Morgunblaðið - 11.03.2021, Page 62
62 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARS 2021
England
Manchester City – Southampton............ 5:2
Staðan:
Manch. City 29 21 5 3 61:21 68
Manch. Utd 28 15 9 4 55:32 54
Leicester 28 16 5 7 48:32 53
Chelsea 28 14 8 6 44:25 50
West Ham 27 14 6 7 42:31 48
Everton 27 14 4 9 39:35 46
Tottenham 27 13 6 8 46:28 45
Liverpool 28 12 7 9 47:36 43
Aston Villa 26 12 4 10 38:27 40
Arsenal 27 11 5 11 35:28 38
Leeds 27 11 2 14 43:46 35
Wolves 28 9 8 11 28:37 35
Crystal Palace 28 9 7 12 30:47 34
Southampton 28 9 6 13 35:49 33
Burnley 28 7 9 12 20:36 30
Newcastle 27 7 6 14 27:44 27
Brighton 27 5 11 11 27:35 26
Fulham 28 5 11 12 22:33 26
WBA 28 3 9 16 20:56 18
Sheffield Utd 28 4 2 22 16:45 14
B-deild:
Barnsley – Derby ..................................... 0:0
Meistaradeild kvenna
16-liða úrslit, seinni leikir:
Bröndby – Lyon ....................................... 1:3
Sara Björk Gunnarsdóttir lék fyrstu 59
mínúturnar með Lyon.
Lyon áfram, 5:1 samanlagt.
Bayern München – Kazygurt................. 3:0
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir lék allan
leikinn með Bayern.
Bayern áfram, 9:1 samanlagt.
St. Pölten – Rosengård ........................... 0:2
Kristrún Rut Antonsdóttir var varamað-
ur hjá St. Pölten og kom ekki við sögu.
Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik-
inn með Rosengård.
Rosengård áfram, 2:4 samanlagt.
Atlético Madrid – Chelsea....................... 1:1
Chelsea áfram, 3:1 samanlagt.
Lilleström – Wolfsburg ........................... 0:2
Wolfsburg áfram, 4:0 samanlagt.
Fortuna Hjörring – Barcelona................ 0:5
Barcelona áfram, 9:0 samanlagt.
Spánn
Atlético Madrid – Athletic Bilbao........... 2:1
Staða efstu liða:
Atlético Madrid 26 19 5 2 50:18 62
Barcelona 26 17 5 4 57:22 56
Real Madrid 26 16 6 4 44:21 54
Sevilla 25 15 3 7 35:20 48
Real Sociedad 26 12 9 5 43:21 45
Real Betis 26 13 3 10 36:40 42
Villarreal 26 8 13 5 34:29 37
Meistaradeild karla
16-liða úrslit, seinni leikir:
Liverpool – RB Leipzig......................... (0:0)
París SG – Barcelona............................. (1:1)
Leikjunum var ekki lokið þegar blaðið
fór í prentun. Sjá mbl.is/sport/fotbolti.
Danmörk
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit, seinni leikur:
Midtjylland – OB...................................... 3:0
Mikael Anderson lék allan leikinn með
Midtjylland.
Aron Elís Þrándarson lék fyrstu 62 mín-
úturnar með OB og Sveinn Aron Guðjohn-
sen lék seinni hálfleikinn.
Grikkland
Lamia – Larissa ....................................... 2:1
Theódór Elmar Bjarnason var varamað-
ur hjá Lamia og kom ekki við sögu.
Olísdeild kvenna
HK – KA/Þór ..................................... frestað
Haukar – ÍBV ....................................... 21:21
Fram – Stjarnan................................... 29:19
Staðan:
Fram 12 9 0 3 351:286 18
KA/Þór 11 7 3 1 277:241 17
ÍBV 12 6 2 4 292:271 14
Valur 12 5 3 4 318:275 13
Stjarnan 12 6 0 6 314:309 12
Haukar 12 4 3 5 296:307 11
HK 11 4 1 6 267:289 9
FH 12 0 0 12 230:367 0
Danmörk
Holstebro – Vendsyssel ...................... 29:28
Steinunn Hansdóttir skoraði 2 mörk fyr-
ir Vendsyssel. Elín Jóna Þorsteinsdóttir
varði 9 skot í marki liðsins, 24 prósent.
Undankeppni EM karla
3. riðill:
Úkraína – Færeyjar............................. 25:21
Rússland – Tékkland ........................... 28:27
Rússland 5, Úkraína 3, Tékkland 0, Fær-
eyjar 0.
6. riðill:
Hvíta-Rússland – Ítalía........................ 37:32
Noregur 4, Hvíta-Rússland 4, Ítalía 2,
Lettland 2.
8. riðill:
Kósóvó – Rúmenía................................ 23:23
Svíþjóð 6, Rúmenía 3, Svartfjallaland 2,
Kósóvó 1.
EHF-Evrópubikar karla
Slóvakía – Spánn .................................. 18:30
Króatía 4, Ungverjaland 2, Spánn 2, Sló-
vakía 0.
HANDBOLTINN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Fram nýtti tækifærið í gærkvöld til
að komast á topp Olísdeildar kvenna
í handknattleik með mjög öruggum
sigri á Stjörnunni í Safamýri, 29:19.
KA/Þór komst ekki til leiks gegn
HK í gær en reynir aftur að komast
suður í dag og getur þar endurheimt
efsta sætið.
Eftir þennan sigur er nokkuð ljóst
að Fram verður annað þeirra
tveggja liða sem fara beint í fjögurra
liða úrslit. Fram er þremur stigum á
undan Val í þriðja sæti og á eftir að
mæta stigalausum FH-ingum í
næstsíðustu umferðinni.
Stjarnan situr eftir í sjötta sæti og
er í hörðum slag um að komast í úr-
slitakeppnina.
Ragnheiður Júlíusdóttir skoraði 7
mörk fyrir Fram og Katrín Ósk
Magnúsdóttir varði 17 skot og var
með 51,5 prósent markvörslu. Eva
Björk Davíðsdóttir skoraði 5 mörk
fyrir Stjörnuna.
Haukar fengu afar dýrmætt
stig í baráttunni um sæti í úrslita-
keppninni með jafntefli, 21:21, gegn
ÍBV á Ásvöllum. Haukar voru
reyndar nær sigri eftir að hafa
lengst af verið undir í annars hníf-
jöfnum leik en nýttu ekki lokasókn-
ina og Eyjakonur sluppu með
skrekkinn.
Þetta stig gæti skipt sköpum fyrir
Hauka sem eru í baráttu við HK og
Stjörnuna en tvö liðanna komast
áfram. Haukar eiga eftir að mæta
báðum liðunum í tveimur síðustu
umferðunum.
ÍBV er nær öruggt með að enda í
þriðja eða fjórða sæti fyrst leikurinn
tapaðist ekki og fær því að óbreyttu
heimaleikjarétt í fyrstu umferð úr-
slitakeppninnar þegar liðin í þriðja
og fjórða sæti leika við liðin í fimmta
og sjötta sæti.
Markverðirnir voru í aðal-
hlutverkum á Ásvöllum en Annika
Petersen í marki Hauka varði 17
skot og Darja Zecevic í marki ÍBV
varði 13 skot og var með 50 prósent
markvörslu.
Sunna Jónsdóttir skoraði 5 mörk
fyrir ÍBV og Sara Odden 5 fyrir
Hauka.
Framarar nýttu tækifærið
Efstar eftir stórsigur á Stjörnunni og nánast öruggar með sæti í undanúrslit-
um Spennuþrungið jafntefli Hauka og ÍBV og dýrmætt stig fyrir bæði lið
Ljósmynd/Kristinn Magnússon
Ógnar Ragnheiður Júlíusdóttir var atkvæðamikil í liði Fram í gærkvöld og sækir hér að vörn Stjörnunnar.
Sebastian Alexandersson hættir
störfum sem þjálfari karlaliðs Fram
eftir þetta keppnistímabil en Fram-
arar ákváðu að nýta sér uppsagn-
arákvæði í samningi hans sem var
til tveggja ára í viðbót. Sebastian
staðfesti þetta við mbl.is í gær en
vildi ekki ræða málið frekar fyrr en
Framarar hefðu greint frá þessu
opinberlega. Það höfðu þeir ekki
gert í gærkvöld en samkvæmt frétt
á Vísi.is hefur þegar verið ákveðið
að Einar Jónsson snúi heim frá Nor-
egi í sumar, þar sem hann þjálfar
lið Bergsöy, og taki við Fram á ný.
Sebastian víkur
fyrir Einari
Morgunblaðið/Íris Jóhannsdóttir
Hættir Sebastian Alexandersson
yfirgefur Safamýrina í sumar.
Alfreð Gíslason, þjálfari þýska
karlalandsliðsins í handknattleik,
vill að liðum verði fækkað á ný í
þýsku 1. deildinni. Liðum var fjölg-
að úr 18 í 20 fyrir þetta tímabil þar
sem ekki tókst að ljúka síðasta
tímabili. Alfreð sagði við Berliner
Morgenpost að álagið á leik-
mönnum væri of mikið og það bitn-
aði á landsliðinu. „Deild með sextán
liðum er best að mínu mati. Ég hef
kvartað yfir álaginu í tuttugu ár en
það eykst bara. Í öðrum löndum eru
12-14 lið í efstu deild og þá fá lands-
lið meiri tíma,“ sagði Alfreð.
Alfreð telur að
liðin séu of mörg
Ljósmynd/@DHB_Teams
Þýskaland Alfreð Gíslason tók við
landsliðinu á síðasta ári.
Þrjár íslenskar knattspyrnukonur
verða með liðum sínum í átta liða
úrslitum Meistaradeildar Evrópu í
næsta mánuði, þær Sara Björk
Gunnarsdóttir, Karólína Lea Vil-
hjálmsdóttir og Glódís Perla
Viggósdóttir.
Karólína var í fyrsta skipti í
byrjunarliði Bayern München og
spilaði allan leikinn á hægri kant-
inum þegar þýska stórliðið vann
Kazygurt frá Kasakstan, 3:0, í
München. Litlu munaði að Karól-
ína skoraði snemma leiks þegar
markvörðurinn varði hælspyrnu
frá henni. Bayern vann samtals 9:1
en Karólína þreytti frumraunina í
búningi félagsins í fyrri leiknum
og skoraði þá eitt markanna.
Á meðan Karólína lék sinn ann-
an Meistaradeildarleik spilaði Sara
Björk sinn 62. leik í keppninni
þegar Evrópumeistarar Lyon sigr-
uðu Bröndby 3:1 í Kaupmanna-
höfn. Þar með vann franska liðið
5:1 samanlagt. Sara lék fyrsta
klukkutímann en eftir að Wendie
Renard kom Lyon í 3:1 á 50. mín-
útu voru úrslitin í raun ráðin.
Glódís Perla og samherjar í
Rosengård voru í nokkrum vand-
ræðum eftir jafntefli á heimavelli,
2:2, gegn austurrísku meisturunum
St. Pölten sem Kristrún Rut
Antonsdóttir leikur með. En
Emma Berglund og Mimmi Lars-
son skoruðu fyrir sænska liðið í
fyrri hálfleik og það innbyrti góð-
an útisigur, 2:0, og sæti í átta liða
úrslitunum.
Hin liðin sem komin eru áfram
eru Chelsea, Barcelona og Wolfs-
burg og þá eru París SG og Man-
chester City nær örugg áfram eftir
stórsigra í fyrri leikjum sínum.
Dregið verður til átta liða úrslita
og undanúrslita á morgun.
vs@mbl.is
Ljósmynd/FCBfrauen
Skref Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var í fyrsta sinn í byrjunarliði Bayern
München í gærkvöld þegar liðið vann öruggan sigur í Meistaradeildinni.
Þrjár íslenskar
í átta liða úrslit
Annar stór áfangi hjá Karólínu Leu