Morgunblaðið - 11.03.2021, Page 53

Morgunblaðið - 11.03.2021, Page 53
MINNINGAR 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARS 2021 efnum sem lífið hefur rétt henni. Það var erfitt fyrir okkur að tak- ast á við þann raunveruleika að tími okkar saman væri takmark- aður og að meinið væri ekki lík- legt til að sýna miskunn. Það breytti því þó ekki að daginn eft- ir fréttirnar hvatti Katla okkur í skokk. Svo reimaði hún á sig hlaupaskóna og skokkaði 10 km meðan við hin náðum styttri vegalengdum. Þetta var dæmi- gert fyrir baráttujaxlinn Kötlu. Katla elskaði lífið og fannst allir dagar góðir og tímasóun að láta sér leiðast. Í hennar huga var ekkert svo leiðinlegt að ekki væri hægt að finna eitthvað já- kvætt við það og gátum við frænkur ekki annað en hrifist með enda alltaf gaman þar sem Katla var. Á kveðjustundu sitja eftir góðar minningar um skemmtileg frænku/vinkonuboð, spjall og fundi í gegnum sam- félagsmiðla, matarklúbba, ferða- lög og útivist af ýmsu tagi. Sama hvert tilefnið var; alltaf var gleðin og jákvæðnin allsráðandi. Það hentaði þó ferðaflugunni sí- kátu illa að heimsfaraldur skyldi skella á og því urðu utanlands- ferðir síðasta árið miklu færri en hún hefði óskað sér. Það breytti því ekki að samverustundir með fjölskyldu og vinum voru settar í forgang og þökkum við sérstak- lega fyrir stundirnar saman á heimili hennar á Digranesvegin- um síðastliðið ár. Katla var skemmtileg og hafði einstakt lag á að segja frá og var alltaf tilhlökkun að mæta til sam- fagnaðar, hitta hana og heyra hvað á daga hennar hefði drifið. Auðvitað var alltaf eitthvað nýtt og spennandi í gangi og lífsgleðin í fyrirrúmi. Við munum ávallt minnast Kötlu með gleði í hjarta og þakklæti fyrir allt sem hún kenndi okkur en hún minnti okk- ur ætið á alla þá góðu kosti sem gott er að tileinka sér í lífinu því Katla sá alltaf hið bjarta og góða umfram það erfiða og slæma. Börnum hennar; Diljá, Óla, Örnu, Steina og Lilju, systkinum Ingu og Steina og Þorsteini frænda og fjölskyldum þeirra allra sendum við innilegar sam- úðarkveðjur og von um að minn- ingin um Kötlu gefi þeim styrk á erfiðum tímum. Ég krýp hjá þér á kné, og kveð þig nú. Í huga hetju sé, heila í styrk og trú. (Þ.Þ.) Þínar frænkur og vinkonur, Aðalheiður, Margrét Rósa, Kolbrún, Lára Valdís og Nanna. Það er óendanlega sárt að Katla sé horfin á braut svona allt, allt of snemma. Á svona stundu er erfitt að skilja tilgang lífsins, hvers vegna lífsglöð kona í blóma lífsins er tekin burt frá öllu ynd- islega fólkinu sínu sem elskar hana svo mikið. Fyrsta orðið sem kemur upp í hugann þegar ég hugsa um Kötlu mína er: „Gleðigjafi“! Ég kynnt- ist henni fyrir 35 árum þegar við unnum saman í tölvudeild Skelj- ungs. Þá vorum við á sama stað í lífinu, einhleypar og með jafn- gamla syni. Við urðum strax góð- ar vinkonur. Fljótt bættist þriðja Shell-vinkonan í hópinn, hún Þórdís, með litlu skottuna sína. Þetta var ótrúlega skemmtilegur tími sem einkenndist af lífi, fjöri, hlátri og ferðalögum, innanlands sem utan. Á þessum tíma kynnt- umst við Gumma sem kom oft í tölvudeild Skeljungs. Katla var strax með það á hreinu að þetta yrði minn maður og það varð úr. Stuttu seinna kynntist Katla Palla sínum, stóru ástinni í sínu lífi. Það var dásamlegt að sjá blikið í augum þeirra. Þau voru sannarlega ástfangin. Við tók skemmtilegur tími þar sem við hittumst oft. Þetta eru góðar minningar sem ylja. Katla varð ung mikill óperu- unnandi og stuttu eftir að við kynntumst bauð hún mér að koma með sér og foreldrum sín- um á óperu í Gamla bíói. Þetta var mín fyrsta óperuferð og þeg- ar hljómsveitin byrjaði að spila hvíslaði ég að Kötlu: „Finnst þér þetta virkilega svona falleg tón- list?“ Þá fór mín að hlæja og hvíslaði á móti: „Það er verið að stilla hljóðfærin.“ Síðar hlógum við oft að þessari fyrstu upplifun minni af óperu. Katla var alveg einstaklega heilsteypt manneskja, hress og skemmtileg vinkona sem gaf mikið af sér. Hún var mikill vinur vina sinna og stóð með þeim eins og klettur þegar þess þurfti með. Það fékk ég sannarlega að reyna þegar blés hressilega á móti í mínu lífi. Þá var gott að geta leit- að til vinkonu sem þekkti mótlæti og sorg af eigin raun. Katla var mikil fyrirmynd, hún var dugnaðarforkur, hvort sem var til vinnu, náms eða heima við. Hún kunni hins vegar líka að njóta lífsins og hafa gam- an, bæði með vinum sínum og fjölskyldu. Best af öllu fannst henni að ferðast. Það var hennar líf og yndi. Það var aðdáunarvert að fylgj- ast með hvernig Katla tókst á við veikindi sín. Hún leit alltaf á það jákvæða í aðstæðum hverju sinni, með æðruleysið að vopni. Litla ferðaflugan ákvað strax að láta veikindin ekki stoppa ferða- lögin sín. Þannig vildi hún hafa það og þannig var það allt til enda. Katla talaði oft um hversu stolt hún væri af stóra hópnum sínum – ríkidæminu sínu. Þau voru hennar dýrmætasta gjöf og henni fannst svo gott að vita af þeim öllum á góðum stað í lífinu. Elsku yndislega og fallega vin- kona, við Gummi erum svo óend- anlega þakklát fyrir að hafa fengið að vera þátttakendur í þínu lífi öll þessi ár. Þú gafst okk- ur mikla gleði, hlýju og ást og það var gott að geta gefið hana til baka til þín. Minning þín mun alltaf lifa í hjörtum okkar. Við sendum Þorsteini, börn- um, barnabörnum, systkinum, Ellu og öðrum aðstandendum Kötlu okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Dóra og Guðmundur. Elsku Katla mín, lífið er und- arlegt ferðalag. Okkar hófst fyrir 45 árum, þegar þú fluttir á Reyð- arfjörð í litla þorpið sem þú tókst ástfóstri við og aðspurð eftir það varstu að austan. Að sitja og skrifa kveðjuorð til þín, elsku gullið mitt, er svo sárt. Hjarta mínu blæðir og sársauk- inn er nístandi. Fallega, trausta, skemmtilega og jákvæða vinkona mín með frá- bæra húmorinn þinn. Það var hreinlega allt gott við þig og ég elskaði ljúfu og góðu samveru- stundirnar okkar. Það sem við gátum talað og hlegið og einn vinnudagur í heita pottinum flaug hjá eins og sekúndubrot. Elsku ferðafluga mín, ég lærði það fljótt í þínum félagsskap að vegabréf yrði ávallt að vera í gildi því það var aldrei að vita hvenær þú fengir góða hugmynd og við á leið á vit ævintýranna. Eins og á fimmtugsafmælinu þínu þegar þú ákvaðst að fagna tímamótunum og bjóða Þokunum þínum til Tenerife. Þar skáluðum við í kampavíni á El Tate fyrir þér, yngstu Þokunni okkar. París, London, Berlín, Barce- lona og allar hinar borgirnar sem við heimsóttum með hlaupaskóna í handfarangri ásamt ferðaglös- unum góðu. Þrátt fyrir stuttan hlaupaferil náðum við að taka þátt í skipulögðum hlaupum í út- löndum sem var toppurinn á til- verunni að okkar mati. Þú lést þig ekki vanta í mín skrítnu og krefjandi stórafmæli, hvort sem það var Herðubreið eða Hvanna- dalshnjúkur, þá varst þú alltaf mér við hlið, elsku steingeitin mín. Þín einkunnarorð: „ég get, ég vil, ég skal“ komu þér á topp- ana. Að staldra við og láta hug- ann reika fær mig til að brosa í gegnum tárin og ég fyllist þakk- læti. Margt var brallað og allt gátum við saman, að sauma okk- ur föt, ferðast, lita eða hlaupa. Þú stóðst mér við hlið í mínum veik- indum og misstir næstum því af flugvélinni til Ítalíu, því þú vildir vera sú sem rakaði af mér hárið þegar þess þurfti. Sautján árum síðar höfðu örlögin hagað því þannig að ég rakaði þitt hár. Þú varst minn klettur og ég vonandi þinn. Það var mikið áfall þegar þú greindist með krabbamein 2015. Þú tókst þessum fréttum af stó- ískri ró og miklu æðruleysi með börnin þín og systkin þér við hlið. Fyrir rúmu ári þyrmdi yfir okk- ur, þegar ljóst var að meinið hafði tekið sig upp. Þú huggaðir fólkið þitt og vini, staðráðin í að nýta tímann vel og njóta hvers dags. Þú barðist eins og sönn hetja til síðasta dags. Þrátt fyrir hrakandi heilsu og heimsfaraldur þráði ferðaflugan að komast með Þokunum sínum á vit ævintýranna einu sinni enn. Við héldum í sólina til Tenerife þar sem við nutum samveru og vináttu í miklum kærleik. Þessar dýrmætu minningar munum við geyma í hjörtum okkar. Ég er endalaust þakklát fyrir að við náðum heim og vorum saman þegar þú sofnaðir svefn- inum langa rúmum sólarhring eftir heimkomuna. Takk, elsku vinkona mín, fyrir samfylgdina í gegnum lífið. Góða ferð í þína hinstu ferð, elsku ferðaflugan mín. Hvíldu í friði, gullið mitt, þín mun ég sakna á meðan ég lifi. Við Egill vottum fjölskyldu og aðstandendum Kötlu okkar dýpstu samúð. Elín María (Ella vinkona). Í dag felldu blómin mín blöðin sín. Og húmið kom óvænt inn til mín. Ég hélt þó að enn væri sumar og sól- skin. (Tómas Guðmundsson) Með söknuði en full af þakk- læti kveð ég Kötlu Þorsteinsdótt- ur, sem ég hef þekkt frá fæðingu. Foreldrar hennar Kolfinna og Þorsteinn voru okkar bestu vinir og við hjónin barnlaus á þeim tíma og vorum við mikið heima hjá þeim fyrstu árin hennar. Á stundu sem þessari koma upp minningar frá hennar fyrstu árum. Hún var bráðþroska eftir aldri, orðin læs sex ára og ótrú- lega gaman að spjalla við hana. Sat ég oft á kvöldin inni hjá henni og Óla bróður hennar og las fyrir þau og við sungum sam- an, mér fannst ég alltaf eiga svo- lítið í þeim. Eftir að Steini og Ingibjörg fæddust sýndi Katla að hún hafði ríka ábyrgðartilfinningu gagn- vart systkinum sínum. Svo flutti fjölskyldan austur á Reyðarfjörð og við hittumst sjaldnar en við fylgdumst með henni vaxa og dafna í fallega unga konu, mennta sig, giftast og eignast yndisleg börn. Við Viðar kynnt- umst Palla, hennar elskulega manni, og við ferðuðumst með þeim ásamt foreldrum hennar, vorum saman í leikhúsklúbbi og við eldra fólkið kynntum þeim óperur og þau kenndu okkur að meta yngri tónskáld og nýjar óp- erur eins og t.d. Phantom of the Opera. Seinni árin fórum við oft saman til Svíþjóðar í heimsókn til foreldra hennar og að sjálfsögðu má ekki gleyma Kollu, spila- klúbbnum okkar, sem við, Inga, Anna og Gerður stofnuðum. Já, það er margs að minnast um liðnar samverustundir og ómetanlegt að hafa fengið að fylgjast með uppvexti, sorgum og gleði hennar alla tíð. Hún var ósérhlífin og gott var að leita til hennar ef vandamál komu upp, fyrir það vil ég þakka. Einnig biðja Þórir og Steina fyrir þakk- lætiskveðjur. Eftir að hún greindist aftur með krabbamein fyrir rúmu ári og hún vissi að ekki varð aftur snúið ákvað hún að lifa lífinu til fulls og það hefur hún svo sannarlega gert saman- ber hlaup, göngur og ferðalög innanlands og utan með börnum sínum, fjölskyldu og vinum. Ferðalög voru henni mikils virði og dásamlegt að hún gat verið með sínum bestu vinkonum síð- ustu vikuna í lífi sínu. Elskulegu systkin, Lilja, Steini, Arna, Óli og Diljá, samúð mín er hjá ykkur og börnum ykk- ar. Elsku Þorsteinn, Steini og Ingibjörg, þið eigið líka alla mína samúð. Guð styrki ykkur öll. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir) Sigríður Friðþjófsdóttir. Í dag kveðjum við ástkæra vinkonu okkar Kötlu. Engin orð fá því lýst hve mikil sorg býr í hjarta okkar í dag – það situr stórt tómarúm innra með okkur. En Katla var ekki bara hjartkær vinkona okkar heldur var hún yf- irmaður okkar þegar við unnum hjá Reykjavíkurdeild Rauða krossins á árunum 2004-2014. Betri yfirmann er vart hægt að hugsa sér. Það fyrsta sem kemur upp í hugann er elskusemi, leiftr- andi gáfur, næmi, styrkur og til- finning fyrir hinu heila sem og hinu brostna sem ófust saman í kærleiksríka persónugerð Kötlu. Hún var næm og ræktaði með sér tilfinningu fyrir öllu því sem var aumt og sá þau, sem þörfn- uðust aðstoðar og stuðnings. Hún var ótrúlega gefandi og allt- af sá hún lausnir í sjónmáli. Þá veitti hún okkur starfsmönnun- um ævinlega liðstyrk og umfram allt erum við þakklátar fyrir traustið sem hún ætíð sýndi okk- ur og var óspör á að láta það í ljós. Við höfðum stundum á orði til að lýsa ánægju okkar að við þyrftum að flýta okkur að sofa því þannig var andrúmsloftið á vinnustaðnum að hver dagur í vinnu undir hennar stjórn var ei- líft tilhlökkunarefni. Eftir að við hættum að vinna saman hittumst við þegar færi gafst og var Katla að sjálfsögðu límið í „hittingnum og passaði vel upp á að ekki liði of langt á milli. Einlægur var áhugi hennar á öllu sem við tókum okkur fyrir hendur jafnt í vinnu sem einka- lífi. Við veltum stundum fyrir okkur hvort sólarhringurinn væri lengri hjá Kötlu en okkur því svo afkastamikil var hún á öllum sviðum. Listfeng, ljóðelsk og víðlesin var hún. Katla var mikil fjölskyldukona og naut þess að hafa alla fjölskylduna í kringum sig. Ótrúlega fallegt handverk liggur eftir hana og naut hennar stóra fjölskylda góðs af. Hún opnaði glæsilegt heimili sitt og gaf af rausn og mikill listakokkur var hún. Það var einfaldlega alltaf gaman þar sem Katla var. Hún hafði gríð- arlega frásagnargáfu og ógleym- anlegar eru stundirnar þegar hún sagði okkur ferðasögur en Katla nefndi sjálfa sig „ferða- fluguna“ því svo mikið yndi hafði hún af ferðalögum innan lands og utan. Allt var skipulagt í þaula áður en af stað var haldið. Katla lét ekki þröngsýni annarra spilla eigin útsýn. Hún hafði gaman af því sem lífið bauð henni, naut þess að skoða hið smáa sem og hið stóra. Ævinlega gat hún bent á farsælar úrlausnir. Í hennar huga voru vandamálin til þess að leysa þau. Í erfiðum veikindum sínum sýndi hún ofurmannlegan styrk svo undrum sætti. Engan sem hitti hana gat grunað hversu alvarlega veik hún var orðin. Þegar við áttum von á fréttum af veikindum hennar kom í ljós að okkar kona var að undirbúa sig fyrir þátttöku í maraþoni í Berlín SJÁ SÍÐU 54 Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Elsku mamma okkar, tengdamóðir, amma og langamma, DAGMAR DIDRIKSEN, fyrrverandi kaupmaður, Brúnavegi 9, lést á Borgarspítalanum 3. mars. Útförin verður frá Langholtskirkju föstudaginn 19. mars klukkan 15. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir en streymt verður á slóðinni https://www.facebook.com/groups/3944686638927674 Rúna Didriksen Bjarma Didriksen Guðmundur Gunnarsson Siri Didriksen Rita Didriksen Ásmundur Pálmason Schumann Didriksen Heidi Didriksen Júlíus Didriksen barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN ÞÓRA HJALTADÓTTIR, Grænumýri 12, Seltjarnarnesi, varð bráðkvödd aðfaranótt sunnudagsins 7. mars. Útförin verður auglýst síðar. Sara Þórunn Óladóttir Houe Sölvi Þórðarson Hjalti Thomas Houe Sólrún Fönn Þórðardóttir og barnabörn Elskuleg systir okkar, mágkona og frænka, GUÐRÚN JÓHANNESDÓTTIR, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi miðvikudaginn 24. febrúar. Útförin fer fram frá Seljakirkju föstudaginn 19. mars klukkan 13. Sveinn Jóhannesson Þorbjörg Valdimarsdóttir Auður Fanney Jóhannesd. Marteinn Valdimarsson systkinabörn og fjölskyldur Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EINAR HARALDUR GÍSLASON, Einar í Sjólyst á Eskifirði, lést á hjúkrunarheimilinu Lundi á Hellu þriðjudaginn 2. mars. Útförin fer fram frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn 13. mars klukkan 14. Jarðsett verður í Selfosskirkjugarði. Athöfninni verður streymt á https://youtu.be/0fCo-PpO5LM Sigurrós Ingileif Ákadóttir Rögnvaldur Gísli Einarsson Guðmundur Ingi Einarsson Vilfríður Víkingsdóttir Áslaug Sigrún Einarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.