Morgunblaðið - 11.03.2021, Page 60
60 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARS 2021
70 ára Ásgrímur er
Reykvíkingur, fæddist í
Bústaðahverfinu og býr
þar enn. Hann er jarð-
fræðingur að mennt
frá HÍ og er verkefna-
stjóri hjá Landsvirkjun.
Ásgrímur er heiðurs-
félagi í Víkingi.
Maki: Svava Jakobsdóttir, f. 1949, vann
síðast hjá Íslandspósti.
Synir: Guðmundur Marinó, f. 1974,
Andri, f. 1979, og Emil, f. 1985. Barna-
börnin eru orðin níu.
Foreldrar: Guðmundur Marinó Ásgríms-
son, f. 1907, d. 2006, verslunarstjóri, og
Emilía Benedikta Helgadóttir, f. 1917, d.
2012, húsmóðir. Þau voru búsett í
Reykjavík.
Ásgrímur
Guðmundsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þér opnast skyndilega nýr heim-
ur og átt fullt í fangi með að átta þig á
öllu því sem honum fylgir. Ekki skuld-
binda þig ef þú mögulega kemst hjá því.
20. apríl - 20. maí
Naut Fólk er hrifið af því sem þú hefur
fram að færa. Sýndu lipurð og mundu að
sjaldan veldur einn þá tveir deila.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Sambönd sem líta vel út á
pappírunum en smella ekki eru álíka dýr-
mæt og pappírinn sem þau eru sögð líta
vel út á.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Uppbyggilegar viðræður við vini
geta leitt til ánægjulegrar samvinnu. Ef
markmið þín eru skýr í huga þér mun
það hafa áhrif á gerðir þínar og smátt og
smátt færa þig nær takmarki þínu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Grínstuðið í þér kemur öllum í
betra skap. Taktu þátt í umræðunum ef
þú telur að framlag þitt skipti einhverju
máli.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Vinnan er stundum meiri áskorun
en þú kærir þig um að mæta, en þannig
er það einfaldlega. Ef þú vilt geturðu nýtt
þér reynslu annarra.
23. sept. - 22. okt.
Vog Hamingjan bíður þín á næsta leiti en
þú þarft að sýna dirfsku, en um leið þol-
inmæði til þess að finna hana.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Láttu það ekki hafa áhrif á
þig þótt einhverjir samstarfsmenn séu
með stæla í þinn garð. Notaðu tækifærið
til að koma tillögum þínum um umbætur
og breytingar á framfæri.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú átt erfitt með að einbeita
þér vegna innri togstreitu. Láttu gagn-
rýni annarra sem vind um eyru þjóta.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þér verður ekkert úr verki ef
þú ætlar þér of mikið í einu. Betra er að
kanna málin og vita hvað raunverulega
er á ferðinni.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú sérð félaga þinn í skýru og
fersku ljósi, sem er bæði jákvætt og nei-
kvætt. Ekki eyða orku í að vinna gegn fá-
fræði og vanþekkingu annarra.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú virðist hafa svör við öllu á
reiðum höndum. Vandamál sem hefur
flækst fyrir þér leysist af sjálfu sér.
urborg var Magnús verkefnis- og
byggingarstjóri við lokaáfanga líkn-
ardeildar LSH í Kópavogi og vann
við endurbætur og stækkanir á
húsnæði Ljóssins, og á vistheimili
Samhjálpar í Hlaðgerðarkoti. Hann
vinnur nú sem byggingarstjóri við
Starfsferill
Magnús var húsasmiður fram að
námi í Tækniskólanum og í leyfum.
hann var starfsmaður Öryggiseft-
irlits ríkisins frá 1.7. 1973 til árs-
loka, starfsmaður Rafmagnsveitu
Reykjavíkur frá 1.1. 1974 til 1.8.
1984, deildarstjóri byggingardeildar
RR, deildarstjóri áætlana hjá bygg-
ingardeild borgarverkfræðings frá
1.8. 1984, síðar tæknideildarstjóri
til 1.11. 1993 og á þeim tíma bygg-
ingarstjóri Borgarleikhússins og
við endurbyggingu Viðeyjarstofu og
-kirkju. Hann var byggingarfulltrúi
í Reykjavík 1.11. 1993-1.9. 2011.
Hann starfaði sjálfstætt fyrir
Reykjavíkurborg til ársloka 2012,
við fasteignaskráningu og gerð
gæðahandbókar fyrir embætti
byggingarfulltrúa. Hann var leið-
beinandi og verkefnisstjóri á nám-
skeiðum fyrir byggingarstjóra frá
2005, fyrir mannvirkjahönnuði frá
1998 og á löggildingarnámskeiðum
vegna eignaskiptayfirlýsinga frá
1996. Eftir starfslok hjá Reykjavík-
M
agnús Sædal Svav-
arsson fæddist í
Laufási í Ytri-
Njarðvík þann 11.
mars 1946 og ólst
þar upp. „Ég fæddist inn í stóra og
samheldna fjölskyldu, næstyngstur
sjö systkina. Njarðvík var á þessum
árum lítið þorp, u.þ.b. 30 íbúðarhús
og þar hafði tilveran um aldir
byggst á fiskveiðum og landbúnaði,
kýr á beit og bátar við bryggjur.
Þorpið var í þann tíma að mjakast
til framfara. Orðið „innviðir“ var
óþekkt. Holóttur malarvegur lá í
gegnum þorpið, engin sorphirða og
fráveitulagnir fóru í sjóinn, í rot-
þrær eða flutu á yfirborðinu. Raf-
magnsleysi var algengt og vatn tek-
ið af þökum. Atvinna skiptist í tvö
horn, þau sem störfuðu á flugvell-
inum og hin sem unnu við fisk-
verkun, í slippnum eða vélsmiðj-
unum.
Ég fór snemma að taka til hendi,
man eftir saltfiskbreiðslu á stakk-
stæði um 7 ára aldur, varð 11 ára
póstur í þorpinu, sendill í verslun,
var í fiskvinnu og út- og uppskipun
í Keflavík til 15 ára aldurs. Tvær
tilraunir voru gerðar til þess að
koma mér í sveit, sem heillaði ekki.
Undi mér betur við leik í fjöru,
veiði á bryggjum, fleka- og kofa-
smíði og sinubrennur, sem voru illa
séðar af húsmæðrum. Átti bát fúinn
og lekan, síðar annan bát með vél
og stundaði rauðmagaveiði. Við
stákarnir vorum heimagangar í
slippnum og vélsmiðjunum og aldr-
ei við okkur amast, Nábýli við her-
inn leiddi til margra ævintýra og
við strákarnir háðum stríð milli
þorpshluta.“
Magnús tók unglingapróf frá
Gagnfræðaskóla Keflavíkur 1961,
lauk sveinsprófi í húsasmíði í nóv-
ember 1965, fékk meistarabréf 1974
og starfsleyfi Mannvirkjastofnunar
sem byggingarstjóri I, II, III og
lauk lokaprófi í byggingartækni-
fræði frá Tækniskóla Íslands í júní
1973. Magnús hefur sótt fjölda
námskeiða á byggingarsviði og í
stjórnsýslu. „Eftir starfslok hef ég
tekið nokkrar annir í sagnfræði við
hugvísindadeild HÍ.“
gerð dagdeilda fyrir Alzheimer- og
Parkinsongreinda í St. Jósefsspít-
ala í Hafnarfirði. „Mér er efst í
huga að ég hef alltaf verið í
skemmtilegri vinnu og gefandi. Það
sem stendur helst upp úr er bygg-
ing Borgarleikhússins sem ég kom
að 1984 og stýrði því verki til loka
og eins endurbygging Viðeyjarstofu
og -kirkju. Það var verkefni sem
höfðaði til þjóðarsálarinnar.“
Magnús hefur starfað í fjölda
nefnda og starfshópa á vegum
Reykjavíkurborgar, Sambands ísl.
sveitarfélaga og félagasamtaka og
verið í stjórn og formennsku
margra félaga. Hann hefur annast
leiðsögn um Suðurnes og í ferðum
Félags eldri borgara í Reykjavík á
söguslóðum. Hann hefur skrifað
greinar í blöð og tímarit. Magnús
er félagi í Oddfellow-reglunni frá
1986 og hefur gegnt þar fjölda
trúnaðarstarfa, er heiðursfélagi í
stúkunni Þormóði goða 2015 og var
sæmdur heiðursmerki Oddfellow-
reglunnar 2019.
Áhugamál Magnúsar eru bóklest-
ur, einkum sagnfræði, þjóðlegur
fróðleikur, ættfræði og ferðalög
jafnt innan- sem utanlands.
Fjölskylda
Eiginkona Magnúsar er Vilborg
Sigrún Gestsdóttir, fv. banka- og
lögfræðiritari, f. 29.9. 1942 í
Reykjavík. Þau gengu í hjónaband
18.8. 1972 og hafa búið í Hólahverfi
í Breiðholti í 44 ár og áður við Raf-
stöð í Elliðaárdal. Foreldrar Vil-
borgar voru hjónin Gestur Óskar
Friðbergsson, yfirvélstjóri hjá Eim-
skip, f. 7.10. 1902, d. 30.4. 1982, og
Anna María Friðbergsson, fædd
Andreassen, húsfreyja, f. 12.2.
1908, d. 19.12. 2004. Þau bjuggu í
Reykjavík.
Börn Vilborgar og Magnúsar eru
1) Gestur Óskar, f. 12.2. 1977, lög-
maður, sambýliskona er Guðrún
Jónsdóttir, f. 19.12. 1977, hans börn
eru Dagur Ari, f. 30.11. 2007, og
Eyrún Hulda, f. 13.6. 2009, börn
Guðrúnar eru Sara, f. 23.6. 2000, og
Viktor, f. 8.10. 2013; 2) Sigurbjörg,
f. 17.2. 1980, bókmenntafræðingur,
sambýlismaður er Jón Svan Sverr-
Magnús Sædal, byggingartæknifræðingur og húsasmíðameistari – 75 ára
Ljósmynd/Magnús Sædal
Í Kaupmannahöfn Frá vinstri: Jón Svan, Gestur Óskar, Eyrún Hulda,
Svala, Sigurbjörg, Dagur Ari og Vilborg.
Alltaf verið í skemmtilegri vinnu
Afmælisbarnið Magnús Sædal.
60 ára Hersir fæddist
í Súðavík, ólst upp í
Hafnarfirði en býr í
Kópavogi. Hann er
sölumaður hjá Ó.
Johnson & Kaaber.
Maki: Hrafnhildur
Halldórsdóttir, f. 1958,
skrifstofumaður hjá fyrirtækinu Dögum.
Dætur: Elsa Dóra Gunnarsdóttir, f.
1980, Signý Hersisdóttir, f. 1988, og
Ingimunda Hersisdóttir, f. 1990. Barna-
börn eru orðin þrjú.
Foreldrar: Albert J. Kristjánsson, f.
1920, d. 2011, oddviti í Súðavík, síðast
vaktstjóri í Hafnarfirði, og Guðlaug
Kristjana Guðlaugsdóttir, f. 1920, d.
2004, vann síðast á Sólvangi í Hafn-
arfirði.
Hersir Freyr
Albertsson
KRINGLAN – SMÁRALIND – DUKA.IS
NÝTT FRÁ Kartell
Toy Moschino lampi – 38.900,-
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is