningar um kennslu um trúar- brögð og lífsviðhorf í opinberum skólum (ODHIR, 2007, bls. 13–14). Þar er lögð áhersla á mikilvægi þess að nemendur öðlist þekkingu og skilning á öðrum trúarhefðum og lífs- viðhorfum en þeirra eigin, en um leið er þar lögð áhersla á að til þess þurfi jafnframt að dýpka skilning nemenda á þeirra eigin trúarhefðum. Þekking á eigin og annarra trúarhefðum hjálpar nem- endum að forðast staðalímyndir. Að málið sé nú í deiglunni á vettvangi Alþingis er ekki vitn- isburður um einhvers konar kröfu um afturhvarf til fortíðar, heldur þvert á móti vitnisburður um þá nauðsyn að auðmjúk nálgun og þekking á okkar sameiginlegu kristnu rótum sé enn þá mikilvæg- ari nú en nokkurn tímann fyrr. Íslenska tungan og okkar kristnu rætur Eftir Agnesi M. Sigurðardóttur » Góður skilningur á þeim kristna jarð- vegi sem samfélag okk- ar byggist á, skiptir sköpum fyrir skilning okkar á öðrum trúar- brögðum og merkingu þeirra fyrir mann og heim. Slíkt er grundvall- andi fyrir aukið menn- ingarlæsi. Agnes M. Sigurðardóttir Höfundur er biskups Íslands. Fæst í öllum helstu apótekum og Eyesland gleraugnaverslunum. Ertu við tölvuna allan daginn? Hyabak® augndropar er ný aðferð við meðhöndlun augnþurrks. Til þess að koma jafnvægi á tárafilmuna er notast við hýalúronsýru sem smyr yfirborð hornhimnunnar og gefur henni raka og aktínókínól sem vinnur gegn útfjólubláum geislum Nýtt Undanfarnar vikur hafa verið helgaðar for- mannsframboði mínu hjá VR. Þetta hefur verið skemmtileg barátta með mörgum gefandi sam- tölum við félagsmenn VR um land allt um það sem vel er gert hjá okkar öfl- uga félagi og svo einnig það sem betur má fara. Kann ég öllum bestu þakkir fyrir frábærar viðtökur og stuðningsmönnum fyrir frábært framlag. Viljum eitt öflugt og stórt félag VR er stærsta og öflugasta stétt- arfélag landsins. Þennan styrk sinn byggir félagið á mikilli breidd í laun- um og menntun félagsmanna. Fyrir vinnumarkaðinn getur skipt miklu að hafa stórt félag á borð við VR til að mynda brynvörn þegar á þarf að halda í hagsmunabaráttu launþega. Þá er ekki síður mikilvægt að hafa öflugt og stórt félag til að leiða mik- ilvægar nýjungar inn á vinnumark- aðnum; nokkuð sem getur reynst flókið verk ef vinnumarkaðurinn ein- kennist af mörgum smærri félögum. Virk starfsendurhæfingarsjóður er eitt af mörgum dæmum þess. VR fyrir alla VR-félaga Það sem þó mestu skiptir í þessu sambandi er geta þessa öfluga félags til að þjóna félagsmönnum sínum. Hagsmunabarátta og þjónusta fé- lagsins þarf jafnframt að ná til allra félagsmanna. Margt bendir til að vaxandi misbrestur sé á því, með þeim afleiðingum að vaxandi fjöldi hefur verið að yfirgefa VR, enda hef- ur þeim möguleikum sem félagsmenn hafa á annarri félagsaðild farið fjölg- andi á síðustu árum. Félagsmenn VR eru eftirsóttir. Sóknarfæri til að gera betur Þótt undarlegt megi virðast hefur VR mörg sóknarfæri til að gera bet- ur, ekki aðeins í þjónustu við fé- lagsmenn heldur einnig í kjarabar- áttunni. Staðreyndin er sú, að við höfum verið að gefa eftir á ýmsum mikilvægum sviðum á ýmsum ár- um. Það fer því að verða brýnt að félagið fari að standa betur í lappirnar fyrir fé- lagsmenn, kjör þeirra og réttindi, en verið hefur. Meiri kraft í kjara- málin og þjónustu fyrir félagsmenn Á meðal þess sem gera má betur má nefna sjúkrasjóðinn, sem kominn er úr níu mánuðum í sjö; erfið staða fyrir félagsmenn sem eru að glíma við stór áföll í lífi þeirra. Varasjóð- urinn nýtist félagsmönnum misvel og mörgum lítið sem ekkert og sömu sögu er að segja um orlofsmálin. Hér má nefna að fjölmargir félagsmenn segjast hafa gefið upp á bátinn að fá yfir höfuð þjónustu. Í kjaramálum má svo ekki síður gera betur. Síðustu kjarasamningar skildu lægri milli- tekjuhópa VR eftir, en í samanburði við kaupmáttarþróun lægstu launa hafa þessir hópar tapað hlutfallslega mestum kaupmætti. Stórir milli- tekjuhópar hafa enn fremur verið skildir eftir í lausu lofti, samfara nið- urlægingu markaðslaunakerfisins á undanförnum árum. Framtíðin er núna Framtíðarverkefnin eru ekki síður mörg og brýn. Fjórðu iðnbyltingunni fylgja flóknar áskoranir sem við verð- um að greiða úr með það fyrir augum að við högnumst sem samfélag á þeim víðfeðmu breytingum sem hún ryður braut. En helstu áskoranir nánustu framtíðar verða eftirmál Co- vid-kreppunnar og þar mun reyna á samstöðu launafólks og getu til að koma dugandi lausnum á fót fyrir þá hópa sem standa nú höllum fæti. Kosningum í VR um formann og til stjórnar lýkur á hádegi næsta föstu- dag, þann 12. mars. Í formannskjör- inu eru tveir skýrir valkostir í boði og langar mig að hvetja alla félagsmenn til að taka þátt. Stéttarfélagið þitt á að vinna fyrir þig Eftir Helgu Guðrúnu Jónasdóttur »Kosningum í VR um formann og til stjórnar lýkur á hádegi, á morgun, föstudag, þann 12. mars. Helga Guðrún Jónasdóttir Höfundur er stjórnmála- og fjölmiðla- fræðingur sem býður sig fram sem formann VR. hgjonasdottir@gmail.com Undanfarin ár höfum við orðið vitni að um- talsverðum breytingum á vinnumarkaði vegna tæknibreytinga. Þær hafa birst okkur með ýmsu móti, í breyttri og bættri þjónustu sem og ýmiss konar nýjungum sem hafa búið til nýjar vörur og markaði. Ábatinn af þessari þró- un er mikill fyrir allt samfélagið og það skiptir miklu að stjórnvöld styðji vel við og tryggi að Ísland verði ekki eftirbátur ann- arra landa á þessu sviði. En þessari þróun fylgja áskor- anir sem við verðum að svara, hvert og eitt og sem samfélag. Með því að tækni tekur yfir störf sem áður voru unnin af fólki þá er hætt við því að fjölgi mjög hratt í þeim hópi sem missir störf og lendir ut- angátta í þessum miklu breyt- ingum. Vissulega má ætla að þegar til lengri tíma er litið muni mynd- ast ný störf og þetta jafni sig út þannig að allir hafi eitthvað að gera. En engum blöðum er um það að fletta að til skemmri tíma mun þessi þróun geta leitt af sér veruleg vandamál fyrir fjölda fólks. Við sjáum þá miklu fækkun starfa sem er að eiga sér stað í jafn ólíkum atvinnugreinum og fjár- málaþjónustu, verslun og sjávar- útvegi. Þessi þróun er án efa til góðs fyrir samfélagið, þegar á heildina er litið, en þeir sem tapa störfunum sínum geta staðið frammi fyrir miklum erfiðleikum, menntun þeirra og reynsla kann að vera sérhæfð og erfitt að finna störf við hæfi. Við þessu þurfum við að bregð- ast. Á vegum ríkisins hefur mikið starf verið unnið að undanförnu til að greina þessar áskoranir og af- leiðingar þeirra. Fram undan er vinna við að breyta lögum og reglum þannig að Ísland nái að nýta sér sem best tækniframfar- irnar. En það er ekki nóg að ríkið vinni að þessum málum, mjög mik- ilvægt er að verkalýðshreyfingin sinni þessum málum af kostgæfni. Verkalýðshreyfingin verður að setja mikinn kraft í að greina aðstæður á íslenskum vinnu- markaði með hliðsjón af þessari þróun. Kortleggja þarf eins og hægt er þörf fyrir menntun og færni á vinnumarkaði fram- tíðarinnar og byggja þarf enn betur en nú er gert undir alla endurmenntun í land- inu. Jafnframt þarf verkalýðshreyfingin að efla samstarf sitt við stjórnvöld í þessum efnum þannig að þróun laga og reglna á íslenskum vinnu- markaði geri okkur kleift að nýta sem best þau miklu tækifæri sem felast í tæknibreytingum sem kennd eru við fjórðu iðnbyltinguna. Tækifærin er sannarlega til stað- ar, tæknin opnar á gríðarleg tæki- færi sem leitt geta til mikils lífs- kjarabata. Það skiptir miklu máli að það verði góð sátt í samfélaginu um hvernig sá bati skiptist og það gæti haft verulega vond áhrif ef einungis fámennur hópur fær stór- an hluta ábatans í sinn hlut á með- an stór hópur stæði í raun verr en áður. Þess vegna hef ég ákveðið að gefa kost á mér í framboð til stjórnar VR. Áfram skiptir máli að berjast fyrir bættum kjörum fé- lagsmanna VR en við bætist nú það mikla verkefni sem ég hef rætt hér. Nútímaverkalýðsbarátta er víð- feðmari en áður, tekur til fleiri þátta og um leið eykst vægi henn- ar. Ég vil með þessari grein hvetja alla félagsmenn í VR til að taka þátt í stjórnarkjörinu og láta sig þar með varða með beinum hætti hverjar áherslur félagsins okkar verða á næstu árum. Nýjar áskoranir Eftir Sigríði Hallgrímsdóttur Sigríður Hallgrímsdóttir »Nútímaverkalýðs- barátta er víðfeðm- ari en áður, tekur til fleiri þátta og um leið eykst vægi hennar. Höfundur er í framboði til stjórnar VR. sirryhal@gmail.com Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.