Morgunblaðið - 11.03.2021, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARS 2021
Full búð af nýjum vörum
Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355 • Vefverslun selena.is
Vefverslunselena.is
Hlaðvörp hafa rokið upp í vin-
sældum undanfarið og mörgum
þykir gott að geta hlustað á góða
hlaðvarpsþætti á meðan þeir
taka til, keyra og jafnvel áður en
þeir fara að sofa.
Hlaðvarpsheimurinn er risa-
stór bæði hérlendis og erlendis
og því getur verið erfitt að feta
sig áfram í leit að rétta hlaðvarp-
inu til að hlusta á.
Við hér á K100 erum mikið
áhugafólk um hlaðvörp og
ákváðum að ræða við það fólk
sem heldur úti hlaðvarpi hér á Ís-
landi og fá það til þess að gefa
okkur upp hvaða hlaðvarpsþætti,
fyrir utan sína eigin, það hlustar
á í sínum frítíma. Það ætti að
geta gefið fólki góðar hugmyndir
um áhugaverð hlaðvörp sem
henta þeirra áhugasviði.
Hjálmar Örn Jóhannesson
heldur úti hlaðvarpinu Hæ Hæ –
Ævintýri Helga og Hjálmars
ásamt fjölmiðlamanninum Helga
Jean Claessen. Hjálmar hlustar
mikið á hlaðvörp sjálfur og gefur
lesendum álit á því hvað honum
þykir gott að hlusta á.
„Hæ Hæ eru bara tveir
mömmustrákar með mikil gesta-
læti að segja sögur í leit að ást,
samþykki og viðurkenningu. Allt
er leyft en stundum klippir samt
Arnar Freyr hljóðmaður út eitt-
hvað sem við segjum um hann.
Allir eru samt vinir og oftast end-
um við í hádegismat eftir góðan
þátt og þá yfirleitt borða ég mest
af þeim en þó kemur fyrir að
Arnar borði meira en þó aldrei
Helgi, hann borðar alltaf
minnst,“ segir Hjálmar að-
spurður út í hlaðvarp sitt.
Sjálfur segist Hjálmar hlusta
mikið á hlaðvörp og viðurkennir
að hafa eiginlega alltaf eitthvað í
eyrunum.
Hlaðvarpslisti Hjálmars:
Dr. Football:
„Ég hef verið í samtalsmeðferð
lengi hjá doktornum og líf mitt
tekið stakkaskiptum. Alltaf gam-
an þegar Sælkerabræður mæta
og málarinn snjalli Keli og frá-
bær viðbót að fá litlu flugvélina
inn.“
Í ljósi sögunnar:
„Þetta var fyrsta hlaðvarpið
sem ég hlustaði á, frábærir þætt-
ir! Er ennþá sterkur hlustandi.“
Frjálsar hendur:
„Mjög vanmetið hlaðvarp, ró-
legt og róandi. Set það oftast á á
sunnudagskvöldum.“
Podcast með Sölva Tryggva:
„Sölvinn er sá allra besti og
hefur tekið yfir podcast-leikinn,
enginn betri að ná sögunum
fram.“
Normið:
„Eva og Sylvía eru „The Po-
wer ladies of Podcast“! Mæli með
þessum þáttum, geggjaðar pæl-
ingar, húmor og frábærar fyrir-
myndir.“
Steve dagskrá:
„Þetta er hin hliðin á fótbolta-
hlaðvarpi, skemmtilegt kemestrí
á milli þeirra og ná alltaf að smita
því! Mæli líka með sjónvarps-
þáttunum þeirra.“
Áhugaverð
hlaðvörp:
Hjálmar Örn
gefur álit
Ljósmynd/Aðsend
Söngkonan Klara Elias
mun flytja þátttakendum
fjölskyldubingós mbl.is
ljúfa tóna í kvöld ásamt
gítarleikaranum Daníel
Friðriki Böðvarssyni.
Fjölskyldubingóið fór
aftur af stað fyrir tveimur
vikum eftir gríðarlega
góðar móttökur við fyrstu
þáttaröðinni sem klár-
aðist um síðustu áramót.
Þau Siggi Gunnars og
Eva Ruza halda áfram að
færa fjölskyldum landsins
bingótölurnar beint heim
í stofu og með þeim í setti
er furðu-DJ-inn, tóm
gleði og fullt af stórglæsi-
legum vinningum.
„Það á einstaklega vel
við að fá Klöru til okkar
enda var hún meðlimur í
hljómsveit sem gerði jarð-
skjálftalag allra jarð-
skjálfta, 5 á richter. Ég
veit reyndar ekki hvort
hún flytur það fyrir okkur
en það verður gaman að
fá hana í heimsókn engu
að síður,“ segir Siggi Gunnars
bingóstjóri sem bíður að vanda
spenntur eftir að útsending hefjist í
kvöld klukkan 19.00.
Allar upplýsingar um þátttöku og
útsendingu má finna með því að fara
inn á heimasíðu bingósins á
www.mbl.is/bingo. Allar fyrirspurnir
vegna bingósins er hægt að senda á
bingo@mbl.is.
Klara Elias með
ljúfa tóna í kvöld
Bingó Klara Elias verður gestur kvöldsins.
Ljósmynd/Aðsend