Morgunblaðið - 11.03.2021, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 11.03.2021, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARS 2021 Góður ferðafélagi! AirMini kæfisvefnsvélin Sú allra minnsta og hljóðlátasta á markaðnum í dag. Trönuhrauni 8, Hafnarfirði, stod.is Auðvelt að taka með í: Bústaðinn • Veiðina • Golfferðina • Fríið Ferðalög á Páll Guðmundsson palli@fi.is Rannsóknir sýna að hreyfing hef- ur mikil og góð áhrif á líkamlega og andlega heilsu. Flestöll finnum við hvað það gerir okkur gott að fara út og hreyfa okkur. Það er mann- eskjum eðlislægt að vera úti og njóta útivistar, anda að sér fersku lofti. Með reglulegri útivist bætum við lík- amlegt form og aukum andlega vel- líðan. Sýnt hefur verið fram á að fé- lagslegur stuðningur er mjög mikilvægur. Hringja í vin, vera í hópi og fá stuðning frá öðrum getur gert gæfumuninn fyrir suma til að fara út og hreyfa sig. Í Ferðafélagi barnanna, sem er deild innan Ferðafélags Íslands, settu börnin sjálf sér reglur þegar félagið var stofnað fyrir rúmum 10 árum. Þær reglur eru afar góðar og geta svo sannarlega átt við útivist og hreyfingu fullorðinna. + Allir geta farið í ferðalag + Við viljum gjarnan hafa vin okkar með + Við viljum taka þátt í að skipu- leggja ferðina + Okkur langar að ganga á undan og ákveða hraðann + Við viljum hafa tíma til þess að leika og upplifa spennandi hluti + Við viljum hafa tíma til að tala um það sem fyrir augu ber + Við viljum fá eitthvað gott þegar takmarkinu er náð + Við viljum hafa það notalegt á kvöldin þegar við erum að gista + Við viljum ekki vera köld, blaut eða hrædd. Ásamt jákvæðum áhrifum á lík- amlegt from fylgir því mikil andleg vellíðan að vera úti og njóta útsýnis og útiverunnar. Núna þegar vorið er fram undan gleður líka margt nýtt augað á hverjum degi. Plöntur stinga upp kolli og farfuglarnir koma til landsins og það örvar og gleður sálartetrið. Ekki síst við þær aðstæður sem nú hafa verið í samfélaginu sl. ár er mikilvægt að leita eftir stuðningi og styðja um leið aðra. Það er mikilvægt að muna að gott líkamlegt form og andleg líðan er mikilvæg til að komast í gegnum þá erfiðleika sem tengjast Covid-19. Hreyfing og úti- vist hefur afar jákvæð áhrif á and- lega líðan okkar. Fjölbreytileiki útivistar Fjölbreytileiki útivistar og af- þreyingar tengdri hreyfingu úti í náttúrunni hefur líklega aldrei verið meiri. Fólk hjólar, gengur, hleypur, skíðar, siglir, ríður út og þannig mætti lengi telja. Öll hreyfing er af hinu góða. Okkur líður vel ef við hreyfum okkur á hverjum degi. Það er ekki aðeins form okkar sem verður betra – beinabyggingin styrkist og liðirnir mýkjast, vöðvakrafturinn í fótunum eykst, jafnvægið batnar og hættan á að detta og fótbrotna minnkar. Flestir hafa tekið eftir því, að með því að stunda líkamsrækt, jafnvel á hóflegum hraða, örvast blóðrásin í líkamanum; Þessi líkamlega áreynsla losar svokölluð endorfin sem gera það að verkum að við slök- um á og finnum til vellíðunar. Nú er kjörinn tími þegar vorið er fram undan til að reima á sig skóna og fara út og hreyfa sig. Allir út að hreyfa sig Rannsóknir sýna að hreyfing hefur mikil og góð áhrif á líkamlega og andlega heilsu. Flestöll finnum við hvað það gerir okkur gott að fara út og hreyfa okkur. Það er manneskjum eðlislægt að vera úti og njóta útivistar, anda að sér fersku lofti. Með reglu- legri útivist bætum við líkamlegt form og aukum andlega vellíðan. Sýnt hefur verið fram á að félagslegur stuðningur er mjög mikilvægur. Hringja í vin, vera í hópi og fá stuðning frá öðrum getur gert gæfumuninn fyrir suma til að fara út og hreyfa sig. Gleði Gott er að gefa sér tíma til að njóta og leika. Útivist Fleiri og fleiri halda til fjalla og upplifa bæði fegurð landsins og innri frið. Ljósmyndir/Páll Guðmundsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.