Morgunblaðið - 11.03.2021, Side 48
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARS 2021
Góður ferðafélagi!
AirMini kæfisvefnsvélin
Sú allra minnsta og hljóðlátasta
á markaðnum í dag.
Trönuhrauni 8, Hafnarfirði, stod.is
Auðvelt að taka með í:
Bústaðinn • Veiðina • Golfferðina • Fríið
Ferðalög á
Páll Guðmundsson
palli@fi.is
Rannsóknir sýna að hreyfing hef-
ur mikil og góð áhrif á líkamlega og
andlega heilsu. Flestöll finnum við
hvað það gerir okkur gott að fara út
og hreyfa okkur. Það er mann-
eskjum eðlislægt að vera úti og njóta
útivistar, anda að sér fersku lofti.
Með reglulegri útivist bætum við lík-
amlegt form og aukum andlega vel-
líðan. Sýnt hefur verið fram á að fé-
lagslegur stuðningur er mjög
mikilvægur. Hringja í vin, vera í
hópi og fá stuðning frá öðrum getur
gert gæfumuninn fyrir suma til að
fara út og hreyfa sig.
Í Ferðafélagi barnanna, sem er
deild innan Ferðafélags Íslands,
settu börnin sjálf sér reglur þegar
félagið var stofnað fyrir rúmum 10
árum. Þær reglur eru afar góðar og
geta svo sannarlega átt við útivist og
hreyfingu fullorðinna.
+ Allir geta farið í ferðalag
+ Við viljum gjarnan hafa vin okkar
með
+ Við viljum taka þátt í að skipu-
leggja ferðina
+ Okkur langar að ganga á undan og
ákveða hraðann
+ Við viljum hafa tíma til þess að
leika og upplifa spennandi hluti
+ Við viljum hafa tíma til að tala um
það sem fyrir augu ber
+ Við viljum fá eitthvað gott þegar
takmarkinu er náð
+ Við viljum hafa það notalegt á
kvöldin þegar við erum að gista
+ Við viljum ekki vera köld, blaut
eða hrædd.
Ásamt jákvæðum áhrifum á lík-
amlegt from fylgir því mikil andleg
vellíðan að vera úti og njóta útsýnis
og útiverunnar. Núna þegar vorið
er fram undan gleður líka margt
nýtt augað á hverjum degi. Plöntur
stinga upp kolli og farfuglarnir
koma til landsins og það örvar og
gleður sálartetrið. Ekki síst við
þær aðstæður sem nú hafa verið í
samfélaginu sl. ár er mikilvægt að
leita eftir stuðningi og styðja um
leið aðra. Það er mikilvægt að
muna að gott líkamlegt form og
andleg líðan er mikilvæg til að
komast í gegnum þá erfiðleika sem
tengjast Covid-19. Hreyfing og úti-
vist hefur afar jákvæð áhrif á and-
lega líðan okkar.
Fjölbreytileiki útivistar
Fjölbreytileiki útivistar og af-
þreyingar tengdri hreyfingu úti í
náttúrunni hefur líklega aldrei verið
meiri. Fólk hjólar, gengur, hleypur,
skíðar, siglir, ríður út og þannig
mætti lengi telja. Öll hreyfing er af
hinu góða.
Okkur líður vel ef við hreyfum
okkur á hverjum degi. Það er ekki
aðeins form okkar sem verður betra
– beinabyggingin styrkist og liðirnir
mýkjast, vöðvakrafturinn í fótunum
eykst, jafnvægið batnar og hættan á
að detta og fótbrotna minnkar.
Flestir hafa tekið eftir því, að með
því að stunda líkamsrækt, jafnvel á
hóflegum hraða, örvast blóðrásin í
líkamanum; Þessi líkamlega
áreynsla losar svokölluð endorfin
sem gera það að verkum að við slök-
um á og finnum til vellíðunar.
Nú er kjörinn tími þegar vorið er
fram undan til að reima á sig skóna
og fara út og hreyfa sig.
Allir út að hreyfa sig
Rannsóknir sýna að hreyfing hefur mikil og góð áhrif á líkamlega og andlega heilsu. Flestöll finnum við hvað það gerir okkur
gott að fara út og hreyfa okkur. Það er manneskjum eðlislægt að vera úti og njóta útivistar, anda að sér fersku lofti. Með reglu-
legri útivist bætum við líkamlegt form og aukum andlega vellíðan. Sýnt hefur verið fram á að félagslegur stuðningur er mjög
mikilvægur. Hringja í vin, vera í hópi og fá stuðning frá öðrum getur gert gæfumuninn fyrir suma til að fara út og hreyfa sig.
Gleði Gott er að gefa sér tíma til að njóta og leika.
Útivist Fleiri og fleiri halda til fjalla og
upplifa bæði fegurð landsins og innri frið.
Ljósmyndir/Páll Guðmundsson