Morgunblaðið - 11.03.2021, Page 61
isson, f. 25.8. 1981, viðskiptafræð-
ingur og framkvæmdastjóri, dóttir
þeirra er Svala, f. 22.12. 2012.
Systkini Magnúsar: Erla, f. 16.6.
1931, hjúkrunarfræðingur, búsett í
Reykjavík; Sigríður Magna, f.
23.10. 1933, d. 23.5. 1934 í Keflavík;
Einar Sædal, f. 10.10. 1935, d. 11.8.
2020, skipasmiður og fram-
kvæmdastjóri í Ytri-Njarðvík; Her-
bert Sædal, f. 21.4. 1937, d. 28.9.
2007, húsasmíðameistari og versl-
unarmaður í Ytri-Njarðvík; Unnur
Aldís, f. 31.7. 1938, d. 15.9. 2004,
síðast kaupmaður í Reykjavík; Guð-
björg, f. 3.1. 1940, hárgreiðslu-
meistari og garðyrkjukona, í Borg-
arnesi; Róbert Sædal, f. 19.9. 1947,
kaupmaður, búsettur í Keflavík.
Samfeðra, Regína Fjóla, f. 29.5.
1929, d. 11.10. 2013, húsmóðir og
verkakona, síðast búsett í Reykja-
vík; Garðar, f. 21.10. 1930, vélstjóri
og véltæknifræðingur, búsettur í
Reykjavík.
Foreldrar Magnúsar voru hjónin
Sigurbjörg Magnúsdóttir, f. 5.4.
1907, d. 2.8. 1985, húsfreyja og fé-
lagsmálafrömuður, og Svavar Sig-
finnsson, f. 29.11. 1906, d. 29.9.
1992, múrarameistari og bifreiðar-
stjóri. Þau voru lengst af búsett í
Ytri-Njarðvík og Keflavík, en síðast
í Reykjavík.
Magnús Sædal
Svavarsson
Jón Jónsson
sjó- og verkamaður í
Bræðraborg á Seyðisfirði
Rósa Guðmundsdóttir
húsfreyja í Bræðraborg
Sigfinnur J. Jónsson
verkamaður á Seyðisfirði,
síðar í Hafnarfirði
Jóhanna Gunnlaugsdóttir
verkakona og húsfreyja á
Seyðisfirði, síðar í Hafnarfirði
Svavar Sigfinnsson
múrarameistari og síðar
bifreiðarstjóri, lengst bús. í
Ytri-Njarðvík og Keflavík
Jódís Jónsdóttir
vinnukona á Læk og víðar
Gunnlaugur
Gunnlaugsson
vinnumaður á Læk í
Holtum, Rang. og víðar
Árni Pálsson
bóndi og sjómaður í
Hænuvík í Patreksfirði
Ingibjörg Ólafsdóttir
húsfreyja í Hænuvík
Magnús Árnason
bóndi og sjómaður á Hnjóti
Sigríður Sigurðardóttir
húsfreyja og bóndi á Hnjóti í
Örlygshöfn
Sigurður Gíslason
prestur í Sauðlauksdal,
bókbindari, reikningshaldari,
og bóndi í Vesturbotni
Ingibjörg Sigurðardóttir
húsfreyja og bóndi í
Vesturbotni í Patreksfirði
Úr frændgarði Magnúsar Sædals Svavarssonar
Sigurbjörg Magnúsdóttir
húsfreyja, lengst bús. í Ytri-
Njarðvík og Keflavík
DÆGRADVÖL 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARS 2021
Vor/Sumar 2021
www.danco.is
Heildsöludreifing
Decoris 2021 línan komin í hús
Vefverslun fyrir fyrirtæki og verslanir á www.danco.is
Fyrirtæki og verslanir
Glervasi
Matt Brown
25 cm
Stóll Teakwood
80x60x70 cm
Pottur Monk m/pl.
2 teg. 25 cm
Viðarborð Suar
30x120x80 cm
Munkur á bæn - Svargr. 2 teg. 47 cm
Hengiplöntur
10x43 cm - 2 teg.
Blómapottur Lady
2 teg. 35 cm
Þurrkuð strá
green/red 2 teg.
50 cm
Windchime
Bamboo 63 cm
Spegill Willow
gylltur 112 cm
„fer ég of hratt fyrir þig?”
„EF ÞÚ ENDILEGA ÞARFT AÐ FLISSA
SVONA VIL ÉG BENDA ÞÉR Á AÐ VERA Í
BARNAHORNINU.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... í erfðaefninu.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÞAÐ ER KVIKNAÐ Í
SLÖKKVITÆKINU!
ÉG SAGÐI ÞÉR AÐ
KAUPA TVÖ!
HELGA, FÖRUM HEIM! ÉG VIL
EKKI HALDA VÖKU FYRIR
GESTGJÖFUNUM!
ÓKEI
BJÓRINN VAR BÚINN,
EKKI SATT?
Á sunnudag orti Magnús Hall-dórsson á Boðnarmiði:
Sækir tíðum sól á huga,
sundrar vetrarskugganum.
Þegar vorsins fyrsta fluga,
fer að suða’ í glugganum.
Sigurlín Hermannsdóttir segir,
að nú streymi vorvísurnar fram
þótt góa sé rétt hálfnuð:
Enn má bíða betri tíðar
bráðum líður vetur hjá.
Í erg og gríð um veröld víða
vísur smíða skáldin þá.
Á sunnudaginn var Friðrik Stein-
grímsson að skoða veðurfregnir
gærkvöldsins á RÚV:
Vaknað hafði vorsins þráin
vonglaður ég sumars beið,
þá var Hrafni skellt á skjáinn
sem skítviðrinu spáði’ um leið.
„Orsök og afleiðing“ segir Helgi
R. Einarsson og yrkir:
Ef fyrir þorsta þið finnið,
fyllist af einhverju sinnið,
sem leiðist að bíða
og leggst því ’íða,
að lokum tapast svo minnið.
Heiðrekur Guðmundsson skáld
orti „á undan gosi“:
Oft í geði eldur brann
undir fargi þungu
áður en sprengdi af sér hann
andans jökulbungu.
Hér yrkir Heiðrekur fallega um
gjafir barnanna:
Þegar myrkrið mæðir geð,
minnkar hey í stabba,
koma blessuð börnin með
bros og gefa pabba.
Og hér er „viðurkenning (þegar
vel gengur)“:
Þó að stundum þyki mér
þungur lífsins róður
þá er Guð í sjálfu sér
sínum börnum góður.
Faðir Heiðreks, Guðmundur á
Sandi, orti:
Veit ég vonaskarð
vera í fjöllum –
Braga bláfjöllum,
beint í austri,
móti morgunsól, –
margra rasta,
ótal einstiga
undraskarð.
Þá er þjóðvísa:
„Þegar lundin þín er hrelld,
þessum hlýddu orðum:
Gakktu við sjó og sittu við eld,“
svo kvað völvan forðum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vorboðinn ljúfi og
vísur héðan og þaðan